Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2007, Page 75

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2007, Page 75
73 Tímarit um menntarannsóknir, 4. árgangur 2007 einingar í íslensku eða raungreinum). Eftir það eru í boði fjögur kjörsvið; nám og kennsla yngri barna, íslenska, – mál og menning, náttúruvísindi/stærðfræði og listir. Þá er lögð áhersla á langa og samfellda viðveru í grunnskólum og reynt er að eiga samvinnu við skóla af ólíkri gerð svo að nemendur geti öðlast sem fjölbreytilegasta reynslu. Í þriðja lagi er leitast við að leggja heimspekilegt mat á stefnur og strauma í uppeldis- og kennslufræðum. Á leikskólabraut kennaradeildar Háskólans á Akureyri er lögð áhersla á nám um starfshætti leikskólans og gildi leiks sem náms- og þroskaleiðar barna. Sérstök rækt er lögð við listir og tengsl þeirra í milli og við aðra þætti í leikskólastarfi. Í þriðja lagi stunda nemendur langt vettvangsnám en fjórði þátturinn sem lögð er áhersla á er heimspekileg sýn á leikskólastarf. Sérstaða námsins felst í ákveðinni lífssýn sem byggist á því að nálgast uppeldi og menntun barna af sjónarhóli skapandi hugsunar og með skapandi starfi. Í kennsluskrám Kennaraháskólans og kennaradeildarinnar við Háskólann á Akureyri kemur fram að einn mikilvægasti hluti kennaranámsins sé námið á vettvangi, áheyrn og æfingakennsla. Vettvangsnámið í þessum tveimur háskólum er byggt upp á ólíkan hátt. Við Háskólann á Akureyri fer vettvangsnámið fram á þriðja ári og er samfellt í þrjá mánuði en við Kennaraháskólann er vettvangsnámið tekið í þremur lotum. Um þessar mundir eru miklar breytingar framundan á fyrirkomulagi kennaramenntunar í landinu. Háskólaráð Háskólans á Akureyri ákvað í byrjun október 2007 að sameina kennaradeild og félagsvísinda- og lagadeild í eina deild frá og með 1. ágúst 2008. Nýja deildin fær nafnið hug- og félagsvísindadeild. Markmiðin með þessari sameiningu eru að styrkja námsframboð deildanna faglega, auka möguleika á að þróa ný námsframboð, bæði á grunn- og framhaldsstigi, og greiða fyrir fyrirhugaðri lengingu kennaranáms í fimm ár. Þá hefur Alþingi ákveðið að Kennaraháskóli Íslands og Háskóli Íslands sameinist í einum háskóla þann 1. júlí 2008. Sameiningin er gerð að frumkvæði háskólanna tveggja í samvinnu við menntamálaráðherra. Ólafur Proppé, rektor Kennaraháskóla Íslands, sagði við brautskráningu nema í október 2007 að með sameiningu þessara tveggja háskóla væri talið að Háskóli Íslands styrktist, bæði hvað varðaði kennslu og rannsóknir á sviði kennaramenntunar og annarra fræðasviða sem tengjast uppeldi og menntun, námi og kennslu. Í sameinuðum háskóla yrði væntanlega unnt að virkja sérfræðiþekkingu í báðum háskólunum enn betur en nú er gert og efla þannig kennaramenntun fyrir öll skólastig og aðra starfsmenntun uppeldis- og menntunarstétta. Niðurstaða og umræða Þegar leitað er svara við því hvernig menntun grunnskólakennara hefur þróast hér á landi er óhætt er að segja að miklar breytingar hafi orðið á menntun þeirra á síðustu öld. Þróunin var afar hæg í upphafi en miklar breytingar áttu sér stað síðustu áratugi aldarinnar. Þótt einstaka alþingismenn hafi á árunum 1896– 1908 sýnt menntun kennara skilning er ljóst að almennt var skilningur ráðamanna á nauðsyn kennaramenntunar á þessum tíma lítill. Mörg frumvörp um kennaraskóla voru flutt á Alþingi á þessum árum en þau felld hvert á fætur öðru. Kennaraskóli var talinn landinu of dýr en einnig heyrðist sú skoðun að nógu margir fengjust við barnakennslu. Ráðamenn virðast hafa gert sér litla grein fyrir því að illa var búið að kennurum og nemendum. Lögin frá árinu 1907 um skólaskyldu barna juku samt þörfina fyrir sérstakan kennaraskóla og tók Kennaraskóli Íslands til starfa haustið 1908. Um miðja síðustu öld fór langskólagengnu fólki fjölgandi. Áhrifa þess gætti í lögum um menntun kennara sem sett voru 1947. Sam- kvæmt þeim skyldi kenna kennaranemum uppeldis- og sálarfræði (uppeldisfræði hafði reyndar verið kennd frá upphafi), stuðla að rannsóknum, gefa út leiðbeiningarit fyrir kennara, stofna æfingaskóla og bjóða upp á framhaldsnám og endurmenntun fyrir kennara. Þessi lög mörkuðu tímamót í sögu lagasetningar um menntun kennara (Broddi Að styrkja haldreipi skólastarfsins
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172

x

Tímarit um menntarannsóknir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.