Gerðir kirkjuþings - 2007, Blaðsíða 21
Gerðir Kirkjuþings 2007
um fyrirkomulag aukaverka presta og greiðslur fyrir þau. Nánari grein er gerð fyrir
því í kafla skýrslu þessarar um fjármál. Þá vann hópurinn tillögu að starfsreglum um
málsmeðferð skv. 40. gr. þjóðkirkjulaga, 9. mál Kirkjuþings 2007, sbr. umfjöllun
síðar í skýrslu þessari.
Starfsmenn
Hjá Kirkjuráði starfa Ása Valgerður Gunnsteinsdóttir fulltrúi í hlutastarfi við ýmis
skrifstofu- og ritarastörf, Höskuldur Sveinsson, arkitekt og Kristín Mjöll
Kristinsdóttir, innanhúsarkitekt, við umsýslu prestssetra eftir 1. júní 2007, eins og
nánar er skýrt í kafla skýrslu þessarar um lög og reglur. Kristín hefur einnig á hendi
umsjón annarra fasteigna Kirkjumálasjóðs þ.e. Kirkjuhúsið Laugavegi 31, húsnæði
Hjálparstarfs kirkjunnar, Tónskóla Þjóðkirkjunnar og aðstöðu sérþjónustupresta að
Háaleitisbraut 66 (Grensáskirkju) og Biskupsgarður að Bergstaðastræti 75. Allar
framantaldar fasteignir eru í Reykjavík. Einnig sinnir Kristín vígslubiskupssetrinu að
Hólum í Hjaltadal. Jóhannes Ingibjartsson, byggingatæknifræðingur, formaður
bygginga- og listanefndar, starfar einnig hjá Kirkjuráði í hlutastarfi. Hann veitir
sóknamefndum sem standa í verklegum framkvæmdum o.fl. aðstoð og ráðgjöf. Vísað
er til umfjöllunar um breytta umsýslu fasteigna síðar í skýrslu þessari. Þá sinnir
Magnhildur Sigurbjömsdóttir, viðskiptafræðingur, á Biskupsstofu, verkefnum fyrir
Kirkjuráð samkvæmt samningi Kirkjuráðs og Biskupsstofu frá 2003, en um er að ræða
fjármálaráðgjöf til sóknamefnda, auk þjónustu við undirbúning úthlutana úr
Jöfnunarsjóði sókna. Þá hefur Sigurgeir Skúlason, landfræðingur, unnið áfram að því
að afmarka lóðir fyrir kirkjur, kirkjugarða og prestssetur, en um samstarfsverkefni
Kirkjuráðs og Kirkjugarðaráðs er að ræða.
Skipan í nefndir
Samkvæmt 11. gr. starfsreglna um Kirkjuráð nr. 817/2000, er meginreglan sú að
Kirkjuráð skipar í þær nefndir sem ráðið skal skipa í, þrjá menn og þrjá til vara til
fjögurra ára. Skal skipað frá og með 1. júlí árið eftir kirkjuþingskjör. Samkvæmt því
bar að skipa í nefndirnar á þessu starfsári. Skipanir í nefndir vom sem hér greinir:
- Launanefnd Þjóðkirkjunnar
Kirkjuráð staðfesti “samþykktir fyrir launanefnd Þjóðkirkjunnar” og vom tveir
fulltrúar til viðbótar hinum þremur skipaðir í nefndina. Nefndina skipuðu áður þau
Ragnhildur Benediktsdóttir, skrifstofustjóri Biskupsstofu, Bjami Kr. Grímsson,
kirkjuþingsfulltrúi og Jóhann E. Bjömsson, kirkjuráðsmaður. Samþykkt var að skipa
einnig Birgi Amar, Ássókn í Reykjavík og Ásbjöm Jónsson, Utskálasókn,
Kjalamesprófastsdæmi.
- Stjóm Skálholtsútgáfunnar
I samræmi við ákvæði skipulagsskrár Skálholtsútgáfunnar var samþykkt að skipa
áfram sr. Halldór Reynisson til þriggja ára. Þá samþykkti Kirkjuráð að skipa sr.
Bemharð Guðmundsson, fv. rektor Skálholtsskóla, í stað sr. Hreins Hjartarsonar, sem
lést á árinu. Skipun sr. Bemharðs gildir í tvö ár þar sem það er sá tími sem sr. Hreinn
átti eftir.
- Bygginga- og listanefnd, sbr. starfsreglur um kirkjur og safnaðarheimili
Ákveðið var að skipa áfram sömu menn og verið hafa í nefndinni, Jóhannes
Ingibjartsson, sem formann, sr. Kristján Val Ingólfsson, lektor og Guðrúnu Jónsdóttur,
arkitekt. Varamenn em hinir sömu og áður, þ.e. þau Þóra Kristjánsdóttir,
listfræðingur, dr. Gunnar Kristjánsson, prófastur, og Andrés Narfi Andrésson,
arkitekt.
19