Gerðir kirkjuþings - 2007, Blaðsíða 9
Gerðir Kirkjuþings 2007
og leiðsögn í txú. Sömu kannanir sýna fram á að íslendingar almennt leggja mest upp
úr þeim gildum sem spretta af kristnum rótum, þar er manngæskan, fyrirgefningin og
kærleikurinn í fyrirrúmi. Til viðbótar hefur kirkjan fram að færa trúna og vonina, sem
eru grunngildi sem eiga sér þrátt fyrir allt bandamann í hjarta flestra Islendinga.
Sameiginlegri guðsþjónusta safnaðarins er ætlað að minna okkur á, eins og segir í
útgöngubæninni góðu: „hveiju ég á að trúa, hvemig ég á að breyta og hvers ég má
vona.“
Mikilvægt er að styrkja safnaðarsálgæsluna, bæði hina einslegu, og ekki síður
hina almennu. Og að rækta snertifletina við þjóðina. Svo þurfum við að vera dugleg
við að miðla efni um trúarlíf og hinar djúpu og miðlægu tilvistarspumingar. Og nota
til þess alla þá farvegu boðmiðlunar sem tiltækir em. Við getum glaðst yfrr því hve
vefur kirkjunnar hefur þroskast vel og trú.is er dýrmætur farvegur. Þama em
vaxtarsprotar í boðuninni sem hlynna þarf að.
Sýnileiki og skýrleiki er kirkjunni lífsnauðsyn. Jafnframt því sem kirkjan
leggur áherslu á að næra trú einstaklingsins og styðja fólk á vegi trúarinnar í
nærsamfélaginu, þá verður Þjóðkirkjan að leggja áherslu á að hafa mótandi áhrif á
hinu opinbera sviði, uppeldi og menningu þjóðarinnar gegnum þá farvegu og torg sem
tiltæk eru, fjölmiðla, stofnanir, félagsamtök, að eiga fmmkvæði til góðra verka og
góðra hugmynda um það sem bæta má og efla lífið, samfélag og menningu.
Andleg heilsurcekt - andleg velferð
Eg minni á áhersluþátt stefnumótunar kirkjunnar í ár, sem er samstarf. Þar em margir
sem hafa gott og uppbyggilegt fram að færa. Við eigum að leita samstarfs við þá og
allt góðviljað fólk og alla þá góðu krafta sem vilja vinna að mótun hins góða lífs, hins
góða samfélags í landinu okkar. Kirkjan hefur þar nokkuð fram að færa sem er
einstætt og ómetanlegt og enginn annar hefur upp á að bjóða: Fagnaðarerindið um náð
Guðs í Jesú Kristi og atferli og iðkun sem greiðir því veg og framar öðm stuðlar að
andlegri velferð, andlegri lýðheilsu, andlegri heilsurækt.
Helgidómamir kringum landið em þjóðargersemar. Okkur er falið það
ábyrgðarhlutverk af hálfu þjóðarinnar að gæta þeirra gersema. En ekki sem safnahúsa
og minningavarða um veröld sem var, heldur sem lifandi helgidóma. Hvemig tekst
okkur að halda við þeirri iðkun og uppeldi sem að því stuðlar? Sóknarkirkjumar eru
andlegar heilsugæslustöðvar, andlegar lýðheilsustöðvar, þar sem boðið er upp á
andlega heilsurækt. Það er bæn og iðkun kirkjunnar, við líknandi, græðandi, læknandi
heilsubmnna orðsins og sakramentanna, kærleika og mannúðar, og holl leiðsögn á
lífsins vegi.
Andleg velferð er hugtak sem mikilvægt er að koma á dagskrá andspænis
þeirri einhliða áherslu sem gjama er í stjómmálum og almennri umræðu á efnislegum
gæðum. Andleg velferð er gmnnur hinnar efnislegu. Andleg velferð stuðlar að aukinni
innsýn landsmanna í list og menningu, bókmenntir, sögu, - og ekki síst trú.
Skólakerfið, fullorðinsfræðslan, listir og menningarstarf hvers konar, safnamenningin
í landinu, hlutverk fjölmiðla að upplýsa og miðla menningararfmum, sögustaðimir,
hefðimar, hátíðimar, sagnasjóðurinn. Þetta þarf allt að efla með markvissum
aðgerðum. Það þarf pólitíska stýringu til, íjármagn til að greiða þeim hlutum veg í
umhverfi þar sem allt er vegið og metið á kvarða virkni og framleiðni og ávöxmn, og
þar sem flest snýst fremur um magn en gæði. En menningargildi og andleg verðmæti
em verðmæti sem ekki verða gerð upp í krónum, jafnvel ekki evmm, en sem allt um
það veitir ómetanlegri auðlegð inn í samfélagið. Það er menningarlegur og andlegur
höfuðstóll og öflug orkulind og gróðavegur! A tímum sem sjá meiri fjármuni í umferð
en nokkm sinni er mikilvægt að gefa gaum að þeim verðmætum sem dyljast í
7