Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2007, Síða 10

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2007, Síða 10
8 Tímarit um menntarannsóknir, 4. árgangur 2007 annarra nágrannalanda. Ísland var þó sjálfstætt samfélag með eigið tungumál sem vildi og varð að vera sjálfu sér nægt um fræðslu, bæði almenningsfræðslu og undirbúningsmenntun embættismanna. Íslendingar vildu jafnframt semja sig að siðum Evrópuþjóða og tileinka sér evrópska menningu. Hve mikla og hvernig stærðfræðimenntun töldu þeir sig þurfa til þess? Ástæður stærðfræðimenntunar Hvaða ástæður eru það sem hafa áhrif á menntun á sviði stærðfræði? Mogens Niss, prófessor við Hróarskelduháskóla, telur að þrjár meginástæður séu fyrir því að samfélag haldi úti menntun í stærðfræði, hvar sem er í heiminum á hvaða tíma sem er. Ástæðurnar séu að stærðfræðimenntun ü stuðli að tæknilegri, félagslegri og efnahagslegri þróun samfélagsins ü geri einstaklinginn hæfari en ella til að takast á við líf sitt, svo sem í námi, starfi og þátttöku í samfélaginu ü stuðli að pólitískri, hugmyndafræði- legri og menningarlegri þróun og við- haldi samfélagsins (Niss, 1996: 13). Vægi þessara ástæðna telur Niss að sé mismunandi á ólíkum tímabilum og í ólíkum þjóðfélögum en alltaf megi flokka ástæður undir einn eða fleiri þessara þátta svo og röksemdir fyrir breytingum. Ástæður þessar hafa einnig verið notaðar sem rök og réttlæting fyrir stöðu stærðfræðimenntunar á hverjum tíma. Hér á eftir verða raktar ástæður nokkurra tímamóta á sviði stærðfræðimenntunar á Íslandi ásamt röksemdum fyrir breytingum og þær bornar saman við staðhæfingu Niss. Algorismus Meðal hins mikla arfs Íslendinga í rituðu máli frá miðöldum leynist fróðleikur á sviði stærðfræði. Ritgerðin Algorismus er ein hin heillegasta og merkasta á því sviði (Kristín Bjarnadóttir, 2004a). Algorismus er nánast bein þýðing á skólaljóði, Carmen de Algorismo, latneskum hexameter eftir franska kanúkann Alexander de Villa Dei. Indó-arabísk talnaritun er kynnt í Algorismus ásamt aðferðum við sjö reikniaðgerðir: samlagningu, frádrátt, tvö- földun, helmingun, margföldun, deilingu og rótardrátt, bæði ferningsrótar og teningsrótar. Carmen de Algorismo og Algorismus voru eins konar skólaútgáfur af riti Alkwarismis, Kitab al-jam´val tafriq bi hisab al-Hind (Bók um samlagningu og frádrátt með aðferð Indverjanna) sem barst til Evrópu og var þýdd á latínu á 12. öld (Allard, 1992). Textinn, sem er ítarlegur og réttur, greinir frá tilvikum eins og þeim þegar taka þarf til láns í frádrætti, geyma í samlagningu og draga ferningsrót. Margföldun margra stafa talna er nokkuð frábrugðin því sem nú tíðkast en er fullkomlega rétt lýst. Vitað er að ljóðið Carmen de Algorismo var ritað um 1202 (Lind, 1958: [1]), en elsta handritið sem til er af Algorismus er í Hauksbók og er talið ritað 1306–1308 (Stefán Karlsson, 1964: 119). Ritgerðin sjálf er eldri, ef til vill frá því um eða fyrir miðja þrettándu öld, og hugsanlegt er að hún hafi verið skrifuð í Viðey. Hvers vegna voru Íslendingar að þýða þetta rit? Reikningslist var ein hinna sjö frjálsu lista, septem artes liberales, sem stundaðar voru í evrópskum dómkirkjuskólum. Hún tilheyrði fjórveginum svonefnda, quadrivium, þar sem voru tónlist, reikningslist, flatarmálsfræði og stjörnufræði. Aðrar þrjár námsgreinar töldust til þrívegarins, trivium, nefnilega mælskufræði, málfræði og rökfræði. Reikningslistin hafði hagnýtt gildi vegna þeirrar skyldu presta að fást við almanaksútreikninga. Lærðir menn, sem líklegastir voru til að geta skilið Algo- rismus, voru þó einnig læsir á latínu og áttu ef til vill auðveldara með að tileinka sér efni ritgerðarinnar í Carmen á latínu í bundnu máli. Danski fræðimaðurinn Peder Nattegal, Petrus de Dacia (1897), ritaði skýringar á hliðstæðu riti, Algorismus Vulgaris, eftir Johannis de Sacrobosco, samtíðarmann Alexanders de Villa Deis, en Peder Nattegal ritaði á latínu. Íslendingar fylgdust þannig með evrópskum menningarstraumum og útfærðu Nokkur tímamót í sögu stærðfræðimenntunar
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172

x

Tímarit um menntarannsóknir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.