Glóðafeykir - 01.12.1970, Blaðsíða 67

Glóðafeykir - 01.12.1970, Blaðsíða 67
GLÓÐAFEYKIR 67 ingsstöðum á Kjálka 1908—1910, á Stekkjarflötum 1910—1921. Flm það leyti eða litlu fyrr slitu þau hjón samvistum. Þau eignuðust eina dóttur, er upp komst, Ingibjörgu, húsfr. í Stapa í Tungusveit og síðar á Sauðárkróki. Árið 1921 fór Jón byggðum að Hofi í Vesturdal og bjó þar til 1945. Ráðskona hans var Soffía Jónsdóttir frá Höfðahólum á Skaga- strönd, Jónatanssonar, og konu hans Kristínar Sigvaldadóttur. Var Soffía alsystir Guðmundar, eiginmanns Ingibjargar, dóttur Jóns. Eftir að þau brugðu búi á Hofi, fóru þau að Hofsvöllum (nýbvli, er sonur þeirra reisti við Hofslaug 1944), þá að Flatatungu og loks aftur að Hofi, þar sem þau áttu heima meðan dagur entist. Soffía lézt 1959. Börn þeirra Jóns eru 5: Jón, bóndi á Hofsvöllum fnú bóndi í Múla á Línakradal); Gestheiður, húsfr. á Skagaströnd; Guðrún, hús- fr. á Hofi; Jónatan, húsasmiður í Reykjavík og Sceunn, húsfr. í Kópavogi. Jón Guðmundsson var góður meðalmaður á hæð, gildur á velli og rammaukinn að burðum; dökkur á hár, rjóður á vanga, eigi smá- fríður, en svipurinn ábúðarmikill og festulegur. Hann var mikill skapmaður ef í harðfjörur fór, en prúður og stilltur að öllum jafn- aði, greiðvikinn og gestrisinn, raungóður og drengur hinn bezti. Jón var ósérhlífinn og afburða verkmaður við hvað sem var. „Svo gott hjú þótti hann, að Egill bóndi í Merkigili borgaði honum 120 kr. í kaup, þegar almennt vinnumannskaup var 80 kr.....Jón var djarfur og fylginn sér og lenti stundum í harðræðum. Það er í minn- um haft þegar hann flutti búferlum frá Stekkjarflötum að Hofi og fór með fólk og farangur yfir Jökulsá eystri í Laugarhvammi hjá Stekkjarflötum. Áin var svo djúp, að rétt hnökraði. Börn voru reidd en gamalmenni bundið í söðul eða við klifberaboga. Ferðin gekk slysalaust, þótt djarft væri teflt.“ (B. E.). Björn Frimannsson, smiður á Sauðárkróki, andaðist 12. okt. 1960, nálega 84 ára gamall. Hann var Húnvetningur að ætt, fæddur í Hamrakoti í Torfalækjarhreppi 11. des. 1876. Voru foreldrar hans Frímann bóndi Björnsson og fyrri kona hans, Solveig Jónsdóttir. Hálfbræður hans, samfeðra, eru þeir Bjarni bóndi á Mýrum, Hilmar bóndi á Fremstagili, Jóhann Frímann fv. skólastjóri og Guðmundur Frímann skáld, báðir á Akureyri. Ársgamall fluttist Björn með foreldrum sínum að Hvammi í Langadal og óx þar upp til fullorðinsára. Hann hóf nám í Hólaskóla
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Glóðafeykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.