Són - 01.01.2008, Page 143

Són - 01.01.2008, Page 143
LJÓÐ SEM BÍTA, ÖSKRA, STRJÚKA OG HVÍSLA 143 vera „ljúfsáran Reykjavíkurskáldskap“ og að skáldskapurinn sé „op- inn og útleitur […] en jafnframt ljóðrænn og einlægur og ort af tölu- verðu listfengi“.56 Mörg ljóðanna eru býsna sorgleg, en sem betur fer eru ljúf ljóð inn á milli, þar á meðal „Sagnaseiður“57 þar sem ljóðmæl- andi minnist stundanna í eldhúskróknum með ömmu þegar hún sagði sögur sem „gengu svo skringilega / í endurnýjun lífdaga / innan í mér“. Eitt ljóðskáld sameinar þau þrjú efni sem hér hefur mest verið fjall- að um: náttúruna, líf og dauða og hversdaginn en það er Ari Jóhann- esson, höfundur bókarinnar Öskudagar en fyrir hana hlaut Ari bók- menntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar. Samkvæmt dómnefnd er stíll höfundar agaður, skáldið þroskað og bókin sjálf áhrifamikil.58 Víst er að Ari hefur um nóg að yrkja þegar hann lítur til baka: líf, dauða og baráttu – allt það sem einkennir líf okkar allra. Þetta er fyrsta ljóðabók Ara og kemur hann skemmtilega á óvart í öflugum náttúrulýsingum í fyrsta hluta, lýsingum á baráttu sjúklinga í öðrum hluta og blöndu af bjartsýni og vonleysi sem einkennir hversdaginn í lokakafla bókarinnar. Um hefðir og höfuðskáld Langt er síðan skáldin ortu næstum eingöngu hefðbundin ljóð bundin af stuðlum og höfuðstöfum og formbyltingin löngu gengin yfir. Allt er leyfilegt og skáldin nýta sér það. Ekki er þar með sagt að allar hefðir séu úr sér gengnar og segja má að nú sé það nærri orðið að hefð að vísa aftur fyrir sig, til skálda fyrri tíma, bókmennta og sögu. Þetta sjáum við t.d. í einstaka ljóðum Þórarins Eldjárns og Steinunnar Sigurðardóttur og bók Höllu Gunnarsdóttur er í heild sinni vísun til Fjalla-Eyvindar. Hefðir koma víða við sögu í ljóðabók Gerðar Kristnýjar, Höggstað. Gerður vísar aftur í tímann, til Egils og Hallgerðar, meira að segja fjallkonan fær sitt pláss þar sem hún „hendist niður hlíðina / dýfir könnu leiftursnöggt í lækinn / og þambar á hlaupum“.59 Hún ætlar nefnilega að ná þýska ferðamanninum á undan björgunarsveitinni. 56 Skafti Þ. Halldórsson (2007b). 57 Garðar Baldvinsson (2007:30-31). 58 Rithöfundasamband Íslands (2007). Hægt er að fræðast nánar um höfundinn og bókina í viðtali sem birtist í Læknablaðinu: http://www.laeknabladid.is/media/tolu blod/1369/PDF/u14.pdf. 59 Gerður Kristný (2007:16).
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Són

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Són
https://timarit.is/publication/1139

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.