Gerðir kirkjuþings - 2007, Blaðsíða 39
Gerðir Kirkjuþings 2007
starfsreglur um kirkjumálasjóð vegna rekstrar og umsýslu prestsbústaða og
prestssetursjarða sem tóku gildi þann 1. júní 2007. Prestssetrasjóður starfar nú sem
viðfangsefni Kirkjumálasjóðs. Allsherjamefnd fagnar því að endanleg niðurstaða
hefur náðst um prestssetur.
Nefndin telur brýnt að fasteignir kirkjunnar, þar með talin prestssetur, séu
tryggilega varðveitt. Gæta þarf þess að prestssetur séu ávallt laus til fullra afnota fyrir
viðtakandi prest þegar embætti sem prestssetri fylgir er auglýst. Forðast ber
samningagerð um jarðir kirkjunnar sem leitt geta til þess að kaupréttur kunni að
stofnast á grundvelli ábúðarlaga.
Allsherjamefnd fagnar áfangaskýrslu nefndar um heildarskipan þjónustu
kirkjunnar og leggur til að Kirkjuþing samþykki að vinnu nefndarinnar verði haldið
áfram á sömu braut. Nefndin skili lokaskjali á næsta ári til Kirkjuráðs sem leggi málið
fyrir Kirkjuþing 2008.
Allsherjamefnd beinir því til Kirkjuráðs að nefnd um árangursmat haldi áfram
störfum. Starfsmaður á fræðslusviði Biskupsstofu starfi með nefndinni.
Allsheijamefnd telur eðlilegt að tilraunaverkefni þessu tengt fari af stað. Nefnd um
árangursmat geri fjárhagsáætlun um málið.
Allsheijarnefnd fagnar frekari uppbyggingu kirkju- og menningarmiðstöðvar í
Reykholti, einnig samstarfsverkefni Kirkjuráðs og héraðssjóðs
Eyjafjarðarprófastsdæmis um kirkjumiðstöð á Akureyri.
Allsherjamefnd styður að haldið er áfram með tilraunaverkefnið „Litróf1 sem
unnið er á vegum safnaða Fella- og Hólakirkju í samráði við Alþjóðahús og prest
innflytjenda og væntir góðs af niðurstöðu þess.
Allsheijamefnd lýsir stuðningi við samstarf Tónskóla Þjóðkirkjunnar og
Listaháskóla íslands um uppbyggingu kirkjutónlistarbrautar.
Allsherjamefnd fagnar nýjum samstarfssamningi á milli Kirkjuráðs og
Guðfræðideildar Háskóla íslands sem felur í sér símenntun presta og djákna,
starfsþjálfun prestsefna og verðandi djákna og stuðning við lektorsstöðu í
helgisiðafræðum.
Allsheijamefnd styður þá samþykkt Kirkjuráðs að stofnað verði trúarbragða-
og friðarsetur í Kapellu ljóssins á Keflavíkurflugvelli. Nefndin tekur undir það að
mikilvægt er að auka þekkingu og skilning á trúarbrögðum heims og stuðla að
samskipmm trúarhópa og fólks með ólík trúarviðhorf. Jafnframt telur nefndin
mikilvægt að Þjóðkirkjan taki þátt í mótun og uppbyggingu vaxandi samfélags á
Keflavíkurflugvelli.
Allsheijamefnd lýsir ánægju sinni með þau nýmæli sem orðið hafa í starfssemi
Skálholts og þeirri uppbyggingu sem þar hefur átt sér stað. Þá telur allsherjamefnd að
áform Kirkjuráðs um uppbyggingu bókhlöðu, móttöku- og sýningarhúss í Skálholti
sem og hugmyndir að frístundabyggð, séu metnaðarfull en gæta verði þess að
fjármögnun til uppbyggingar og rekstrar sé tryggð.
Allsherjamefnd fagnar farsælu starfi á Hólastað og samstarfi kirkju og
Hólaskóla. Vegna fyrirhugaðra skipulagsbreytinga á staðnum telur allsherjamefnd
brýnt að tryggð verði lóðarréttindi fyrir framtíðamppbyggingu kirkjustarfs. Ennfremur
minnir nefndin á mikilvægi fomleifarannsókna og varðveislu minja í samvinnu við
kirkjuna vegna sögu biskupsstólsins.
Allsheijamefnd hvetur söfnuði og stofnanir Þjóðkirkjunnar til að vinna að
framgangi megináherslna þessa starfsárs 2007 - 2008 sem er „Aukið samstarf inn á
við og út á við“. Þá hvemr nefndin til þess að lagt verði til fjármagn þar sem sóknir og
prófastsdæmi geti sótt í.
37