Són - 01.01.2008, Page 62

Són - 01.01.2008, Page 62
HELGA KRESS62 konur.55 Þegar hún yrkir kvæðið, 75 ára gömul, árið 1933, hafa komið út eftir hana tvær ljóðabækur.56 Þær koma þó hvergi við sögu í kvæðinu né skáldskapur hennar yfirleitt. Hann er þar alveg bæld- ur. Kvæðið sjálft kemur þó upp um hana því að hún stígur þar sjálf fram sem bæði höfundur þess og flytjandi. Það er þó umfram allt ekki um hana sjálfa, heldur minningar um horfna búskaparhætti. Til áréttingar er það nefnt „þjóðháttakvæði“ í efnisyfirliti bókarinnar og sjálfsævisagan sem í því felst þar með þögguð.57 Þörfin kvað með þrumuróm Kvæði Theodoru Thoroddsen (1861–1955), „Mitt var starfið“ er sett fram sem ævikvæði þar sem kona, sem reynist í senn skáldkona og húsmóðir, lítur yfir líf sitt og ævistarf. Kvæðið birtist fyrst í vísnaþætt- inum „Að vestan“ í handskrifuðu „Mánaðarriti Lestrarfélags kvenna Reykjavíkur“ árið 191458 og ekki á prenti fyrr en í ritsafni Theodoru árið 1960. Í langri rammafrásögn segist hún hafa veitt þessar vísur, sem hún einnig kallar stökur, upp úr æskuvinkonu sinni fyrir vestan sem hafi sent sér þær í bréfi. Þessa æskuvinkonu kynnir hún síðan fyrir lesendum Mánaðarritsins. Hún er í góðum efnum og á mörg börn á misjöfnum aldri. „Ekki hefur hún þótt mikil búsýslukona“ þótt allt hafi verið „vansalaust á hennar heimili að útliti til“, og segist Theodora vita að „fremur myndi hún hafa kosið sér annan starfa en 55 Í æviminningum sínum, Ef hátt lét í straumnið Héraðsvatna, segir Ólína Jónasdóttir frá því þegar hún ung stúlka á Laxamýri er beinlínis vöruð við skáldsögunni Upp við fossa eftir Þorgils gjallanda: Jónas Stefánsson náði einhvers staðar í hana. Þórdís, kona Jóhannesar, varaði okkur stúlkurnar við að lesa hana, sagði að hún væri siðspillandi og háskaleg ungu fólki og sér væri illa við hana í sínum húsum. Auðvitað varð það til þess, að við sóttumst eftir að ná í hana, og man ég, að mér að minnsta kosti tókst það og varð ekki meint af, síður en svo.“ Ólína Jónasdóttir 1981:82. Þessi frásögn birtist fyrst eftir hennar dag og hefur verið sleppt úr samsvarandi kafla í fyrri útgáfu æviminninganna, Ég vitja þín, æska, frá 1946. 56 Ljóðmæli þeirra Herdísar og Ólínu Andrésdætra komu fyrst út árið 1924 og í annarri útgáfu aukinni 1930. Tæplega hálfri öld síðar, eða árið 1976, komu ljóðmælin út í þriðja sinn, stóraukin. Útgefandi og kostnaðarmaður var dótturson- ur Herdísar, Jón Thorarensen. Kvæði Herdísar sem varðveist hafa eru mun færri en Ólínu systur hennar. Í afmæliskvæði til sjálfrar sín áttræðrar segir hún um skáld- skap sinn: „Hraktist út á sónar sjó, / sá af straum og skerjum nóg, / þar til inn í þagnar kró / þulsins bátinn minn ég dró.“ Herdís Andrésdóttir 1976:291. 57 Ómögulegt er að sjá hvort skýringin „þjóðháttakvæði“ sem sett er í sviga aftan við heiti kvæðisins í efnisyfirliti er frá skáldinu eða útgefanda komin. 58 Sbr. „Mánaðarrit Lestrarfélags kvenna Reykjavíkur,” 3. ár, 8. tbl., desember 1914. Eiginhandarrit.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Són

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Són
https://timarit.is/publication/1139

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.