Gerðir kirkjuþings - 2007, Blaðsíða 38

Gerðir kirkjuþings - 2007, Blaðsíða 38
Gerðir Kirkjuþings 2007 Nefndarálit Á fund allsherjamefndar komu Guðmundur Þór Guðmundsson framkvæmdastjóri Kirkjuráðs, sr. Jón Aðalsteinn Baldvinsson vígslubiskup, sr. Svavar Stefánsson sóknarprestur, sr. Þorgrímur Daníelsson sóknarprestur og sr. Þorvaldur Karl Helgason biskupsritari. Allsherjarnefnd þakkar breytta uppsetningu á skýrslunni þar sem framsetning hennar er gleggri og aðgengilegri fyrir kirkjuþingsfulltrúa en áður. Ljóst er að mikil vinna Kirkjuráðs og starfsmanna þess liggur að baki skýrslunni og endurspeglai' það mikla starf sem fram fer í Þjóðkirkjunni. Allsherjarnefnd lýsir ánægju með Árbók kirkjunnar 2006. Gefur hún greinargott yfrrlit um fjölþætt starf Þjóðkirkjunnar heima og erlendis. Árbókin er mikilvæg handbók um starf kirkjunnar og hvetur nefndin sóknamefndir og staifsfólk til að nýta sér hana. Miklu skiptir að allir taki höndum saman um kynningu á starfi kirkjunnar. í ræðu sinni fagnaði biskup íslands þeim tímamótaviðburði að út er komin ný þýðing Biblíunnar. Allsherjarnefnd tekur undir orð biskups um að útgáfa Biblíu 21. aldarinnar er áskomn fyrir hirða, kennimenn og sóknir kirkjunnar að nýta þau tækifæri sem þar gefast. Biblíuútgáfan er líka hvatning til okkar allra á vettvangi kirkjunnar að sækja fram fyrir hönd íslenskrar tungu. Biskup ræddi um kirkjulöggjöfina 1907 sem markaði djúp spor í sögu og þróun kirkjunnar á 20. öld og hefur mótað lagaumgjörð kirkjunnar til þessa dags. I ár eru 75 ár liðin frá því að Kirkjuráð tók til starfa og á næsta ári em 50 ár frá stofnun Kirkjuþings. Allsherjarnefnd tekur undir að ástæða er til að minnast allra þessai'a tímamóta. Allsherjarnefnd er sammála orðum biskups um að Þjóðkirkjan verði að rækja alvarlegar en nokkru sinni fyrr hlutverk sitt og skyldu að miðla trúararfinum til komandi kynslóða. Á næsta ári verða átta aldir liðnar frá dauða sálmaskáldsins Kolbeins Tumasonar, sem orti elsta sálm Norðurlanda „Heyr himnasmiður“. Allsherjamefnd tekur undir orð biskups að minnast þurfi þessa með því að vekja áhuga á sálmasöng og hvetja til nýsköpunar í sálmagerð. Allsherjarnefnd tekur undir orð forseta Kirkjuþings um að Þjóðkirkjan sé sjálfstæð stofnun, sjálfstæður réttaraðili sem ber réttindi og skyldur að lögum, en ekki rílciskirkja eins og á stundum er haldið fram í fjölmiðlum. Allsherjarnefnd minnir á orð forseta að mikilvægt sé að ná sátt um samvist einstaklinga af sama kyni og aðkomu Þjóðkirkjunnar og tekur undir þau orð að: „I sáttargjörð felst það vitaskuld að hvor aðili er fullsæmdur af sínum hlut, þótt hann fái ekki öllu sínu framgengt.“ Þá tekur allsherjamefnd undir orð forseta Kirkjuþings að samskilningur þurfi að vera milli ríkis og kirkju í þessu viðkvæma máli og að Þjóðkirkjan verði vegna stöðu sinnar í samfélaginu og samkvæmt stjórnarskrá að hafa forgöngu um að svo megi verða. Bjöm Bjamason, dóms- og kirkjumálaráðherra, fagnaði þeimi tillögu sem liggur fyrir Kirkjuþingi um að skipuð verði nefnd til að endurskoða löggjöf um Þjóðkirkjuna frá 1997. Allsherjarnefnd bendir á þau orð kirkjumálaráðherra að það sé rökrétt þróun í samskiptum ríkis og kirkju að enn sé skerpt á sjálfstæði kirkjunnar með hugsanlegri breytingu á stöðu hennar innan stjórnarráðsins. Þann 20. október 2006 var gert samkomulag milli ríkis og Þjóðkirkju um prestssetur og afhendingu þeirra til Þjóðkirkjunnar. Kirkjuþing 2006 samþykkti 36
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82

x

Gerðir kirkjuþings

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.