Peningamál - 01.11.2007, Síða 78

Peningamál - 01.11.2007, Síða 78
PENINGASTEFNAN OG STJORNTÆKI HENNAR P E N I N G A M Á L 2 0 0 7 • 3 78 funda. Tilhögun þeirra er nánar lýst í starfsreglum um undirbúning, rökstuðning og kynningu ákvarðana í peningamálum sem settar eru í samræmi við ákvæði laga um Seðlabanka Íslands. Þær eru birtar á vef bankans www.sedlabanki.is. Helstu stjórntæki peningastefnunnar Seðlabankinn framfylgir peningastefnunni einkum með því að stýra vöxtum á peningamarkaði, fyrst og fremst með ákvörðun nafnvaxta veðlána til lánastofnana. Vextir á peningamarkaði hafa sterk áhrif á gjaldeyrisstrauma og þar með á gengi krónunnar og til lengdar innlenda eftirspurn. Viðskiptum við lánastofnanir má í grófum dráttum skipta í föst viðskiptaform annars vegar og markaðsaðgerðir hins vegar. Föst viðskiptaform: • Á viðskiptareikningum geyma lánastofnanir óráðstafað eigið fé. Þeir eru uppgjörsreikningar vegna greiðslujöfnunar milli innlánsstofnana og millibankaviðskipta, þar á meðal viðskipta við Seðlabankann. Vextir þessara reikninga mynda gólf fyrir daglánavexti á milli- bankamarkaði. • Daglán eru veitt að ósk lánastofnana og tryggð með sömu verð- bréfum og hæf eru í veðlánum. Vextir daglána mynda þak yfir daglánavexti á millibankamarkaði. • Innstæðubréf eru gefin út til 90 daga, að ósk lánastofnana. Þau eru ekki skráð en þó hæf í veðlánum. Hlutverk þeirra er að setja gólf undir ávöxtun þriggja mánaða vaxta á peningamarkaði. • Bindiskylda er lögð á lánastofnanir sem ekki eru háðar framlögum á fjárlögum í rekstri sínum. Hún miðast við bindigrunn sem er inn- stæður, útgefin skuldabréf og peningamarkaðsbréf. Bindihlutfall er 2% fyrir þann hluta bindigrunns sem bundinn er til tveggja ára eða skemur. Binditímabil er frá 21. degi hvers mánaðar til 20. dags næsta mánaðar og skal innstæða á bindireikningi ná tilskildu hlut- falli að meðaltali á binditímabilinu. Markaðsaðgerðir: • Lán gegn veði eru helsta stjórntæki Seðlabankans. Vikulega eru haldin uppboð á 7 daga samningum. Lánastofnanir þurfa að leggja fram hæf verðbréf, en þeim er nánar lýst í reglum Seðla bankans nr. 541 frá 18. júní 2007. Uppboðin geta verið ýmist fastverðsuppboð eða uppboð þar sem heildarfjárhæð framboðinna samninga er til- kynnt. Fastverðsuppboð hafa verið reglan til þessa. Vextir á lánum gegn veði eru stýrivextir bankans. • Innstæðubréf til 7 daga eru boðin upp vikulega. Hlutverk þeirra er að mynda mótvægi við tímabundna lausafjárgnótt. Uppboðsaðferð er fastverðsuppboð. • Viðskipti á verðbréfamarkaði takmarkast við ríkistryggð verðbréf. • Inngripum á gjaldeyrismarkaði er einungis beitt, samkvæmt yfir- lýsingunni um verðbólgumarkmið frá 2001, telji Seðlabankinn það nauðsynlegt til þess að stuðla að verðbólgumarkmiði sínu eða ef hann telur að gengissveiflur geti ógnað stöðugleika fjármálakerf- isins.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Peningamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.