Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2007, Page 128
126
Tímarit um menntarannsóknir, 4. árgangur 2007
átt er við voru leiðbeinendurnir almennt
sammála um að börn gætu fremur lítið og þeir
töldu það ekki þjóna tilgangi að skipuleggja
námsaðstæður og nám þeirra í leikskólanum.
Leiðbeinendur töldu helsta hlutverk sitt vera
að bæta börnum upp fjarvistir frá mæðrum
sínum. Um það sagði Alda: Þessi börn eru að
mínu mati allt of mikið frá mæðrum sínum.
Gróa bætti við: Börn þurfa meiri hlýju frá
foreldrunum. Leiðbeinendur ræddu að þeir
vildu kenna börnunum kurteisi og reglur og sjá
til þess að þau lærðu að hlýða en um það sagði
Gróa: Ég vil sjá meiri aga.... já þegar það er
meiri agi þá eru börnin rólegri. Þessar lýsingar
leiðbeinendanna endurspegla kenningar
Baumrind (1967, 1971) um valdboðsuppeldi.
Uppeldissýn þeirra einkenndist af því sem
Dalberg og félagar (1999) kalla gullaldarsýn
þar sem börn eru fórnarlömb aðstæðna.
Hlutverk starfsfólksins væri að hlúa að þeim
og bæta þeim upp langar fjarvistir frá mæðrum
sínum. Þau telja þetta vera algenga sýn á
uppeldi ungra barna og að menntun fólks hafi
áhrif á uppeldissýn þess.
Það var talið mikilvægt að setja reglur fyrir
börnin að fara eftir. Nóra leiðbeinandi orðaði
þetta svo: Ef eitthvað er bannað þá er það
bannað. Það á ekki að vera í valdabaráttu
við tveggja ára börn. Það á ekki láta þau
komast upp með allt sem þau vilja. Rut bætti
við: Það þarf að kenna þeim að sitja kyrrum.
Reglurnar voru einnig taldar mikilvægar til
þess að daglegt starf gæti gengið upp og að
starfsfólk fengi lögboðna matar- og kaffitíma. Í
máli margra leiðbeinenda kom fram að allt sem
ekki væri bundið í reglur í leikskólastarfinu
ylli þeim kvíða. Jafnframt var þeim tíðrætt um
mikilvægi þess að sýna börnum hlýju og taka
eftir börnum sem minna mega sín. Þótt þeir
teldu það oft vandkvæðum bundið. Um þetta
segir Ólöf: Ofsalega mikið að gera, ...ofsalega
lítill tími. ...það er hætta á að missa stjórn á
sér í svona aðstæðum.
Leiðbeinendur áttu erfitt með að sjá fyrir
sér að nám færi fram í leikskólum heldur
væru börnin þar í gæslu eða pössun og þar
ætti börnum að líða vel. Um þetta sagði Gróa:
Ég myndi segja að helsta viðfangsefnið væri
að hlúa að börnunum en ekki að mennta þau.
María bætir við: Við reynum að skipuleggja
þemun og svoleiðis, það er náttúrulega erfitt
með þriggja ára börn, ég veit eiginlega ekki
til hvers er verið að þessu og Rut segir: Svo er
náttúrulega þessi samverustund! Ég get ekki
séð að þau læri mikið. Enginn leiðbeinandi
lýsti sig sammála því, í fyrstu viðtölunum, að
mikilvægt væri að skipuleggja nám barnanna.
Lýðræðislegt barnmiðað uppeldi
Leikskólakennurunum var frá upphafi tíðrætt
um ábyrgð kennara á námi og velferð leikskóla-
barna. Þeir ræddu um leiðir til að hjálpa börnum
að flytjast milli deilda og leiðir fyrir ný börn til
að aðlagast leikskólanum. Oft tóku þeir dæmi
úr starfinu máli sínu til stuðnings og tengdu
þau við þær uppeldis- og kennsluaðferðir
sem þeir notuðu í leikskólanum. Eftirfarandi
lýsingar eru einkennandi fyrir umræðu
leikskólakennaranna. Signý segir:
Deildin mín er ljúf núna, vissulega svolítið
erfiðari en áður... það þarf mikið að beita
líkamlegri snertingu til að ná athygli, til dæmis
við víetnömsku börnin, bara til þess að þau
fatti að ég sé að segja nafnið þeirra... þetta
krefst meira af manni. Á meðan þarf að setja
þrengri ramma. Svo eru þau hrædd,... og það
þarf að leysa þetta allt saman.
Inga lýsir móttöku nýrra barna með þessum
orðum:
Já nýju börnin prófa sig áfram og maður þarf
að taka þátt, vera með þeim og unnið er að
því að kenna börnum í leikskólanum að taka á
móti nýjum börnum. Það þarf að kenna hinum
börnunum hjálpfýsi, leyfa þeim að hjálpa hvert
öðru.
Þessi umræða felur í sér uppeldissýn þar sem
litið er á börn sem virka þátttakendur í eigin
námi og að kenna þurfi börnum samskipti, taka
þátt í athöfnum þeirra, skapa lýðræðislegar
aðstæður, skapa samvinnu og að kennarinn beri
ábyrgð á að þessi skilyrði skapist (Dahlberg og
fél. 1999).
Flestir leikskólakennarnir litu á samskipta-
erfiðleika sem uppeldislegt viðfangsefni.
Breytingar á uppeldissýn í leikskóla