Gerðir kirkjuþings - 2007, Blaðsíða 66
Gerðir Kirkjuþings 2007
11. gr.
Prestur hefur umsjón með og kostar minniháttar lagfæringar á prestssetri skv.
ákvæðum húsaleigu- og ábúðarlaga.
12. gr.
Stjóm prestssetra ákveður hvemig umbúnaður á prestssetri er, vegna ferðaþjónustu,
fomminja, náttúmminja og annars þess háttar, sem lýtur að ytri ásýnd prestssetranna,
að því leyti sem lög og samningar mæla ekki á annan veg. Sé prestssetur leigt öðmm
en presti, semur stjómin um leigukjör við hlutaðeigandi. Presti er heimilt, með
samþykki stjómar prestssetra, að leigja prestssetur þriðja manni um skamma hríð, svo
sem t.d. meðan prestur er fjarverandi í námsleyfi. Skal þá litið svo á að prestur beri
fulla ábyrgð á prestssetrinu, eins og hann sæti það með venjulegum hætti.
13. gr.
Ef prestssetur er ekki setið af presti, vegna þess að prestakall er laust eða vegna
ákvörðunar biskups um slíka ráðstöfun sbr. ákvæði 42. gr. laga nr. 78/1997, fer stjóm
prestssetra með öll réttindi og skyldur sem prestssetrið varða. Stjórn prestssetra
ákveður hvemig prestssetrinu skuli ráðstafað og/eða um það sinnt. Þess skal ávallt
gætt að prestssetur sé laust til afnota íyrir prest, þegar hann tekur við embætti.
Ef prestssetur er ekki setið af presti til frambúðar eða um lengri tíma, m. a. vegna
sameiningar prestakalla, skal stjóm prestssetra afhenda Kirkjuráði vörslu og fyrirsvar
prestssetursins.
14. gr.
Prestssemr skal ávallt tekið út við skil prests á því.
Viðtakandi prestur á rétt á því að fá prestssetur tekið út í hendur sér ef 1. mgr. á ekki
við, svo sem ef prestssetur hefur ekki verið setið, eða ef um nýtt prestssetur er að
ræða.
Við úttekt á prestssetursjörðum skal fylgja ákvæðum ábúðarlaga.
Kostnaður við úttektir við ábúðarlok á prestssetursjörðum og við skil á prestsbústað
greiðist af stjóm prestssetra.
Stjómin ákveður hverju sinni hvort prestssetur skuh tekið út eftir endurbætur á því.
Að öðm leyti vísast til ákvæða starfsreglna um prófasta.
IV. Kafli
Heimildarskjöl
15. gr.
Stjóm prestssetra semur haldsbréf (byggingarbréf) fýrir hverja prestssetursjörð og
hvem prestsbústað. Haldsbréf ásamt reglum þessum skal liggja frammi á Biskupsstofu
og hjá próföstum til sýnis fyrir umsækjendur um prestsembætti þar sem prestssetur
fylgir.
A gmndvelli þessara skjala skal gerður samningur milli prests og stjómar prestssetra
um umráð og afnot prests af prestssetri.
Jafnframt skal presti greint frá áætlun um viðhald og framkvæmdir við prestssetrið.
16. gr.
Um stöðu prests og stjórnar prestssetra fer að öðm leyti eftir ákvæðum ábúðarlaga eða
húsaleigulaga, eins og við getur átt.
64