Gerðir kirkjuþings - 2002, Blaðsíða 44
•Bætur á áföllnum umsýslukostnaði Prestssetrasjóðs, sem kirkjumálaráðuneytið losnaði við
árið 1994 án þess að nokkur greiðsla kæmi fyrir og leiðrétting til frambúðar en sá kostnaður
nam, skv. reikn. 2001, kr. 15 millj.
•Greiðsla skuldbindinga vegna kaupa og bygginga á prestssetrum, sem kirkjumálaráðuneytið
hafði samþykkt fyrir afhendinguna 1994.
•Afhending Þingvalla án þess að boðin væri nokkur úrlausn fyrir prestssetrið þar. Til
samanburðar má nefna, að nýlega greiddi ríkið kr. 200 millj. til að fá forræði á lélegri
húseign þar.
•Afsal á rétti til bóta fýrir allar þær eignir sem gengið höfðu undan prestssetrum og því sem
þeim bar á vörslutíma ríkisins.
Þegar prestssetranefnd var skipuð á Kirkjuþingi 1999 höfðu viðræður um þetta mál, í
framhaldi af samningunum um kirkjujarðir árið 1997, ekki borið árangur.
Því miður hefur nefndinni ekki heldur tekist að ná þeim samningum, sem hún telur
viðunandi, eins og henni var falið og mikil vinna hefur verið lögð í.
Þegar nefndin skilar þessari niðurstöðu til Kirkjuþings, hlýtur þingið að verða að íhuga vel,
hvemig vænlegast verði að halda þessum viðræðum áfram, en nauðsynlegt er að ná þar
sanngjamri niðurstöðu eins fljótt og kostur er.
Að tillögu fjárhagsnefndar samþykkti Kirkjuþing eftirfarandi
Ályktun
Kirkjuþing 2002 þakkar skýrslu Prestssetranefndar og þann gmnn að samningi sem hún
hefur lagt til samkomulags við ríkið og áréttar fýrri samþykktir Kirkjuþinga um stuðning við
málsmeðferð nefndarinnar.
Kirkjuþing 2002 væntir þess að samningsgerð við ríkið um eignar og réttarstöðu kirkjunnar,
sem hafa staðið yfir frá 1982, ljúki á þessu ári.
Kirkjuþing 2002 samþykkir að tilnefnd sé fjögurra manna samninganefnd Þjóðkirkjunnar til
að ljúka samningum á þeim forsendum sem Prestssetranefnd hefur sett fram.
Nefndina skipi fulltrúar tilnefndir af biskupi íslands, Kirkjuþingi, Kirkjuráði og stjóm
Prestssetrasjóðs. Fulltrúi biskups er jafnframt formaður. Framkvæmdastjóri Kirkjuráðs verði
starfsmaður nefndarinnar.
Umboð samninganefndarinnar stendur til næsta Kirkjuþings.
40