Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2007, Page 130
128
Tímarit um menntarannsóknir, 4. árgangur 2007
greining þeirra og leiðbeiningarsamtöl kjarninn
í þróunarverkefninu. Hér á eftir eru dæmi
af tveimur starfsmönnum, leiðbeinanda og
leikskólakennara, sem lýsa þróun samskipta-
og kennsluaðferða meðan á rannsókninni stóð.
Dæmin eru lýsandi fyrir ferlið sem margir
gengu í gegnum á tímabilinu.
Eydís leiðbeinandi
Eydís hafði að baki áratuga starfsreynslu
í leikskóla. Upptökur sem athugaðar voru
sérstaklega með henni flokkuðust allar undir
skipulagðar aðstæður þar sem stjórnin var að
mestu í höndum Eydísar. Í öllum upptökunum
ríkir góður andi milli Eydísar og barnanna
og sýnir hún þeim áhuga og hlýju. Hún beitir
látbragði, horfir í augu barnanna, nefnir nöfn
og strýkur vanga þeirra mjúklega til þess að ná
sambandi við þau.
Fyrsta upptakan fer fram í söngstund með
fimm börnum. Eydís stjórnar söngnum af
mikilli innlifun. Börnin velja lögin sem sungin
eru. Eydís og börnin hreyfa sig með söngvunum
og virðast flest börnin njóta stundarinnar. Í
annarri upptökunni situr Eydís á stól fyrir
framan fimm börn sem sitja á gólfinu, þar
af er eitt barnið af erlendum uppruna. Hún
fylgir fyrirfram ákveðnum söguþræði og beitir
leikrænum tilþrifum við söguna. Söguþráðurinn
virðist nokkuð flókinn og fjallar um ferðalag í
frumskóginn. Börnin brosa þegar spenna er í
sögunni enda tjáir sögumaður það ríkulega með
látbragði. Stjórn stundarinnar og frumkvæði er
að miklu leyti í höndum Eydísar. Hún tekur lítið
tillit til viðbragða og frumkvæðis barnanna og
eiga þau í nokkrum erfiðleikum með að tengja
söguna við reynsluheim sinn. Það kemur t.d.
glögglega fram þegar söguhetjan fer í sund,
þá lifnar yfir börnunum sem augsýnilega hafa
reynslu af sundferðum. En þau fá ekki tækifæri
til að leggja af mörkum til sögunnar því Eydís
heldur áfram með hana. Erlenda stúlkan horfir
út í loftið og iðar öðru hverju. Sagan gaf mun
meira tilefni til hreyfingar en raun bar vitni og
hreyfðu börnin einungis efri hluta líkamans. Í
þriðju upptökunni les Eydís sögu fyrir fimm
börn sem sitja við borð, þar af er eitt barn af
erlendum uppruna. Eydís gæðir söguna lífi
með leikhljóðum og hvetur börnin til að gera
slíkt hið sama. Hún fylgist vel með viðbrögðum
og frumkvæði þeirra og fá þau tækifæri til að
tjá sig um söguna og tengja við eigin reynslu.
Eydís leitast við að fylgjast með hvort börnin
nái söguþræðinum og endurtekur í einfaldari
orðum það sem fram kemur í bókinni. Þegar
lestrinum lýkur endurtekur hún söguna með
hjálp barnanna og beinir sérstakri athygli að
stúlkunni sem er af erlendum uppruna.
Þær breytingar og þróun sem greina má
í þessum þremur myndbandsupptökum hjá
Eydísi er að dregið hefur mjög úr stjórn
hennar, sem var áberandi í fyrstu upptökum.
Hún þróaði aðferðir sínar í áttina að því að
fylgja eftir frumkvæði og styrk barnanna,
staðfesta athafnir þeirra jákvætt og mæta þeim
þar sem þau voru stödd.
Jónas leikskólakennari
Jónas hefur tæplega tíu ára reynslu sem
deildarstjóri í leikskólanum. Upptökurnar
þrjár sem athugaðar voru fóru fram á tveimur
deildum. Jónas var fyrra árið deildarstjóri
á deild fyrir 2−3 ára börn og tók við
deildarstjórn á elstu deildinni seinna árið sem
þróunarverkefnið stóð yfir. Upptökurnar voru
allar teknar í hálfskipulögðum aðstæðum.
Í fyrstu upptökunni voru börnin nýkomin
inn eftir útivist og var athyglinni beint að
samskiptum Jónasar við börnin á salerni. Í
annarri upptöku spilar Jónas teningaspil við
börnin og í þriðju upptöku beinir hann sjónum
að tveimur drengjum sem leika saman á gólfi.
Í öllum upptökunum kemur fram góður andi og
hlýja í samskiptum Jónasar og barnanna. Hann
gefur börnunum góðan tíma og orðar athafnir
þeirra. Hann ræðir um hugmyndir þeirra og
færir umræðuefnið í víðara samhengi. Jónas
beitir rödd sinni, bæði til að skapa spennu
og eftirvæntingu hjá börnunum og í þeim
tilgangi að ná athygli þeirra. Einnig notar
hann leikhljóð og leikmál í samskiptum sínum
við þau þegar börnin eru að leik. Jónas sýnir
færni í samskiptum. Það sést glögglega í fyrstu
upptöku sem fór fram á salerninu á yngri
Breytingar á uppeldissýn í leikskóla