Gerðir kirkjuþings - 2002, Blaðsíða 80
Fyrirspurnir
1. Fyrirspurn frá séra Kristjáni BjÖrnssyni til dóms- og kirkjumálaráðherra
Spurt er um yfirlit yfir alla þá skerðingu, sem orðið hefur á skilum ríkisjóðs á sóknargjöldum
til safnaða Þjóðkirkjunnar, á skilum kirkjugarðsgjalda og á framlagi í Jöfounarsjóð sókna
síðan núverandi fyrirkomulag á meðferð sóknargjalda var tekið upp með lögum og
reglugerðum árið 1987 samhliða lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda.
Spurt er um núvirði slíkrar skerðingar, framreiknað eftir því sem unnt er, frá þeim tíma að
skerðingin hófst og til þessa, auk þess sem spurt er um alla tímabundna skerðingu á skilum
ofangreindra gjalda og framlaga á þessu tímabili.
Svar Hjalta Zóphóníassonar
Snemma í vikunni hafði fyrirspyrjandinn samband við mig og lýsti því að hann mundi bera
fram fyrirspum af svona toga. Ég sá þá strax að þetta mundi verða býsna umfangsmikið verk
og bað hann frekar að flýta því ef hann gæti, og í fyrradag strax um morguninn lá
fýrirspumin fýrir af hans hálfú. Við í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu höfum ekki
upplýsingar um þetta allt þannig að hún var framsend, fýrirspumin, til fjármálaráðherra.
Þaðan bámst þau svör að þetta tæki töluvert langan tíma í úrvinnslu og það væri eiginlega
borin von að þetta næði fýrir tímann hér í morgun. Sú varð raunin á að þetta svar er ekki
tilbúið en því verður lokið og því verður skilað hingað til Kirkjuþings. Ég býst við að best
færi á því bara að þessu yrði dreift til manna eftir á, sent á hvem kirkjuþingsfulltrúa. Er það í
lagi?
2. Fyrirspurnir til biskups íslands
Frá séra Sighvati Karissyni
Ég sakna þess að Fræðslu- og þjónustudeild Þjóðkirkjunnar skuli ekki enn hafa efot að
standa við endurmenntun og þjálfon starfsfólks Þjóðkirkjunnar í vímuefoamálum.
Hvenær er þess að vænta að Fræðslu- og þjónustudeild Þjóðkirkjunnar ýti þessu mikilvæga
verkefni úr vör?
Hvað líður endurskoðun á Handbók íslensku Þjóðkirkjunnar?
Frá séra Guðjóni Skarphéðinssyni
Em uppi nokkur áform hjá Biskupi íslands um að sækja til Kristnihátíðarsjóðs um útgáfo á
riti um kirkjur landsins, eða einhver þau öndvegisrit kristninnar í landinu sem ófáanleg em
nú um stundir?
Hefor Þjóðkirkjan nokkrar áætlanir um viðræður við fríkirkjumar í landinu með sameiningu
fýrir augum?
I eldri samþykktum kirkjuþings ber starfsmannahandbók oft á góma.
Hvað líður því máli?
Hvað varð um þjóðmálanefod sem eitt sinn starfaði og gaf út ritlinga?
76