Gerðir kirkjuþings - 2007, Blaðsíða 52
Gerðir Kirkjuþings 2007
6. mál - Starfsreglur um breyting á ýmsum starfsreglum
Flutt af Kirkjuráði
Frsm. Guðmundur Þór Guðmundsson
Starfsreglur um úrskurðarnefnd og áfrýjunarnefnd Þjóðkirkjunnar nr. 730/1998
1. gr.
Starfsreglur um úrskurðamefnd og áfrýjunamefnd Þjóðkii'kjunnar nr. 730/1998
breytast svo:
19. gr. orðast svo: Málsaðilar bera sjálfir kostnað sinn vegna meðferðar máls fyrir
úrskurðamefnd. Kirkjumálasjóður greiðir að jafnaði kostnað við störf
úrskurðamefndar, sbr. 35. gr. Heimilt er þó nefndinni að ákveða að annar eða báðir
málsaðilar greiði kostnaðinn.
34. gr. orðast svo: Málsaðilar greiða að jafnaði allan kostnað við störf
áfrýjunamefndar. Nefndin getur þó ákveðið að fella málskostnaðinn að hluta til eða
öllu leyti á annan málsaðila. Ef telja má sanngjamt og eðlilegt, eða þyki hagsmunir
þeir sem til úrlausnar em svo mikilvægir eða hafa umtalsverða almenna þýðingu að
mati áfrýjunamefndar, getur nefndin ákveðið að kirkjumálasjóður greiði allan
málskostnað.
í 35. gr. falla brott orðin “kjör til kirkjuþings”.
Starfsreglur um sóknarnefndir nr. 732/1998
2. gr.
Starfsreglur um sóknarnefndir nr. 732/1998 breytast svo:
5. tl. 3. mgr. 3. gr. orðast svo: Að sjá til þess að skráðir kirkjugripir og minningamörk
séu verndaðir skv. ákvæðum þjóðminjalaga.
Starfsreglur mn presta nr.735/1998
3. gr.
Starfsreglur um presta nr. 735/1998 breytast svo:
I 25. gr. falla brott orðin “og þingsköp”.
31. gr. orðast svo: Biskup skipar í embætti héraðsprests að fenginni umsögn
héraðsnefndar um hæfni umsækjenda. Við mat á hæfni umsækjenda skal nefndin hafa
til hliðsjónar ákvæði um val á prestum í starfsreglum um presta.
Starfsreglur um meðferð kynferðisbrota innan íslensku þjóðkirkjunnar nr.
739/1998
4. gr. Starfsreglur um meðferð kynferðisbrota innan íslensku þjóðkirkjunnar nr.
739/1998 breytast svo:
5. gr. orðast svo:
Talsmaður, að jafnaði kona, skal uppfylla eftirtalin skilyrði:
hafa reynslu af því að vinna með þolendum kynferðisbrota-
hafa háskólamenntun sem getur nýst við verkefnið, s.s. djáknanám, félagsráðgjöf,
guðfræði, hjúkxunarfræði, læknisfræði, lögfræði eða sálfræði hafa hlotið þjálfun á
vegum kirkjunnar, sbr. 3.gr. Æskilegt er að talsmaður gegni ekki öðrum störfum innan
kirkjunnar. Heimilt er biskupi að víkja frá ofangreindum skilyrðum ef ógerlegt reynist
að uppfylla þau. í 1. mgr. 9. gr. komi í stað “Kristnisjóði” orðið kirkjumálasjóði og í
2. mgr. 9. gr. komi í stað “Kristnisjóð” orðið kirkjumálasjóð.
50