Gerðir kirkjuþings - 2007, Blaðsíða 19
Gerðir Kirkjuþings 2007
1. mál - Skýrsla Kirkjuráðs
Flutt af Kirkjuráði
Frsm. Karl Sigurbjörnsson
I. Inngangur
Nýtt Kirkjuráð var kjörið á Kirkjuþingi 2006, en kosið var til Kirkjuþings á fyrri hluta
árs 2006. Kosið var eftir nýjum starfsreglum um kjör til Kirkjuþings þar sem
fulltrúum var m.a. fjölgað úr 21 í 29 manns, 17 leikmenn og 12 vígðir þjónar. Forseti
Kirkjuþings til næstu fjögurra ára var kjörinn Pétur Kr. Hafstein, fyrrv.
hæstaréttardómari. Nánar er fjallað um störf Kirkjuþings í kafla skýrslu þessarar um
þingið.
Forseti Kirkjuráðs er lögum samkvæmt Biskup íslands, Karl Sigurbjörnsson.
Aðrir ráðsmenn voru endurkjörnir utan sr. Döllu Þórðardóttur, sem gaf ekki kost á sér
til Kirkjuþings þegar kosið var til þingsins 2006. Sr. Kristján Bjömsson, sóknarprestur
í Vestmannaeyjaprestakalli, Kjalamessprófastsdæmi, var kjörinn í hennar stað.
Kirkjuráð skipa því í dag auk Biskups Islands þau sr. Halldór Gunnarsson,
sóknarprestur í Holtsprestakalli, Rangárvallaprófastsdæmi, Jóhann E. Bjömsson,
fyrrv. forstjóri, Reykjavík og Sigríður M. Jóhannsdóttir, hverfisstjóri heimaþjónustu
Akureyrarbæjar, Akureyri. Framkvæmdastjóri Kirkjuráðs er Guðmundur Þór
Guðmundsson, lögfræðingur.
Skýrsla þessi er með aðeins breyttri uppsetningu frá því sem verið hefur og er
vonast til að framsetning sé gleggri og aðgengilegri fyrir kirkjuþingsfulltrúa.
Kirkjuráð hefur ákveðið að leitast við að draga úr skjalaumfangi á Kirkjuþingi og
verður meira gert af því að veita aðgang þeim þingfulltrúum sem það kjósa að
skjölum á skrifstofu Kirkjuþings.
H. Störf Kirkjuráðs
Kirlcjuráðsfundir
Kirkjuráð hefur haldið ellefu fundi frá setningu Kirkjuþings 2006. Fundimir vom
yfirleitt haldnir á Biskupsstofu. Auk kirkjuráðsmanna og framkvæmdastjóra sitja
fundi ráðsins, Ragnhildur Benediktsdóttir, skrifstofustjóri Biskupsstofu, Sigríður
Dögg Geirsdóttir, fjármálastjóri Biskupsstofu og Þorvaldur Karl Helgason,
biskupsritari, sem ritar fundargerð.
Forseti Kirkjuþings, Pétur Kr. Hafstein, hefur setið marga fundi Kirkjuráðs
þegar fjallað er um Kirkjuþing, framkvæmd samþykkta þess og undirbúning.
Forsætisnefnd Kirkjuþings, sem er skipuð forseta auk varaforseta þingsins, þeim
Margréti Bjömsdóttur og Ásbimi Jónssyni, kom á fund Kirkjuráðs í nóvembermánuði
2006 þegar farið var yfir samþykktir Kirkjuþings 2006. Þann fund sátu einnig
formenn fastanefnda Kirkjuþings þ.e. af hálfu allsheijamefndar sr. Guðlaug Helga
Ásgeirsdóttir, af hálfu fjárhagsnefndar, Einar Karl Haraldsson og af hálfu
löggjafamefndar sr. Þorbjöm HJynur Ámason. Auk þess sám fundinn
vígslubiskupamir sr. Sigurður Sigurðarson, Skálholti og sr. Jón A. Baldvinsson,
Hólum.
Hluti kirkjuráðsfundar í mars mánuði sl. var með próföstum á prófastafundi.
Þáverandi stjóm Tónskólans, þ.e. sr. Jón Helgi Þórarinsson, formaður, Kári Þormar,
organisti og Olöf Kolbrún Harðardóttir, söngkona svo og fyrrverandi skólastjóri,
Kristinn Öm Kristinsson og núverandi skólastjóri, Bjöm Steinar Sólbergsson, komu á
17