Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2007, Blaðsíða 93

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2007, Blaðsíða 93
Tímarit um menntarannsóknir, 4. árgangur 2007 náð sæmilegum tökum á helstu efnisþáttum á því sviði. Helsti styrkleiki hennar virðist því einkum ná til inntaks fagsins og sérkenna þess. En hún telur sig standa fremur illa að vígi þegar kemur að kennsluaðferðum og leiðum, einnig vali á gögnum og tækjum til kennslu. Hún segist t.d. ekki vera fær í að spyrja og halda uppi samræðum meðal nemenda um efnið sem hún er að kenna: „Spjall er nú ekki mikið … Maður þarf að læra það, ég er ekki flink við það. Það fer út og suður.“ Samt eru dæmi um athyglisverðar kennsluaðferðir hjá henni, t.d. það sem hún kallar „leikrit“ sem eru í raun áhugaverðar sýnitilraunir með umræðu. Í kennslustund sem rannsakendur fylgdust með vakti það athygli að hún fór með heilan nemendahóp með sér inn í stigahús í fjölbýlishúsi og gerði tilraun með kraft, orku og hreyfingu. Saga segist oft sjá brýna þörf á að hjálpa nemendum að tengja og skilja, tekur dæmi um hitastig og frostmark, allir nemendur hafi t.d. reynslu af því þegar vatn frýs, en tengingin við aflestur af hitamæli sé ótrúlega veik. Hún segir að sig vanti hugmyndir að aðferðum og hún hafi t.d. ekki náð tökum á að nýta sér Netið, kallar eftir stuðningi frá kollegum: „…maður er svona eyland, þá hefur maður engar hugmyndir annars staðar frá.“ Samkvæmt flokkun Trausta Þorsteinssonar á „ósjálfstæð fagmennska“ við þegar fagmanneskjan gerir sig háða ytri skilyrðum og forskriftum og reynir að uppfylla þau (bls. 192), en forðast að meta sjálfstætt og „ákvarða hverjar þarfir nemenda eru og á hvern hátt þeim skuli mætt“ (bls. 195). Saga tilheyrir fyrst og fremst þeim flokki. Hún reynir að hafa á valdi sínu góða þekkingu á faginu sem hún kennir, lítur á sig sem uppfræðara fremur en uppalanda og metur mikils sjálfstæði sitt sem sérfræðings í skólastofunni. Aðalsteinn telst einnig hafa tiltölulega góða innihaldslega þekkingu, en afmarkaða þó. Þegar hann er spurður hvort hann telji sig hafa sterkan bakgrunn í greinum sínum, eðlisfræði og stærðfræði, svarar hann: „Já, svona miðað við aðra þá held ég að ég standi ágætlega.“ Fagmennska hans tilheyrir sama flokki og fagmennska Sögu. Hann lítur fyrst og fremst á það sem hlutverk sitt að miðla þekkingu og kunnáttu og meta árangurinn með hefðbundnum aðferðum, síður að hafa áhyggjur af séraðstæðum hvers nemanda, uppeldislegum atriðum eða námslegum vandamálum. Aðalsteinn stendur langt frá skilgreiningu Trausta á hinni „samvirku fagmennsku“. Hann segist til dæmis ekki þekkja til skipulags hjá öðrum kennurum og ekki vera viss um hvort gerð hafi verið heildstæð skólanámskrá fyrir eðlisfræði í sínum skóla. Ólína hafði nýlega lokið kennaranámi þegar rannsóknin fór fram. Segja má að hún standi einhvers staðar á milli hinnar „sjálfstæðu fagmennsku“ og „ósjálfstæðu fagmennsku“. Hún segist fylgja aðalnámskrá og þægilegt sé að hafa skrifaða námsefnið sem uppistöðu, en hún nýti sér samt það frelsi sem hún hafi til að skipuleggja bæði tíma og efnistök í náttúruvísindakennslu sinni: „Ég hef mjög frjálsar hendur hérna í sambandi við hvað ég geri og hvernig ég geri það, þannig að maður er líka að taka þátt í að móta svolítið….“ Hún hefur greinilega skýrari hugmyndir um mögulegar aðferðir og útfærslur í kennslu sinni en Saga og Aðalsteinn og nauðsyn þess að láta ekki beina kennslu stjórna ferðinni: „En hún má aldrei vera stór partur af dæminu. Maður verður að nálgast hlutina frá sem flestum ólíkum hliðum.“ Jakob hefur haldgóða inntaksþekkingu á öllum sviðum náttúruvísinda. Hann leggur mikið upp úr því að nemendur skilji hvað þeir eru að gera og segir að samræður og spjall skipti sérlega miklu máli til að efla skilning nemenda og hann leggur sig einnig fram um að spjalla við nemendur sína utan formlegs skólatíma ef því er að skipta. Hann segist stundum láta nemendur framkvæma tilraunir sjálfa og skrifa hefðbundnar skýrslur, en þó segir hann á einum stað: „Mér finnst stundum nemendatilraunir sem þau gera sjálf hamla þeim, þau gleyma sér í að vera að gera eitthvað, mér finnst stundum að þau viti ekki nákvæmlega hvað þau eru að gera.“ Á öðrum stað segist hann stundum leggja á það áherslu við nemendur að þau Sýn fimm grunnskólakennara á nám og kennslu í náttúruvísindum 91
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172

x

Tímarit um menntarannsóknir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.