Gerðir kirkjuþings - 2007, Blaðsíða 64
Gerðir Kirkjuþings 2007
17. mál - Starfsreglur um prestssetur
Hutt af Kirkjuráði
Frsm. Kristján Bjömsson
I. Kafli
Skilgreiningar
1. gr.
Prestssetursjarðir og prestsbústaðir em eign Þjóðkirkjunnar í umsjá Kirkjumálasjóðs
og prests, samkvæmt starfsreglum þessum. I starfsreglunum merkir orðið prestssetur
aðsetursstað prests skv. starfsreglum um skipulag kirkjunnar í héraði og er hluti af
embætti hans.
2. gr.
Prestssetur em:
a. Prestssetursjörð: Tiltekin jörð (lögbýli) ásamt mannvirkjum, þar með talið
íbúðarhús sem samkvæmt starfsreglum um skipulag kirkjunnar í héraði er prestssetur.
b. Prestsbústaður: Ibúðarhúsnæði án jarðnæðis í tilteknu sveitarfélagi eða á tiltekinni
jörð eða nafngreindum stað þar sem boðið er í starfsreglum um skipulag kirkjunnar í
héraði að prestssetur skuli vera.
II. Kafli
Stjóm prestssetra
3. gr.
Kirkjuráð skipar þrjá menn í stjóm prestssetra svo og varamenn þeirra til fjögurra ára
frá og með 1. júlí, árið eftir kjör til Kirkjuráðs. Kirkjuráð velur einn aðalmann og einn
varamann án tilnefningar. Kirkjuþing og stjóm Prestafélags íslands tilnefna hvort sinn
fulltrúa og varamann. Skal tilnefna eina konu og einn karl í sæti aðalmanns og eina
konu og einn karl í sæti varamanns. Kirkjuráð skipar formann stjórnar og fyrsta og
annan varamann hans, sem koma úr röðum aðalmanna. Kirkjuráð skal einnig ákveða,
til fjögurra ára, hver í varastjóm gegni stöðu formanns stjórnar í þeim tilvikum að öll
aðalstjórnin vfki sæti.
4. gr.
Kirkjuráð undirbýr og annast kaup og sölu prestssetra, eigna eða réttinda sem tengjast
þeim. Samþykkt Kirkjuþings þarf til sölu prestssetra hvort sem salan varðar alla
eignina eða hluta hennar.
Akvarðanir um nýbyggingar skulu samþykktar af Kirkjuráði.
5. gr.
Stjórn prestssetra fer að öðm leyti með málefni prestssetra og hefur almennt fyrirsvar
þeirra vegna. Stjóm prestssetra fer með stjóm prestsseturjarða gagnvart prestum á
prestssetursjörðum samkvæmt ábúðarlögum og öðrum lögum, en einnig hlutverk
leigusala gagnvart presti í prestsbústað samkvæmt húsaleigulögum, með þeim
afbrigðum sem kunna að leiða af lögum um prestssetur og starfsreglum þessum, svo
og sérstöðu prestssetra að öðru leyti.
Stjórnin gerir samninga við presta um afnot þeirra af prestssetmm.
Stjórnin gerir leigusamninga vegna prestssetra og réttinda sem þeim tengjast, aðra en
þá sem prestum er heimilt að gera í skjóli réttinda sem afnot af prestssetri veita.
62