Vestfirska fréttablaðið - 16.12.1986, Blaðsíða 5
vestfirska
rRETTAELADID
Sr. Baldur Vilhelmsson
í Vatnsfirði:
Hug-
leiðing
á
jólum 1986
Nýtt líf, ný jörð, nýr himinn, hversu heillandi er ekki
allt sem sagt verður um; sjá það er nýtt. En eru þá jólin ný
gœtu menn spurt, eru þau ekki endurtekning á síðustu
jólum eða jólunum þar á undan? Þannig líta efalaust þeir
menn á er hafa gráan hversdagsleikann fyrir sinn stóra
sannleik og ekki skynja blæbrigði nýs dags, nýrra vina,
nýrrar bókar og nýrra jóla. Jólin eru alltafný. Þessi jól er
við nú komum til með að halda verða haldin í skugga
geimvopna og því svartara myrkur, því skœrar skín jóla-
Ijósið og kallar oss til fylgdar við frið og birtu, við nýja
von, nýja jörð, — við Krist og kirkju hans.
Mannkynið bindur nú vonir sínar um frið á jörðu við
fundi leiðtoga stórvelda og einnig, að óttinn við stríðið
knýji menn til að halda friðinn. Allt er slíkt valt í meira
lagi. Friðarboðun kirkjunnar í anda jólanna, sá andi gleði
ogfriðar erfylgir barninufrá Betlehem er vissulega grund-
völlur hins eilífa friðar er veitast skal allri heimsbyggð:
Vatnsfjarðarkirkja.
Syngið með gleðirödd Guði dýrð, heimsþjóðir allar,
Guð sig vornföður, hans sonur vorn bróðursig kallar;
friður á jörð
fluttur er syndugri hjörð.
Lofið Guð, lýðtungur snjallar.
Látum jólin verða oss gleðigjafa og uppsprettu friðar í
hug og hjarta. Tökum á móti fœðingarhátíðinni og Jesú-
barninu opnum huga, eins og siður var í bœjunum lágu
að hreinsa allt og sópa á aðventunni, prýða og skreyta, þá
hreinsum hjörtu vor á þessari tíð, að vér megnum að láta
birtuna frá jötunni í Betlehem skína í sálu vora án sora og
gróms þessa heims.
Megi jólin færa oss nær hvert öðru í anda friðar og
kœrleika og verða leiðtogum Ijós á vandrötuðum vegi.
Gleðileg jól.
„Hið sanna Ijós, sem upplýsir hvern mann, ^
kom nú í heiminn. ^
Hann var í heiminum og heimurinn var
orðinn til fyrir hann. “
Jóh. 1,9.-10. ^