Gerðir kirkjuþings - 2007, Blaðsíða 79
Gerðir Kirkjuþings 2007
kristinnar trúar fái meira vægi í þjóðfélagsumræðu en verið hefur undanfarin ár.
Nefndinni er ætlað að vera biskupi íslands, Kirkjuráði og Kirkjuþingi til ráðgjafar um
samfélagsleg mál og siðferðileg álitaefni auk þess að stuðla að aukinni umræðu í
þjóðfélaginu út frá kristnum grunngildum og styrkja faglegan grunn fyrir þá umræðu.
Sérstaklega verður að ætla, að Kirkjuþing verði fyrir bragðið betur í stakk búið en
áður til að taka til umræðu og úrlausnar brýn málefni í samfélaginu, er varða siðfræði
og trúarvitund Islendinga.
Hið jákvæða ráði hugsun og orðum
Þá vil ég fagna sérstaklega þeirri skynsamlegu niðurstöðu, sem Kirkjuþing hefur
komist að um hlut Þjóðkirkjunnar að staðfestri samvist tveggja einstaklinga af sama
kyni, veiti löggjafinn trúfélögum eða starfsmönnum þeirra slíka vígsluheimild. Við
setningu Kirkjuþings lagði ég ríka áherslu á, að þingið yrði við þessar aðstæður að
bregðast við af yfirvegun og skynsemi og leita þeirrar sáttar, sem hver um sig gæti
verið fullsæmdur af, þótt hann fengi ekki öllu sínu framgengt. Mér er ljóst, að
kirkjuþingsfulltrúar hafa lagt sig mjög fram um að ná heilum sáttum í viðkvæmu
deilumáli, þar sem Þjóðkirkjan hefur ómaklega verið sökuð um fordóma. Hitt er
sönnu nær, að með niðurstöðu sinni í dag hefur Kirkjuþing sýnt í verki, eins og frekast
var kostur, að Þjóðkirkjan metur samkynhneigða að sjálfsögðu jafnt og aðra
einstaklinga og vill réttarstöðu þeirra sem besta, þótt skiptar skoðanir kunni að vera
um notkun orða og hugtaka. Kirkjan er nú opin fyrir þeirri leið, að samkynhneigðir
geti, rétt eins og aðrir, leitað til hennar og fengið þar staðfestingu vígslumanna á ætlun
sinni um samneyti og trúfesti og um leið þau borgaralegu réttindi, sem slíkri ákvörðun
fylgja. Það er hinn stóri sannleikur, sem við blasir. Ég brýni kirkjuþingsfulltrúa og
reyndar ekki síður alla presta Þjóðkirkjunnar, hvar í sveit sem þeir eru settir, til að láta
hið jákvæða við þessa ákvörðun ráða hugsun sinni og orðum og minnast þess jafnan í
starfi sínu fyrir kirkju og kristni, að engin keðja er sterkari en veikasti hlekkurinn.
Góðir þingfulltrúar.
Við lok Kirkjuþings vil ég þakka ykkur öllum ánægjulegar samverustundir á þessu
þingi og umfram allt vönduð vinnubrögð og málefnalegar umræður. Störf þingsins
gefa vissulega fyrirheit um gjöfult starf Þjóðkirkjunnar en til þess að svo megi reynast
þurfum við öll að fylgja þeim eftir af atorku og áhuga. Ég þakka öllu starfsfólki
þingsins ómetanlegt framlag, bæði þessa þingdaga og ekki síður allt starf í
undirbúningi og aðdraganda þingsins. Sóknarpresturinn í Grensáskirkju og allt það
góða starfsfólk, sem hefur leitast við að létta okkur lundina og störfin þessa þingdaga
með hlýlegu viðmóti og höfðinglegum veitingum, á miklar þakkir skildar. Ég óska
öllum kirkjuþingsmönnum og starfsmönnum þingsins góðrar heimferðar og
heimkomu og hlakka til frekara samstarfs og endurfunda við skyldustörf fyrir
Þjóðkirkjuna. Hafið öll heila þökk og gangi nú hver til sinna verka, sem við taka eftir
rúmhelga önn þessara þingdaga hér í Grensáskirkju.
Kirkjuþingi 2007 er slitið.
77