Gerðir kirkjuþings - 2007, Blaðsíða 41
Gerðir Kirkjuþings 2007
2. mál - Fjármál Þjóðkirkjunnar
Flutt af Kirkjuráði
Frsm. Jóhann E. Bjömsson
Helstu þœttir til umrœðu og ályktunar
Heildartekjur Þjóðkirkjunnar árið 2008 eru áætlaðar 4.198,4 m.kr. að frádregnum 69,1
m.kr. sértekjum sem kirkjunni er ætlað að afla. Greiðslur vegna kirkjugarða árið 2008
em áætlaðar 820,1 m.kr. Áætlaðar tekjur Þjóðkirkjunnar hækka um 285 m.kr. milli
áranna 2007 og 2008 en hækkunin er 317,8 m. kr. ef greiðslur til kirkjugarða eru
taldar með.
Sérframlag til Hallgrímskirkju að fjárhæð 12,4 m.kr. er önnur greiðsla vegna
viðgerða á tumi sem veitt er í sex ár eða samtals um 74 m.kr. 5,4 m.kr. em vegna
annars stofnkostnaðar og er heildarframlag til Hallgrímskirkju 17,8 m.kr.
Heildarkostnaður tumviðgerðar er áætlaður um 222 m.kr. og gengið er út frá að ríki,
Reykjavíkurborg og Þjóðkirkjan styrki framkvæmdina að jöfnu.
Stofnkostnaðarframlag til Skálholts er 11,4 m.kr. og hækkar um 0,6 m.kr. frá
fyrra ári. Þar af em 6 m.kr. sem er önnur greiðsla sem veitt er í átta ár í samræmi við
ákvörðun ríkisstjómar um að styrkja nýbyggingu í Skálholti.
Tímabundið framlag til Dómkirkjunnar vegna breytingar á aðalinngangi
safnaðarheimilis að fjárhæð 3 m.kr. fellt niður og einnig 4 m.kr. til byggingar
aðstöðuhúss við Þingeyraklausturskirkju.
Á árinu 2007 hækka greiðslur vegna sóknargjalda og greiðslur í Jöfnunarsjóð
og Kirkjumálasjóð um 9,9% í samræmi við hækkun á meðaltekjuskattsstofni milli
tekjuáranna 2005 og 2006. Sóknargjald árið 2007 er 791 kr. á mánuði fyrir hvem
gjaldanda eldri en 16 ára. Gjaldendur 1. desember 2006 vom 193.681 og em því
sóknargjöld samtals er 1.838,4 m. kr. Greiðslur til kirkjugarða miðast við ijölda
greftrana næstliðins árs og stærð svæða í umhirðu kirkjugarða.
Skil sóknargjalda til Þjóðkirkjunnar 2008 hækka sem nemur 10,5% eða um
174,9 m.kr. frá fjárlögum 2007. Hækkunin er í samræmi við áætlaða hækkun á
meðaltekju-skattstofni einstaklinga í Þjóðkirkjunni 16 ára og eldri milli tekjuáranna
2006 og 2007. Hækkun vegna kirkjugarða nemur 4,2% eða 32,8 m.kr.
Biskupsstofa
í forsendum íjárlagafrumvarps fyrir árið 2008 er reiknað með að rekstrarútgjöld hækki
um 3,8% frá fyrra ári. Framlag til Biskups íslands er 1.431,8 m.kr. að frádregnum
sértekjum og hækkar um 6,3% milli ára.
í rekstraráætlun Þjóðkirkjunnar fyrir árið 2006 var gert ráð fyrir að halli yrði
um 6,3 m.kr. og var þá reiknað með að afgangur fjárheimildar frá árinu 2005 mætti
tapinu. Reyndin var að halli á rekstri var um 12,6 m.kr. Áætlaðar tekjur voru hærri
sem nemur 2,7% en áætluð gjöld hærri sem nemur 4,4%. Skýrist það að mestu að
Kjararáð úrskurðaði 19. desember 2006 um launahækkun til presta aftur í tímann og
ekki náðist að samþykkja fjárauka vegna útgjaldanna. Launabætur vegna ársins 2006
koma því inn á fjárlagalið ársins 2007. Áætlun ársins 2007 gerir ráð fyrir að reksturinn
verði hallalaus. Rekstraráætlun ársins 2008 er enn í vinnslu.
Kostnaðarhlutdeild sjóða og stofnana í skrifstofurekstri Biskupsstofu var
hækkað nokkuð árið 2007 og miðast við 5% af framlögum til þeirra á fjárlögum.
Heildarfjárhæð kostnaðarhlutdeildar verður um 42 m.kr.árið 2008.
39