Gerðir kirkjuþings - 2007, Blaðsíða 37
Gerðir Kirkjuþings 2007
Gengið var frá endurráðningu organista, Hilmars Amars Agnarssonar, með
nýjum starfssamningi og breyttri starfslýsingu. Hann tekur nú beinan þátt í dagskrá
sem er á staðnum, mótum og námskeiðum.
Teknir hafa verið upp fastir vikulegir samráðsfundir vígslubiskups,
sóknarprests, rektors, framkvæmdastjóra og organista þar sem allt starfið á staðnum er
skipulagt frá degi til dags og hefur það gefist vel.
Tónskóli Þjóðkirkjunnar
Eins og áður hefur komið fram hafa málefni Tónskóla Þjóðkirkjunnar verið nokkuð til
umfjöllunar hjá Kirkjuráði. Ný stjóm var kjörin í sumar og nýr skólastjóri tók við
haustið 2006. Unnið hefur verið skv. stefnumörkun sem fyrri stjóm skólans mótaði og
kynnti fýrir Kirkjuráði í júnímánuði 2006. Námsskrá skólans er tvískipt,
kirkjuorganistapróf ( þarfir minni kirkna) og kantorspróf (þarfir stærri kirkna), auk
annarra minni þátta. Kantorsnám er lánshæft hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna.
Stjómin hefur rætt við ýmsa aðila um samstarf og annað þ. á m.
menntamálaráðuneytið, Listaháskólann, Tónlistarskóla Reykjavíkur, Lánasjóð
íslenskra námsmanna, Skálholtsskóla o.fl. Tónlistardeild Listaháskólans mun þegar í
vetur bjóða upp á nám á kirkjutónlistarbraut (90 e) í nánu samstarfi við Tónskólann
sem áfram mun sinna kennslu í öllum helstu sérgreinum kirkjutónlistar. Þar með
verður organistanám viðurkennt sem nám á háskólastigi. Þeir sem kjósa geta haldið
áfram námi við erlenda Tónlistarháskóla, en uppbygging námsins á íslandi mun taka
mið af sambærilegu námi við Tónlistarháskóla á Norðurlöndunum.
YI. Önnur mál
Vegna breyttar framsetningar skýrslu þessarar er búið að greina frá flestum þeirra
mála sem venjulega hefðu komið undir þessum kafla.
Kirkjuráð telur rétt að vekja sérstaka athygli á því að í ár eru 75 ár liðin frá
stofnun Kirkjuráðs og á næsta ári 50 ár frá stofnun Kirkjuþings. Gert er ráð fýrir að
þessara tímamóta verði minnst með viðeigandi hætti.
A septemberfundi Kirkjuráðs samþykkti ráðið eftirfarandi:
“Þjóðkirkjan beiti sérfyrir undirbúningi að stofnun trííarbragða- og friðarstofnunar á
Keflavíkurflugvelli. Rætt verði við guðfræðideild HI, rektor H1 og fleiri sem
hugsanlega verði aðilar að stofnuninni. Þá verði rætt við Þróunarfélag
Keflavíkurflugvallar sem hefur umsjón með byggingum á svæðinu um hugsanleg kaup
á kapellunni sem er á fyrrum vamarsvæði. Málið verði kynnt í skýrslu Kirkjuráðs á
Kirkjuþingi 2007 ogfer umframhald þess eftir viðbrögðum þingsins”.
Kirkjuráð telur æskilegt að Kirkjuþing fjalli um framangreindar fyrirætlanir og
tjái sig um þær. Með skýrslu þessari fylgir yfirlit þar sem fram koma hugmyndir um
starfsemi stofnunarinnar.
Kirkjuráð hefur rætt hugmyndir um þróun þess starfs sem starfshópar ráðsins
inna af hendi og verður þeirri vinnu fram haldið.
VII. Lokaorð
Kirkjuráð fjallaði um ýmis önnur mál sem unnt er að lesa um í fundargerðum ráðsins
á heimasíðu kirkjunnar. Einnig skal vísað til greinargerðar framkvæmdastjóra
Kirkjuráðs í Árbók kirkjunnar 2006. Þá fylgja skýrslu þessari gögn til frekari
skýringar. Skýrsla stjómar Prestssetrasjóðs fylgir nú þessari skýrslu vegna þeirra
breytinga sem skýrðar hafa verið hér að framan. Eins og fyrr greinir fylgir
áfangaskýrsla nefndar sem skipuð var um árangursmat og enn fremur skýrsla nefndar
sem fjallaði um þjónusm kirkjunnar.
35