Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2007, Blaðsíða 42

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2007, Blaðsíða 42
40 Tímarit um menntarannsóknir, 4. árgangur 2007 Öll námskeið verða að tengjast ákveðnu fræðasviði og rannsóknum á því sviði. Stefnt er að því að nemendur geti hagnýtt sér niðurstöður rannsókna og fræðilega þekkingu á viðkomandi sviði til að takast á við starf sitt á fagmannlegan hátt. Leggja þarf grunn að aðferðafræði snemma á námsferlinu. (Bls. 6, leturbreyting mín) Það fer varla á milli mála að markið er sett hátt. Kennaraháskóli Íslands boðar rannsóknatengt starfsnám. Nú skal lögð áhersla á rannsóknir og fræðilega þekkingu. Kennarar framtíðarinnar eiga að vera færir um að starfa í ljósi fræða og rannsókna. Þeir sem eitthvað þekkja til skólastarfs á Íslandi skynja að hér er boðuð mikil breyting. Kennarar á Íslandi starfa almennt ekki í ljósi rannsókna og fræða. Þeir, líkt og kennarar yfirleitt í heiminum, starfa frekar í ljósi reynslunnar og í ljósi hefða sem mótast hafa á vettvangi skólans (Bruner, 1996; Kennedy, 1999). Skóli er ekki svið þar sem nýútskrifaður kennari leikur sér með fræðin sem hann lærði í kennaraskólanum. Skóli er samfélag þar sem ákveðin lífsform hafa þróast, þar sem fólk gerir hlutina á ákveðna vegu og talar um hlutina með ákveðnum hætti, oft með allt öðrum hætti en tíðkast í kennaraskólum. Nýútskrifaðir kennarar finna gjarnan fyrir þessu og finna sig jafnvel knúna til að gefa upp á bátinn „góðu hugmyndirnar“ úr kennaraskólanum, finna að þær „eiga ekki við hér“ og vilja heldur ekki vera með einhverja sérvisku (Putnam og Borko, 2000). Af ofansögðu má ráða að við, kennarar við Kennaraháskóla Íslands, eigum ekki auðvelt verk fyrir höndum. Hvernig förum við að? Hvernig starfshætti þurfum við að þróa til að ná þeim markmiðum sem stefnt er að? Hvernig getum við stuðlað að því að kennarar framtíðarinnar verði færir um að starfa í ljósi rannsókna og fræða? Í framhaldinu mun ég leita svara við þessum spurningum. Að feta ekki í fótspor feðranna Ein af yfirlýstum ástæðum fyrir yfirstandandi breytingum á kennaranámi er að við búum ekki lengur í einföldu, kyrrstæðu bændasamfélagi heldur í flóknu og síbreytilegu þekkingar- og fjölmenningarsamfélagi þar sem áður óþekktir möguleikar bíða uppvaxandi kynslóðar en líka mörg ný vandamál. Áður fetuðu börnin í fótspor feðranna. Bóndasonurinn varð bóndi, dóttirin húsmóðir. Allt tiltölulega einfalt. Nú er allt galopið. Börn bændafólks fara í framhaldsskóla, þau verða stúdentar og þau fara í háskóla, verða B.S. eða B.A. eða M.A. eða M.S. eða jafnvel Ph.D. Allt er mögulegt, allt er á hreyfingu og það er kannski einmitt þess vegna sem menntun er svo gríðarlega mikilvæg í dag. Þetta setur skóla nútímans í alveg nýja stöðu: að mennta fólk fyrir breytileikann, efla hæfni þess til að takast á við ný viðfangsefni og ný vandamál, rata í flóknum heimi. En það er fleira sem hangir á spýtunni. Það eru ekki einasta samfélagsaðstæður sem hafa breyst og skapað skólum ný viðfangsefni að glíma við. Ný viðhorf til náms og kennslu gera nú vart við sig. Þessi nýju viðhorf eiga rætur í umfangsmiklum rannsóknum á því hvernig börn læra. Til marks um þetta má geta þess að árið 1999 kom út í Bandaríkjunum á vegum Bandaríska vísindaráðsins (National Research Council) hefti sem ber heitið How People Learn – Bridging Research and Practice. Í heftinu (Donovan, Bransford og Pellegrino, 1999) eru dregnar saman helstu niðurstöður rannsókna á námi og útlistað hvernig þær tengjast starfinu í skólastofunni. Hefti þetta byggir á annarri bók sem kom út sama ár og heitir How People Learn: Brain, Mind, Experience, and School en sú bók er árangur af tveggja ára starfi sérstakrar nefndar vísindamanna sem skipuð var af Bandaríska vísindaráðinu og hafði það hlutverk að meta hverju rannsóknir á námi hafi í raun skilað, hver vitneskja okkar sé á þessu sviði1. Í öðrum kafla þessa rits eru dregnar fram lykilniðurstöður þessara rannsókna: Að kenna í ljósi fræða og rannsókna 1 Þessa bók er að finna á netinu, slóðin er http://www.nap.edu/html/howpeople1/index.html.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172

x

Tímarit um menntarannsóknir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.