Són - 01.01.2008, Síða 67

Són - 01.01.2008, Síða 67
SAGA MÍN ER SÖNN EN SMÁ 67 Ekki eru lokuð öll mín búr, opna ég þau í hljóði, meðan get ég moðað úr minninganna sjóði. „Svo set ég hér vísur,“ segir hún, „sem eru gerðar um gamlar stöðvar, og áttu einu sinni að verða fleiri.“ Vísurnar eru fimm. Í þeim lýsir hún hverju landslaginu á fætur öðru í sveitinni sinni heima, nánar tiltekið Blönduhlíð og Norðurárdal. Þannig verður kvæðið að tregrófi um samastað sem hún hefur misst. Einnig minnir aðferðin á kvæði Guð- nýjar frá Klömbrum sem framkallar myndir af landslaginu sem hún þráir. Munurinn er sá að Ólína staðsetur sig í landslaginu, en Guðný er utan þess. Annað sem Ólína á sameiginlegt með Guðnýju er tilfinn- ingin um að vera ekki á réttum stað. Í kvæði sem hún nefnir „Á göt- unni“ og hún yrkir nýflutt úr sveitinni á mölina á Sauðárkróki segir: 74 Í ryki og ragi dagsins ég rölti hér um bæinn, en þrái heimahaga með hreina fjallablæinn. Vísurnar um gömlu stöðvarnar lýsa ferðalagi í huganum. Ferða- félaginn er lesandinn, í þessu tilviki Theodora, sem Ólína talar við og ekki bara sýnir landslagið heldur segir einnig frá sögu sinni í því: Fossar hlæja, hrönnin kvik, huldu fægir þilið. Við skulum æja augnablik upp við bæjargilið. Klettaskeið og troðin tröð, tæp í heiðarrana. Þessar leiðir gekk ég glöð gömlu sneiðingana. Þegar hún hefur skrifað vísurnar segir hún: „Svo mörg voru þau orð. Nú er komið meir en nóg af slíku.“ Með þessu þaggar hún í annað skipti niður í sjálfri sér, bæði áttu vísurnar að verða fleiri, sem ekki varð, og síðan er meir en nóg komið. Um það leyti sem Ólína skrifar þetta bréf er hún að ganga frá bók sinni, Ég vitja þín, æska, til prentunar, en það gerði hún fyrir áeggjan og með aðstoð Brodda Jóhannessonar, sem ættaður var frá Silfra- stöðum í hennar sveit. Bókin sem ber undirtitilinn „Minningar og stökur“ kom út haustið 1946 og fékk afar góða dóma, þó ekki alltaf á réttum forsendum. Hún seldist strax upp og var gefin út aftur ári síðar. Bókin er að mestum hluta bernskuminningar Ólínu í lausu 74 Lbs 3932, 4to. Í handriti er kvæðið ársett 1932.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160

x

Són

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Són
https://timarit.is/publication/1139

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.