Peningamál - 15.05.2013, Page 55

Peningamál - 15.05.2013, Page 55
ÞRÓUN OG HORFUR Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM P E N I N G A M Á L 2 0 1 3 • 2 55 legum mælikvörðum út frá „klipptu“ meðaltali (e. trimmed mean) þar sem hún hefur hjaðnað um 0,3 prósentur að meðaltali síðan í janúar. Verð almennrar þjónustu er ágæt vísbending um innlenda verðbólgu. Það hefur hækkað um 6,4% sl. tólf mánuði og bendir einnig til þess að innlendur verðbólguþrýstingur sé nokkru meiri en verðbólga mæld með vísitölu neysluverðs gefur til kynna. Dregur úr verðbólgu vegna hækkunar gengis krónunnar Viðskiptavegið gengi krónunnar hefur hækkað um 10,2% frá útgáfu Peningamála í febrúar, sem hefur dregið úr verðbólguþrýstingi. Sögulega hafa áhrif gengisbreytinga haft tilhneigingu til að vera ósamhverf og gengislækkun krónunnar komið hraðar og í ríkari mæli fram í verðlagi heldur en gengishækkun.2 Því lengur sem gengi krón- unnar helst stöðugt í kjölfar gengisstyrkingar því meiri og varanlegri eru verðlagsáhrifin, þótt áhrif á verðlagsákvarðanir fyrirtækja geti verið töluverðan tíma að festast í sessi. Nýleg gengishækkun virðist hafa haft lítils háttar áhrif á verðlagsþróun innfluttrar vöru í mars og apríl, auk þess sem heimsmarkaðsverð á olíu hefur lækkað um tæplega 4½% sl. þrjá mánuði. Áhrif bensínverðslækkana á vísitölu neysluverðs námu um ½ prósentu í mars og apríl. Enn er til staðar nokkur slaki í þjóðarbúskapnum og efnahagsbatinn hefur verið tiltölulega hægur sem gæti einnig leitt til þess að áhrif gengisstyrkingar verði meiri en ella. Framlag innfluttrar vöru án áfengis, tóbaks og bensíns til ársverð- bólgu nam eigi að síður 0,6 prósentum í apríl og skýrir sá undirþáttur, ásamt almennri þjónustu, rúmlega helming ársverðbólgunnar. Athygli vekur einnig að árshækkun almennrar þjónustu hefur ekki farið niður fyrir 3½% síðan haustið 2005 og hefur verið 6½% að meðaltali síðan (almenn þjónusta vegur rúmlega 20% í vísitölu neysluverðs). Þróun framleiðsluverðs og smásöluverðs innlendrar vöru ólík Þróun framleiðsluverðs getur gefið vísbendingu um horfur á undirliggj- andi kostnaðarþrýstingi innlendra fyrirtækja og þannig um almenna verðbólguþróun. Framleiðsluverð afurða sem seldar eru innanlands hafði í mars hækkað um rúmlega 1% sl. tólf mánuði en verðbólga á þennan mælikvarða hjaðnaði hratt á árinu 2012. Athygli vekur hins vegar að verð innlendrar vöru í vísitölu neysluverðs hafði í mars hækkað um 5,9% á tólf mánuðum. Svo virðist því sem dregið hafi nokkuð í sundur með þessum mælikvörðum á innlendri verðbólgu, sem gæti verið vísbending um að meiri framleiðsluslaki sé fyrir hendi á vörumarkaði en þróun vísitölu neysluverðs gefur til kynna. Það gæti einnig endurspeglað þráláta verðbólgu á undanförnum árum, sem hefur stuðlað að háum verðbólguvæntingum. Niðurstöður könnunar Capacent Gallup sem var framkvæmd í febrúar og mars sl. þar sem stjórnendur voru bjartsýnni um fram- legðarþróun (EBITDA) á næstu sex mánuðum, bæði ef miðað er við síðustu könnun og fyrir ári, eru vísbending um að fyrirtæki gætu haft nokkurt svigrúm til að taka á sig kostnaðarhækkanir án þess að velta þeim út í verðlag eða hægja á ráðningum. Ef breytingin frá könnuninni 2. Sjá t.d. grein Þorvarðar Tjörva Ólafssonar, Ásgerðar Pétursdóttur og Karenar Á. Vignisdóttur (2011), „Price setting in turbulent times: Survey evidence from Icelandic firms“, Seðlabanki Íslands Working Papers, nr. 54. Mynd VIII-3 Dreifing verðhækkana vísitölu neysluverðs Janúar 2007 - apríl 2013 % Hlutfall vöruflokka sem hækka í verði (v. ás)1 Vísitala neysluverðs (h. ás) 1. Hlutfall vöruflokka sem hækka í verði er 3 mánaða miðsett meðaltal. Heimild: Hagstofa Íslands. 0 10 20 30 40 50 60 70 80 90 100 0 2 4 6 8 10 12 14 16 18 20 ‘13201220112010200920082007 12 mánaða breyting (%) Mynd VIII-4 Verðbólga, kjarnaverðbólga og gengi krónunnar Janúar 2010 - apríl 2013 12 mánaða breyting (%) 12 mánaða breyting (%) Vísitala neysluverðs (v. ás) Kjarnavísitala 3 án skattaáhrifa (v. ás) Vísitala meðalgengis - viðskiptavog þröng (h. ás, andhverfur kvarði) Verðbólgumarkmið (v. ás) Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands. 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 20 15 10 5 0 -5 -10 -15 -20 -25 2012 201320112010 Mynd VIII-5 Framleiðslu- og smásöluverð innlendrar vöru Janúar 2007 - mars 2013 12 mánaða breyting (%) Framleiðsluverð afurða sem eru seldar innanlands Verð innlendrar vöru í vísitölu neysluverðs Verðbólgumarkmið Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands. -5 0 5 10 15 20 25 30 201220112010200920082007

x

Peningamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.