Gerðir kirkjuþings - 2007, Blaðsíða 30

Gerðir kirkjuþings - 2007, Blaðsíða 30
Gerðir Kirkjuþings 2007 starfshætti málefna- og siðfræðiráðs Þjóðkirkjunnar. Með nefndinni störfuðu starfsmenn Biskupsstofu, þau Steinunn Amþrúður Bjömsdóttir, Ámi Svanm Daníelsson og séra Irma Sjöfn Óskarsdóttir. 6. mál Kirkjuþings 2007. Tillaga að starfsreglum um breytingar á ýmsum starfsreglum. Kirkjuráð flytur mál þetta sem er sett fram til að lagfæra ýmsa tæknilega ágalla í starfsreglum Kirkjuþings m.a. vegna lagabreytinga sem átt hafa sér stað á umliðnum árum, breytinga á starfsreglum svo og breytinga á stjómsýslu, sbr. t.d. yfirtöku Kirkjumálasjóðs á verkefnum Kristnisjóðs. Lagt er til að þjóðmálanefnd verði ein af fastanefndum kirkjunnar, enda verkefni nefndarinnar þýðingarmikil og í eðli sínu ótímabundin. 7. mál Kirkjuþings 2007. Tillaga til þingsályktunar um skipun nefndar til að endurskoða löggjöf um Þjóðkirkjuna. Um næstu áramót eru tíu ár liðin frá gildistöku laga um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997. Þjóðkirkjan býr því að tíu ára reynslu af því starfsumhverfi sem lögin sköpuðu henni á sínum tíma. Megintilgangur laganna á sínum tíma var að auka sjálfstæði kirkjunnar og þær breytingar sem gerðai' hafa verið á lögunum síðan hafa allar byggst á þeirri hugmyndafræði. Þá er mikilvægt í þessu sambandi að samningum kirkju og ríkis um kirkjujarðir og prestssetur er nýlokið. Þykir rétt á þessum tímamótum að fara yfir þá reynslu sem fengist hefur á þessum tíu árum, meta stöðuna og kanna hvort eðlilegt geti talist að endurskoða að nýju lagaramma Þjóðkirkjunnar. Er lagt til að Kirkjuþing samþykki ályktun þess efnis að Kirkjuráði verði falið að skipa nefnd þriggja manna til þessarar endurskoðunar. 8. mál Kirkjuþings 2007. Tillaga til þingsályktunar um Þjóðkirkjuna og staðfesta samvist. Biskup íslands leggur fram tillögu til þingsályktunai' þar sem lagt er til að Kirkjuþing lýsir stuðningi við meginatriði ályktunar kenningarnefndar um Þjóðkirkjuna og staðfesta samvist. Enn fremur að Þjóðkirkjan standi við hefðbundinn skilning á hjónabandinu sem sáttmála karls og konu. Þá er enn fremur lagt til að ef lögum um staðfesta samvist verður breytt í þá veru að prestar fái heimild til að staðfesta samvist þá styðji Kirkjuþing það að prestum sem það kjósa verði það heimilt. Kirkjuþing leggi áherslu á að þess verði gætt að um heimildarákvæði verði að ræða og að samviskufrelsi presta í þessum efnum verði virt. Mál þetta var til umfjöllunar á Leikmannastefnu og Prestastefnu fyrr á þessu ári. Leikmannastefna samþykkti ályktun sem fylgir skýrslu þessari. Prestastefna samþykkti einni meginatriði framangreindrar ályktunar kenningarnefndar. 9. mál Kirkjuþings 2007. Tillaga að starfsreglum um breyting á starfsreglum um sóknarnefndir nr. 732/1998 o.fl. í 40. gr. þjóðkirkjulaga nr. 78/1997 er að finna ákvæði sem veitir söfnuði rétt til að óska þess að embætti sóknarprests eða prests verði auglýst að liðnum fimm ára skipunartíma. Málsmeðferð er nokkuð flókin og margir aðilar sem koma að úrlausn um slíka ósk. Reynt hefur á þetta ákvæði einu sinni og hefur því fengist reynsla af því hver málsmeðferð skuli vera á grundvelli ákvæðisins og óskráðra meginreglna stjómsýsluréttar. Eðlilegt þykir að setja efnisreglur um málsmeðferðina. Er þá einkum miðað að því að reglur um það ferli sem fram fer í tilvikum sem þessum séu Ijósai' öllum hlutaðeigandi. I meginatriðum eru reglurnar raunverulega skrásetning þeirra 28
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82

x

Gerðir kirkjuþings

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.