Gerðir kirkjuþings - 2007, Blaðsíða 65
Gerðir Kirkjuþings 2007
Samningar um leigu eða önnur afnot af prestssetri til lengri tíma en fimm ára skulu
jafnan háðir samþykki Kirkjuráðs.
6. gr.
Stjóm prestssetra gerir fjárhagsáætlun fyrir hvert almannaksár í senn og leggur hana
fyrir Kirkjuráð til samþykktar. Stjóm prestssetra er heimilt að samþykkja eftirfarandi
útgjöld vegna prestssetra skv. fjárhagsramma sem Kirkjuráði setur fyrir hvert
almanaksár í senn:
Viðhald prestssetra.
Lögboðnar vátryggingar prestssetra.
Fasteignagjöld prestssetra.
Leigu fasteignar sem prestsseturs.
Annan rekstur prestssetranna sem greiðist ekki af presti.
Rekstur og umsýslu málaflokksins.
7. gr.
Tekjur Kirkjumálasjóðs af prestssetmm em sem hér segir:
a. Leigutekjur af prestssetrum.
b. Álag greitt af presti við úttekt samkvæmt lögbundinni úttekt við ábúðarlok hans ef
því er að skipta.
c. Hreinar tekjur af hlunnindum viðkomandi prestsseturs, sem samkomulag er gert
um.
d. Aðrar tekjur.
m. Kafli
Prestssetiir
8. gr.
Prestur er vörslumaður prestsseturs og ber ábyrgð á því ásamt stjóm prestssetra.
9. gr.
Kirkjumálasjóður greiðir kostnað vegna prestsseturs, svo sem vegna nýframkvæmda,
endurbóta og annan tilfallandi kostnað við prestssetrið, annan en þann sem prestur
greiðir.
10. gr.
Prestur hefur öll lögmæt og eðlileg afnot prestsseturs, meðan hann gegnir
prestsembætti. Prestur hefur umsjón með og nýtur arðs af prestssetri samkvæmt
samkomulagi við stjóm prestssetra. Prestur getur eigi ráðstafað prestssetri eða
réttindum sem því tengjast, þannig að það bindi stjómina og/eða þannig að ráðstöfun
gildi lengur en hann gegnir embætti sínu, án samþykkis stjómar og lögmæltra aðilja
hverju sinni. Prestur getur ekki, án samþykkis stjómar prestssetra, ráðstafað prestssetri
nema í samræmi við eðlileg og hefðbundin not þess. Alla samninga, sem fela í sér
varanlega skerðingu eða breytingu á prestssetri, ásýnd þess - eða viðbætur við
prestssetrið - gerir stjóm prestssetra, svo og löggeminga vegna réttinda sem
undanskilin kunna að vera afnotarétti prests.
Eignir og réttindi sem fylgja prestssetrum, en prestur óskar eftir að undanskilja
afnotarétti sínum eða þau sem tilgreind em með ákveðnum hætti að séu ekki inni í
gmnni til leigu, em í höndum stjómar prestssetra.
63