Gerðir kirkjuþings - 2002, Side 32
VI. Önnur mál
Kjör til Kirkjuþings
Kosið var til Kirkjuþings í maímánuði s.l. Var í fyrsta skipti um að ræða kosningu á
grundvelli núgildandi starfsreglna, en m.a. reyndi í fyrsta skipti á tilnefningakerfi það sem
tekið var upp með setningu starfsreglna um Kirkjuþing. Kosningaþátttaka presta var 86,99%,
alls 127 prestar, af 146. Þátttaka leikmanna var 51,44% eða 555 leikmenn af 1079 sem voru
á kjörskrá. Nýir fulltrúar á Kirkjuþingi eru níu, konur á Kirkjuþingi eru samtals sex af 21
fulltrúa, þar af fimm nýjar. Vegna ijarveru Hallgríms Magnússonar sem fyrr er getið, tekur
sjöunda konan sæti á Kirkjuþingi.
Guðfræðideild - lektorsstaða
Kirkjuráð samþykkti í aprílmánuði 1999 að taka þátt í kostnaði við stöðu lektors í
litúrgískum fræðum við Guðfræðideild Háskóla Islands í tvö ár til reynslu og greiða 25% af
kostnaði. Lektor tók til starfa 1. febrúar árið 2000. Kirkjuráð samþykkti á fundi sínum í maí
2001 að halda áfram að taka þátt í kostnaði við stöðuna með óbreyttum hætti í eitt ár, eða til
31. desember 2002. Samkvæmt þessu var veittur styrkur til lektorsstöðunnar í tvö ár og ellefu
mánuði. Lögð var fram greinargerð til Kirkjuráðs um reynsluna af lektorsstöðunni í
litúrgískum fræðum og fylgir hún hér með í gögnum til Kirkjuþings 2002, en þar er mælt
með áframhaldandi samstarfi. Kirkjuráð samþykkti á fundi sínum í september s.l. að
framlengja samninginn við Guðfræðideild til næstu þriggja ára.
Auðunarstofa á Hólum
Auðunarstofa var opnuð við hátíðlega athöfn sl. sumar. Undirritað hefur verið samkomulag
milli Kirkjuráðs og Hólanefndar um afnot vígslubiskupsembættisins á Hólum af hluta
Auðunarstofu en þar verður starfsaðstaða embættisins. Auðunarstofa er eign Hóladómkirkju.
Samkomulagið fylgir.
Pílagrím aprestur
Erindi barst ffá biskupafundi vegna 30. máls Kirkjuþings 2000 um pílagrímaprest o.fl.
Kirkjuráð samþykkti að þetta yrði tilraunaverkefni í eitt ár. Verkefnið mun verða kynnt
prestum síðar.
Fasteignaumsýsla
Umfangsmiklar utanhússviðgerðir fóru fram á Kirkjuhúsinu að Laugavegi 31, Reykjavík,
síðastliðið sumar. Var þar um að ræða steypuviðgerðir auk málun húss og glugga. Verkefnið
var boðið út og stóðst lægsta tilboð kostnaðaráætlun um hina verklegu ffamkvæmd. Verður
að telja ástand Kirkjuhússins mjög gott í dag.
Þá þykir nauðsynlegt að breyta inngangi í húsið af öryggisástæðum þannig að gestir gefí sig
fram við afgreiðslu.
Búið er að ganga frá lóðarréttindum baklóðar Kirkjuhússins. Verið er að ganga ffá
eignaskiptasamningi eigenda Vatnsstígs 3, Reykjavík, þar sem Hjálparstarf kirkjunnar er til
húsa.
Nýtt skjalavistunarkerýi á Biskupsstofu
Tekið hefur verið upp nýtt tölvuskjalavistunarkerfi á Biskupsstofu. Um er að ræða fullkomið
og öflugt kerfi sem leysir eldra kerfl af hólmi. Kerfið mun m.a. fela það í sér að auðveldara
verður fyrir starfsmenn að flnna gögn og pappírsnotkun getur minnkað. Öryggi gagna mun
28