Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2007, Blaðsíða 67
65
Tímarit um menntarannsóknir, 4. árgangur 2007
Umræðan sem fór af stað í kjölfar TIMSS-
rannsóknarinnar var lituð af deilum og jafnvel
uppnámi og ljóst að fólk tókst á um ólík
sjónarmið. Svo virtist sem ekki væri markvisst
leitað að rótum vandans og raunhæfum lausnum
með ítarlegri skoðun á ástæðum slakrar
kunnáttu nemenda. Stjórnvöld töldu vandann
felast í skorti á fé og virtust strax tilbúin að
leggja fram fé til bættrar raungreinakennslu.
Umræðan sem sneri að kennaramenntuninni
einkenndist af ágreiningi um vægi uppeldis-
og kennslufræði annars vegar og faggreina
hins vegar, svo sem tungumála, raungreina og
samfélagsgreina.
Björn Bjarnason (1996), þáverandi
menntamálaráðherra, lýsti þeirri skoðun sinni
á málþingi um raungreinakennslu á vegum
Félags raungreinakennara og Verkfræðifélags
Íslands 1996 að draga þyrfti úr lögverndun
kennarastarfsins og styrkja stöðu leiðbeinenda
sem byggju yfir mikilli fagþekkingu á sviði
kennslugreina, jafnframt því sem draga þyrfti
úr vægi uppeldisgreina í kennaranáminu og
auka hlut fagkennslu. Hann lýsti reyndar
einnig þeirri skoðun sinni að ástæða væri
til að huga að lengingu kennaramenntunar.
Þórarinn V. Þórarinsson (1996), þáverandi
framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambandsins,
lýsti sjónarmiði atvinnulífsins, sem hann kvað
leggja áherslu á sjálfstæði skóla og sagði að
koma þyrfti upp árangurstengdu launakerfi
þar sem kennurum sem næðu árangri væri
umbunað og auka þyrfti samkeppni og
framleiðni í skólastarfi. Varaformaður
Kennarasambandsins, Guðrún Ebba Ólafsdóttir
(1996), tók annan pól í hæðina og sagði að
einungis með öflugri endurmenntun kennara
og með því að lengja kennaranámið væri
mögulegt að mæta þörfum kennaranema fyrir
góða menntun í faggrein sinni og í uppeldis- og
kennslufræði.
Þegar umræðan stóð sem hæst rituðu tveir
alþingismenn greinar í Morgunblaðið um
alvöru málsins. Það er athyglisvert að þeir
viku aðeins lítillega að hlut stjórnvalda eða
að kennaramenntuninni, en leituðu skýringa
á slakri útkomu íslenskra barna í TIMSS-
rannsókninni í rangri markmiðssetningu
skólanna og litlum faglegum kröfum og fundu
þá lausn helsta að skipa þyrfti nemendum í
bekki eftir getu (Einar K. Guðfinnsson, 1996),
fyrirkomulag sem skólafólk hafði almennt
hafnað fyrir stefnuna um ,,skóla fyrir alla“.
Aðrir sáu vanda skólanna felast í agaleysi
á heimilum, of mikilli vinnu foreldra vegna
sóknar í veraldleg gæði, fjárskorti skólanna og
ekki væri samræmi á milli þróunar samfélagsins
og skólastarfsins (Hjálmar Árnason, 1996).
Ári síðar dró Björn Bjarnason (1997) þá
ályktun að viðbrögð við TIMSS-rannsókninni
hefðu lýst samstöðu um nýja stefnu í
menntamálum. Það skýtur skökku við að
ráðherrann talaði um að kennaramenntunar-
stofnanir þyrftu með róttækum hætti að huga
að innra starfi sínu. Kennarar Kennaraháskóla
Íslands höfðu á þessum árum lagt gríðarlega vinnu
í að endurskoða kennaranámið en stjórnvöld
höfðu hvað eftir annað hafnað tillögum um
breytingar. Kennararnir voru sammála um að
lenging námsins kæmi nemendum til góða í
valgreinum og vettvangsnámi, og lögðu til
nýja skipan valgreina í kjörsvið til að dýpka
þekkingu nemenda. Viðbrögð stjórnvalda
höfðu smám saman haft neikvæð áhrif innan
skólans og drógu mátt úr starfsmönnum hans
og úr trú á endurbætur (Baldur Sigurðsson,
1997).
Baldri Sigurðssyni (1997) dósent og Ólafi
Proppé (1998) rektor sýndust menn fara offari
í gagnrýni sinni á kennaramenntunina og
fánýti uppeldis- og kennslufræði. Þeir minntu
á að uppeldis- og kennslufræðin væri órofa
þáttur í heildstæðri kennaramenntun, hún væri
kjarni sem gerði kennara að fagfólki. Hafdís
Ingvarsdóttir (1997), kennslustjóri við Háskóla
Íslands, vísaði til eigin könnunar þar sem
skýrt kæmi fram að ekki nægði að kennarar
byggju yfir fagþekkingu, þeir yrðu að kunna
að miðla henni. Hún sagði óskir um kennslu í
kennslufræði við Háskóla Íslands sífellt aukast.
Fáum árum síðar benti Ingvar Sigurgeirsson
(2001) prófessor á hinn mikla kraft sem ríkti
meðal fagfólks í uppeldis- og kennslufræði
í landinu. Nefndi hann til sögunnar vaxandi
Að styrkja haldreipi skólastarfsins