Gerðir kirkjuþings - 2007, Blaðsíða 10
Gerðir Kirkjuþings 2007
menningarlegum og andlegum víddum. Við ættum sannarlega að hafa efni á að rækta
og viðhalda andlegri velferð.
Kirkjan á þama ekki lítinn hlut að máli. Nú er svo komið að Þjóðkirkjan
verður fara að taka enn alvarlegar en nokkru sinni hlutverk sitt og skyldu að miðla
arfmum til komandi kynslóða. Með auknum stuðningi við trúaruppeldi heimilanna,
með aukinni áherslu á barnastarf og unglingastarf, og umfram allt í reglubundnu
samfélagi helgihaldsins, samfundinum við heilagan, góðan Guð. Þar er til staðar
samfélag, og öryggi og veganesti og leiðsögn.
Bama- og æskulýðsstarf kirkjunnar og fermingar'störfin verða að komast ofar á
forgangslista safnaðanna. Ég brýni það alvarlega fyrir ykkur, leiðtogar og
forystumenn kirkjunnar að taka á því af alvöru. Að efla og nýta enn betur þau tækifæri
sem við höfum til að koma grundvallaratriðum kristindómsins, trúai' og siðar, á
framfæri við vaxandi kynslóðir. Að nesta þær til lífsferðar. Gefa þeim kost á að læra
sögurnar, bænimar, sálmana, sem mynda gmnnstef trúai' og menningar og er
leiðarþráðurinn trausti.
„Heyr, himna smiður"
Á næsta ári verða átta aldir liðnar frá dauða Kolbeins Tumasonar. Sálmur hans,
„Heyr, himna smiður“ er elsti sálmur á Norðurlöndum, og einhver yndislegasti sálmur
kirkjunnar. Við þurfum að minnast þess á næsta ári og minna á sálmasönginn og lyfta
honum fram, finna leiðir til að vekja áhuga á þeim undursamlega fjársjóði sem við
eigum í sálmaarfi kirkjunnar, og hvetja skáld samtímans til að leggja í þann sjóð.
Á ferð okkar um Skaftafellsprófastsdæmi skoðuðum við hjónin Jöklasafnið á
Höfn í Homafirði. Stórmerkilegt safn sem veitir fágæta innsýn í töfraheima jökulsins.
Þar er til dæmis hægt að ganga inn í leikmynd sem er jökulsprungan. Þar er sögð
sagan af ungum mönnum sem vom í eftirleit á Breiðamerkurjökli árið 1936 og urðu
fyrir snjóflóði. Annar þeirra Sigurður Bjömsson, frá Kvískerjum, nítján ára að aldri,
sat fastskorðaður í snjóflóðinu, 28 metra inn undir jöklinum, í á annan sólai'hring og
hélt sér vakandi við að syngja sálma. Við fáum að heyra upptöku af sálmasöng hans
þarna inni í sprungunni. Hann fannst af því að sálmasöngurinn barst til
leitarmannanna. Kraftaverkasaga? Já, og vitnisburður um sálmaarfinn og veganestið
sem sá arfur var fyrri kynslóðum. Hvað mun ipod kynslóðin hafa til að fai'a með í
jökulsprungunum, snjóflóðunum, áföllum ævinnar? Það er gild spurning og áskorun
til okkar að leggja orð á tungu og hjörtu sem bera uppi í einsemdinni, hörmunginni,
áföllum, og í gleðinni og hamingjunni.
Mörg eru verkefnin sem okkar bíða, góðu systkin. Göngum til þeiina með
gleði, og vitund um þann góða Guð sem kallað hefur okkur til starfa. Og segjum með
Hallgrími:
„Verkin mín, Drottinn, þóknist þér,
þau láttu allvel takast mér,
ávaxtarsöm sé iðjan mín,
yfir mér hvíli blessun þín.“
Amen.
Göngum nú með gleði til góðra verka á Kirkjuþingi.
Friður Guðs sé með oss öllum.
8