Gerðir kirkjuþings - 2002, Page 42
Ekki þykir rétt að setja fram nýjar heilsteyptar reglur um prestssetursjarðir, fyrr en ljóst er,
hvað af þeim breytingum sem eru í þessu frumvarpi, ná frarn á Alþingi.
Þó er stjómin með tillögur til Kirkjuþings um breytingar á starfsreglum sjóðsins varðandi
þessi mál til lausnar á því sem brýnast má teljast. Efhisþættir þeirra eru um að þau verðmæti
sem eðli máls fylgja jörðum í ábúð og gætu hugsanlega gengið kaupum og sölum en em ekki
inn í fasteignamati, komi inn í stofn til útreiknings afgjalds, en ef ekki þá gangi þau undan
ábúðar- / leigusamningi.
Lokaorð
Að lokum er rétt að ítreka það sem sagt hefur verið í fýrri skýrslum, um að full þörf sé á
framlagi frá “eigendum” sjóðsins til þess að hann geti staðið við skyldur sínar og að gengið
sé frá með skýmm hætti eignarhaldi prestssetra milli ríkis og kirkju.
Reykjavík 1. okt. 2002
f.h. stjómar Prestssetrasjóðs, Bjami Kr. Grímsson, formaður
f.h. Prestssetrasjóðs, Höskuldur Sveinsson, framkvæmdastjóri
Að tillögu fjárhagsnefndar samþykkir Kirkjuþing eftirfarandi
Ályktun
A. Um reikninga og eignir.
Kirkjuþing samþykkir endurskoðaðan ársreikning Prestssetrasjóðs fýrir árið 2001.
Kirkjuþing samþykkir meðfýlgjandi íjárhagsáætlun Prestssetrasjóðs fýrir árið 2003.
B. Um önnur málefni Prestssetrasjóðs
Kirkjuþing þakkar skýrslu stjómar þar sem fram kemur m.a. að þrátt fýrir erfiða
íjárhagsstöðu hefur tekist að ná umtalsverðum árangri í viðhaldi á prestssetmm. Jafnframt
hefnr rekstur sjóðsins verið með ágætum á síðasta ári og jákvæð afkoma í árslok.
Því miður hefur enn ekki náðst árangur í viðræðum ríkis og prestssetranefndar sem vonast
var til að myndi bæta fjárhagsstöðu sjóðsins. Enn á ný verður þó að vonast eftir að þessi
grýtta leið fari senn að taka enda. Þess er að vænta að þá batni hagur sjóðsins verulega svo
hraðar gangi í framkvæmdum við viðhald prestssetra.
Vegna hugmynda um þjóðgarð norðan Vatnajökuls þá er ljóst að þar kemur land
Valþjófsstaðar mjög inn í myndina og því nauðsynlegt að stjóm sjóðsins verði með í ráðum
frá upphafi.
Unnið verði áfram eftir fyrirliggjandi viðmiðunarreglum um meðferð greiðslumarks í
sauðfjárbúskap með það að markmiði að innkalla allan fullvirðisrétt og verði hann til
ráðstöfunar milli prestssetranna eftir því hvað skynsamlegast þykir á hverjum tíma.
Kirkjuþingi er ljóst að á næstunni þarf að taka ákvörðun um sölu nokkurra þeirra prestssetra
sem ekki em setin vegna breytinga sem hafa átt sér stað á prestakallaskipan.
Rétt þykir að fresta til næsta Kirkjuþings ákvörðun hér um en þá verði jafnframt lagðar fýrir
þingið tillögur um hvaða eignir verði seldar og hvaða aflögð prestssetur sé æskilegt að verði
eign Þjóðkirkjunnar til frambúðar. Einnig verði þar gerðar tillögur um meðferð og
vörsluaðila slíkra eigna. Kirkjuráð og stjóm sjóðsins skulu vinna saman að þessu máli.
38