Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2012, Side 76
76
ekki einungis innra ástandi lífveru heldur einnig ákveðnum menningar-
bundnum venjum og hefðum sem hafa með mannleg samskipti og félags-
legt samhengi að gera.27
Til að túlka tilfinningaviðbrögð annarrar persónu réttilega verða báðir
aðilar að sammælast á einn eða annan hátt um merkingu slíkra viðbragða.
Það felur í sér að framsettar tilfinningar má skilgreina sem tákn þar sem
skilningur á tilfinningum og viðbrögð við þeim felast í réttri túlkun á við-
komandi kenndum. Af því leiðir að tilfinningatákn geta eins og önnur tákn
verið margræð, búið yfir viðbótarmerkingum eða aukamerkingum, verið
menningarlega hlaðin o.s.frv. Slík tákngerving tilfinninga sést einna best
í bókmenntum, þar sem tilfinningar í textum eru hvorki raunverulegar,
líffræðilegar né gegna þróunarfræðilegu hlutverki eins og mannlegar til-
finningar. Þess í stað má segja að þær séu birtingarmynd persónulegra
og félagslegra samskipta. Norbert Fries hefur meðal annars fjallað um
hlutverk tilfinninga við miðlun og bent á að sem miðlunarkerfi séu þær á
engan hátt frábrugðnar öðrum táknum (þ. Zeichen) eða táknrófum:
Tilfinningar eru miðlunarhæfar svo lengi sem hægt er að greina
þær niður í almenna flokka af táknmyndum (þ. Zeichenformen) og
táknmerkingum (þ. Zeichenbedeutungen). Það er nákvæmlega þessi
eiginleiki sem skiptir máli fyrir semíótísk fræði, menningarfræði,
textafræði og málvísindi. Hægt er að skilgreina tilfinningar á kerf-
isbundinn hátt með því að umbreyta þeim í kóða þar sem þær eru
skilgreindar sem táknmyndir.28
27 Sá íslenski fræðimaður sem hefur ritað einna mest um tilfinningar innan hug-
vísinda (menntavísinda) er Kristján Kristjánsson, sjá til að mynda nýlegar bækur
hans Aristotle, Emotions, and Education, Aldershot: Ashgate, 2007 og The Self and Its
Emotions, Cambridge: Cambridge University Press, 2011. Ármann Jakobsson hefur
enn fremur fjallað um samkennd í Egils sögu í grein sinni „Egils saga and Empathy:
Emotions and Moral Issues in a dysfunctional Saga Family“, Scandinavian Studies
80/2008, bls. 1–18. Einnig má í þessu samhengi benda á grein Torfa Tulinius sem
tekur á Njáls sögu út frá kenningum Freuds um sálgreiningu „„Ærið gott gömlum
og feigum“: Seeking death in Njáls saga“, Á austrvega. Saga and East Scandinavia,
[Preprint Papers of the 14th International Saga Conference, Uppsala 9th–15th
August 2009,] ritstj. Agneta Ney, Henrik Williams og Fredrik Charpentier Ljung-
qvist, Gävle: Gävle University Press, 2009, bls. 948–955.
28 „Gefühle sind kommunizierbar, sofern für sie konventionalisierte Zuordnungen
von Zeichenformen und Zeichenbedeutungen konstatiert werden können. Genau
dieser Umstand ist es, der für semiotische Wissenchaften, für Kulturwissenschaf-
ten, für Philologien und Sprachwissenschaften relevant ist: durch ihre Kodierung
mittels Zeichen werden Gefühle systematisch erfassbar.“ Norbert Fries, „die Ko-
Sif RíKhaRðSdóttiR