Gerðir kirkjuþings - 2007, Blaðsíða 20

Gerðir kirkjuþings - 2007, Blaðsíða 20
Gerðir Kirkjuþings 2007 fund Kirkjuráðs í janúar 2007 til að ræða málefni Tónskólans. Hörður Áskelsson, söngmálastjóri, var viðstaddur. Þá mættu Bjöm Steinar Sólbergsson og Hörður Áskelsson aftur á fund ráðsins í júnímánuði. Framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar, Jónas Þórisson, kom á fund Kirkjuráðs í ágúst 2006 til að ræða málefni Hjálparstarfsins og þakkaði m.a. sérstaklega fyrir stuðning Kirkjuþings og Kirkjuráðs við starfsemi Hjálparstarfsins. Árbók kirkjunnar Skýrslur kirkjulegra stofnana og nefnda birtast í Árbók kirkjunnar sem nær yfir tímabilið frá 1. júní 2006 til 31. maí 2007. Árbókin var send þingfulltrúum eftir að hún kom út og geta þeir kynnt sér skýrslumar og annað ítarefni í henni. Starfshópar Kirkjuráðs Að afloknu Kirkjuþingi 2006 vom starfshópar Kirkjuráðs, sem veita ráðinu ráðgjöf og leiðbeiningar við úrlausnir mála, skipaðir að nýju. I hverjum hópi er einn eða tveir kirkjuráðsmenn, formaður samsvarandi þingnefndar Kirkjuþings og einn tilnefndur af Biskupi íslands. Fjármálahópur Kirkjuráðs sem tengist fjárhagsnefnd Kirkjuþings er skipaður kirkjuráðsmönnunum sr. Halldóri Gunnarssyni og Jóhanni E. Bjömssyni, Einari Karli Haraldssyni, formanni fjárhagsnefndar Kirkjuþings og fulltrúi Biskups íslands er fjármálastjóri Biskupsstofu, Sigríður Dögg Geirsdóttir. Fjármálahópurinn hefur að venju fjallað um fjármál kirkjunnar, einstakm sókna og kirkjulegra stofnana. Hópurinn hefur lagt fram tillögur til Kirkjuráðs um úrlausnir mála og unnið að málum samkvæmt samþykktum Kirkjuráðs. Fjármálahópurinn hefur einnig farið yfir ársreikninga ársins 2006 fyrir Jöfnunarsjóð sókna, Kirkjumálasjóð, Kristnisjóð, Kynningar-, útgáfu- og fræðslusjóðs og Biskupsstofu. Enn fremur hefur hópurinn farið yfir fjárhagsáætlanir sömu aðila og skilað Kirkjuráði áliti sínu. Þá undirbjó hópurinn m.a. úrlausnir Kirkjuráðs vegna ábendinga sem fram komu í 2. máli Kirkjuþings 2006 og nánar er fjallað um í skýrslu þessari síðar. Kirkjustarfshópur Kirkjuráðs sem tengist allsherjamefnd Kirkjuþings er skipaður kirkjuráðsmanninum Sigríði M. Jóhannsdóttur, formanni allsherjæmefndar Kirkjuþings, sr. Guðlaugu Helgu Ásgeirsdóttur formanni allsherjarnefndar Kirkjuþings og fulltrúi Biskups íslands er verkefnisstjóri fræðslumála á Biskupsstofu sr. Halldór Reynisson. Kirkjustarfshópurinn hefur íjallað um tiltekin mál er varða hið almenna kirkjustarf og fór m.a. yfir tillögur nefndar sem skipuð var til að semja tillögur að starfsreglum um þjóðmálanefnd. Lagahópur Kirkjuráðs er skipaður kirkjuráðsmanninum sr. Kristjáni Bjömssyni, formanni löggjafamefndar Kirkjuþings sr. Þorbirni Hlyni Ámasyni og fulltrúi Biskups íslands er framkvæmdastjóri Kirkjuráðs, Guðmundur Þór Guðmundsson. Lagahópurinn, ásamt forseta Kirkjuþings samdi skv. ákvörðun Kirkjuráðs, þingsályktunartillögu að endurskoðun laga nr. 78/1997 um stöðu, stjóm og starfshætti þjóðkirkjunnar, 7. mál Kirkjuþings 2007, sjá umfjöllun síðar í skýrslu þessari. Lagahópurinn vann tillögur að nauðsynlegum breytingum á starfsreglum vegna þeirna breytinga sem urðu á þjóðkirkjulögunum, við gildistöku laga nr. 82/2007 sem breyttu þeim lögum, einkum vegna þeirrar breytingar að Biskup Islands skipar nú alla presta þjóðkirkjunnar í embætti. Sú breyting grundvallast á samþykktum Kirkjuþings 2006 um löggjafarmálefni, sbr. síðar í skýrslunni. Enn fremur fjallaði lagahópurinn ítarlega 18
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82

x

Gerðir kirkjuþings

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.