Peningamál - 01.11.1999, Side 34

Peningamál - 01.11.1999, Side 34
33 afar mikilvægt að í einu og öllu sé farið að gildandi reglum, að viðskipti séu gagnsæ þannig að tryggt sé að fjárfestar hafi allir aðgang að sömu upplýsingum sem áhrif geta haft á mat á eignum þeirra eða á fjár- festingaráform. Til þess að tryggja að allir sem starfa á innlendum markaði fari að þeim reglum sem um viðskipti á honum gilda er nauðsynlegt að eftirlits- stofnanir sem við höfum komið á fót búi við löggjöf sem gerir þeim kleift að sinna hlutverki sínu. Um leið verða þeir sem starfa á markaði, fjárfestar og aðrir, að axla ábyrgð sem því fylgir. Annars er hætt við að það uppbyggingarstarf sem hér hefur farið fram hafi verið unnið fyrir gýg og að hér þróist viðskiptahættir og umhverfi sem hrinda faglegum fjárfestum frá sér, innlendum sem erlendum. Þetta er ekki síst umhugs- unarefni þegar yfir stendur einkavæðing verðmætra eigna ríkisins. Gagnsæi verður að ríkja og fjárfestar að hlíta þeim reglum sem gilda um viðskipti á hluta- bréfamarkaði. Um leið og gagnsæi er nauðsynlegt sem og að allir hafi aðgang að sömu upplýsingum sem varðað geta mat á verðbréfum verður að leggja áherslu á að hart sé tekið á því þegar fjárfestir nýtir sér upplýsing- ar sem ekki eru opinberar til þess að ákveða að kaupa eða selja verðbréf. Í þessu samhengi minni ég á að í þeim löndum þar sem fjármálamarkaðir eru virkastir eru leikreglur skýrari en annarsstaðar og gera jafn- framt meiri kröfur til háttsemi þátttakenda á markaði. Þar er líka hvað harðast tekið á brotum gegn þessum reglum. Ég mæli þessi orð hér á þessum vettvangi vegna þess að sparisjóðirnir og fyrirtæki þeirra hafa verið aðilar að umfangsmiklum viðskiptum á hluta- bréfamarkaði og hefur verið gagnrýnt hvernig að þeim hefur verið staðið. Almannasamtök eins og sparisjóðirnir eiga mikið undir því að halda trausti og virðingu almennings og því ber þeim að ganga á undan með góðu fordæmi þegar um er að ræða að virða eðlilegar og sjálfsagðar leikreglur fjármagns- markaðarins. Lokaorð Góðir fundarmenn. Eins og þegar hefur komið fram hefur Seðlabanki Íslands fylgt aðhaldssamri stefnu í peningamálum undanfarin misseri. Þessi stefna endurspeglast m.a. í miklum mun innlendra og erlendra vaxta. Bankinn hefur lýst því að hann muni áfram fylgja aðhalds- samri stefnu enda sé afar brýnt að draga nú úr verð- bólgu og hverfa á ný til þess verðstöðugleika sem við höfum búið við undanfarin ár. Ég læt nú senn lokið máli mínu. Ég gat þess áðan að hlutur sparisjóðanna í heildarútlánum innláns- stofnana hefði í lok ágústmánaðar verið rúmlega 23%. Það sýnir mikilvægi sparisjóðanna í fjármála- lífi landsmanna. Ég árna forsvarsmönnum spari- sjóðanna allra heilla í sínum mikilvægu störfum og læt í ljós von um áframhaldandi gott samstarf milli sparisjóðanna og Seðlabanka Íslands.

x

Peningamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.