Gerðir kirkjuþings - 2002, Page 29
14. mál 2002. Tillaga að starfsreglum um kirkjutónlist á vegum Þjóðkirkjunnar
Tillögur þessar að starfsreglum um kirkjutónlist á vegum Þjóðkirkjunnar eru unnar á
grundvelli stefiiu stjómar Tónskóla Þjóðkirkjunnar. Ekki er um neinar stórvægilegar
breytingar að ræða á efhi gildandi starfsreglna. Þó telur Kirkjuráð aðgengilegra og skýrara að
setja nýjan bálk starfsreglna í stað þess að breyta þeim sem fyrir er. Meðal helstu nýmæla eru
að verkaskipti og ábyrgð kirkjulegra stjómvalda á sviði söng - og tónlistar em skýrð nánar
frá því sem nú er. Þá er gert ráð fyrir að Kirkjuþing marki tónlistarstefhu Þjóðkirkjunnar og
biskup annist um ffamkvæmd hennar. Enn ffernur er leitast við að gera starfsreglumar
skýrari og aðgengilegri með nokkuð breyttri ffamsetningu þótt efnisinnihald þeirra sé áþekkt
núgildandi starfsreglum.
15. mál 2002. Tillaga að starfsreglum um breyting á starfsreglum um sóknarnefndir nr.
732/1998
Kirkjuráð leggur til, í ljósi reynslunnar, að ákvæði um skyldubundna málsmeðferð vegna
sókna í fjárhagsörðugleikum í 10. gr. verði fellt brott, til að skapa meiri sveigjanleika í
málsmeðferð.
16. mál 2002. Tillaga að starfsreglum um breyting á starfsreglum um skipan sókna,
prestakalla ogprófastsdæma nr. 731/1998
Meiri hluti Kirkjuráðs leggur til að ákvæði um stöðu sóknarpresta við sameiningu prestakalla
falli brott. í ákvæðunum er svo fýrir mælt að ef prestaköll em sameinuð skuli sá prestur
ganga fyrir sem lengur hefur gegnt prestsembætti innan Þjóðkirkjunnar. Beri kirkjustjóminni
að bjóða presti sem missir kall af þessum orsökum sambærilegt embætti eða starf. Meiri hluti
Kirkjuráðs telur að erfitt sé að samrýma þetta starfsreglum um val á prestum. Þá verður að
telja að réttur presta sem hugsanlega missa prestsembætti vegna skipulagsbreytinga sé vel
varinn af lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996. Þá sýnir reynslan að
þegar farið er í breytingar á skipan prestakalla er yfirleitt miðað við starfslok prests vegna
aldursákvæða.
18. mál 2002. Tillaga að þingsályktun um öldrunarþjónustu Þjóðkirkjunnar
Kirkjuráð leggur til að skipuð verði þriggja manna nefnd til að vinna að mótun deilistefnu
Þjóðkirkjunnar í öldmnarmálum og þá með hliðsjón af þeirri vinnu sem fram fer í
stefnumótun fýrir Þjóðkirkjuna (sbr. 7. mál 2002). Hópurinn leggi fram tillögur og
verkáætlun þar að lútandi.
19. mál 2002. Tillaga að þingsályktun um kirkju ogskóla
Lagt er til að Kirkjuþing beini því til Kirkjuráðs að skipuð verði nefnd til að móta stefnu í
málefnum kirkju og skóla til að fjalla um stöðu kristnifræðslu og framkvæmd hennar.
Ahersla verði lögð á með hvaða hætti koma megi til móts við kennara í kristnifræðslu til að
styrkja þá í því starfí.
20. mál 2002. Tillaga að starfsreglum um breyting á starfsreglum um kosningu biskups
Islands og vígslubiskupa
Lagt er til að sambærilegar breytingar verði gerðar á atkvæðisrétti presta við kjör samkvæmt
reglunum og gert er þegar um kirkjuþingskosningar er að ræða. Er það samkvæmt tillögu
nefndar sem skipuð var af Kirkjuráði á grundvelli samþykktar Kirkjuþings 2001 í 26. máli.
Er með sama hætti og þar lagt til að miðað sé við að ef leyfi standi lengur en eitt ár, skuli
afleysingapresturinn fara með atkvæðisrétt í stað þess sem í leyfi er.
25