Gerðir kirkjuþings - 2007, Blaðsíða 29
Gerðir Kirkjuþings 2007
Mál lögðfram á Kirkjuþingi 2007
1. mál Kirkjuþings 2007. Skýrsla Kirkjuráðs ásamt greinargerðum, skýrslum og
öðrum fylgigögnum.
Skýrsla þessi er lögð fram á Kirkjuþingi 2007 skv. starfsreglum um Kirkjuráð nr.
817/2000. Að venju er vísað til Árbókar kirkjunnar þar sem er að finna fróðlegar og
gagnlegar skýrslur um kirkjustarfið.
2. mál Kirkjuþings 2007. Fjármál Þjóðkirkjunnar
Að venju eru fjármál Þjóðkirkjunnar lögð fram á Kirkjuþingi. Framsetning er með
hefðbundnum hætti. Reikningar stofnana og sjóða vegna ársins 2006 eru aðgengilegir
á Kirkjuþingi fyrir alla kirkjuþingsfulltrúa. Útdráttur úr helstu ársreikningum er í
Árbók kirkjunnar og einnig er það birt í málinu.
3. mál Kirkjuþings 2007. Tillaga að starfsreglum skipulag kirkjunnar í héraði.
Biskup íslands flytur málið. Lagt er til að núgildandi starfsreglur um skipulag
kirkjunnar í héraði nr. 731/1998 verði endurútgefnar í heild sinni. Er það vegna þeirra
mörgu breytinga sem gerðar hafa verið á bálki þessum síðan hann var upphaflega
settur 1998. Verða reglumar aðgengilegri, einfaldari og skýrari fýrir vikið. Þá er lagt
til að Mælifells- og Miklabæjarprestaköll, Skagafjarðarprófastsdæmi verði sameinuð.
Rétt þykir að vekja sérstaka athygli á tillögu um sameiningu allra fjögurra
sókna Möðruvallaprestakalls, Eyjafjarðarprófastsdæmi í eina sókn. Var sá háttur
hafður á að auk kosningar nýrrar sóknarnefndar sameinaðrar sóknar, var ákveðið að
leggja til á safnaðarfundi sameinaðrar sóknar, samþykki Kirkjuþing tillöguna, að heiti
allra kirkna prestakallsins verði óbreytt og að sérstakar kirkjunefndir verði starfandi
um þær kirkjur sem ekki verða sóknarkirkja.
Fmmkvæði að þessari breytingartillögu er frá heimamönnum komið. Kirkjuráð
vill vekja sérstaka athygli á þessu framtaki þar sem þetta gæti verið athyglisvert
fordæmi fýrir aðrar sóknir, en umræða um sameiningu sókna innan prestakalla hefur
verið töluverð á undanförnum ámm.
4. mál Kirkjuþings 2007. Tillaga að starfsreglum um hreyting á starfsreglum um
presta nr. 735/1998.
Tillaga þessi er flutt vegna þeirra breytinga sem urðu á lögum um stöðu* stjóm og
starfshætti Þjóðkirkjunnar nr. 78/1997, þann 1. júní 2007 um að skipun sóknarpresta
verði á hendi biskups íslands og sem rakið er nánar í kafla skýrslu þessarar um lög og
reglur. Meginatriði málsins em þau að lagt er til að skipan valnefnda prestakalla
breytist á þann veg að vígslubiskupar hverfi úr nefndinni, í ljósi þess að biskup skipar
sóknarpresta eftirleiðis. Hlutaðeigandi prófastur verður formaður nefndarinnar þess í
stað. Jafnframt er gert ráð fyrir því að valnefnd geti ákveðið hvaða umsækjendur boða
skal í viðtal í stað núgildandi starfsreglna þar sem boða skal alla.
5. mál Kirkjuþings 2007. Tillaga að starfsreglum um þjóðmálanefnd.
Kirkjuráð flytur mál þetta á grundvelli samþykktar Kirkjuþings 2006 þar sem
Kirkjuráði var falið að undirbúa stofnun málefna- og siðfræðiráðs Þjóðkirkjunnar, sem
hefði það hlutverk að styrkja fræðilegan gmnn fyrir þátttöku leikra og lærðra innan
Þjóðkirkjunnar í umræðum á opinbemm vettvangi um helstu álitamál samtímans.
Kirkjuráð skipaði kirkjuþingsmennina Einar Karl Haraldsson, sem jafnfram var
formaður, Kristínu Magnúsdóttur og einnig sr. Baldur Kristjánsson, sóknarprest í
Þorlákshöfn í nefnd sem hefði það verkefni að gera tillögur um hlutverk, skipan og
27