Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 16.12.1986, Page 12

Vestfirska fréttablaðið - 16.12.1986, Page 12
12 £3 vestfirska TTABLAÐID Og ísland var bláeygt barn á sundfötum. Á laug- arbakka lék það listir sínar fyrir heiminn nokkur andartök. Sagði svo af kokhreysti: Ég er sterk- asta, fallegasta, gáfaðasta og besta barn í heimi og ég bý í fallegra og hreinna landi en þið öll. Þannig tókst dvergnum norðlæga á örskots- stundu að sýna veröldinni sitt rétta andlit. Allt í einu fékk hann útrás fyrir margra alda uppsafn- aða minnimáttarkennd. „Þessir snjöllu íslend- ingar. Hvern hefði grunað að innst inni þræðu þeir dýrðarljóma sviðsljóssins?11 skrifaði TIME hæðnislega að leiðtogaævintýrinu afstöðnu. En þótt Bandaríkjamönnum falli ekki alltaf að aðrar þjóðir stæli þá svona vel er óþarfi að erfa það við þá. Fréttaflutningur þeirra kitlaði nefni- lega næstum óþægilega mikið barnslega hé- gómagirni dvergsins í norðri. USA TODAY 1. október. Þessi skopmynd sýnir vel hugmyndir útlendinga um ísland. By David Seavey, USA TODAY Rúnar Helgi Vignisson: Bláeygt barn á sundfötum — Þankar um fréttaflutning bandarískra fjölmiöla frá íslandi í tengslum við fund Reagans og Gorbachevs HÓL OG HÁÐ Veldur hver á heldur. Bandarískir fjölmiðlamenn sýndu áþreifanlega fram á sannleiksgildi þessa orðtaks. Sumir þeirra, smitaðir af rang- snúnu rannsóknarhugarfari, virtust hafa neikvæðni og ill- girni að leiðarljósi. Það hugar- far leiddi þó ekki til merkilegri uppgötvana en: „Kannski vissi Nancy Reagan að hún myndi þurfa að keppa við boli og te- bolla um athyglina ef hún kæmi til lslands.“ Af sama meiði spratt allt fimbulfambið um fé- græðgi Islendinga og prjál; allt í einu voru bandarískir frétta- menn búnir að finna hæng á kapítalismanum. Líkingin um bjálkann og augað á bersýni- lega vel við enn þann dag í dag. Almennt virtust blöð og tímarit gagnrýnni — eða nei- kvæðari — í umfjöllun sinni en sjónvarp og útvarp. Helgast það e.t.v. af því að stílað er inn á ólíka hópa. Almenningur í Bandaríkjunum er ekki fræg- astur fyrir blaðalestur, enda ó- læsi töluvert. Það er sér í lagi menntafólkið sem les (skárra væri það nú), hinir láta sjón- varpið um upplýsingamiðlun- ina (í besta falli). Þar sem bandarískt sjónvarpsefni er að meginhluta léttmeti í ætt við Stundina okkar verða fréttirnar líka að vera léttar og skemmti- legar. Þetta vita akkerismenn stóru sjónvarpsstöðvanna. Um- fjöllun þeirra var því jákvæð og vinaleg, jafnvel föðurleg, og skreytt fallegum skotum frá fegurstu stöðum Reykjavíkur og nágrennis. Aðalatriðið að á- horfandanum líði svo vel að hann vilji helst aldrei skipta um rás. Reyndar virkaði þetta öfugt á undirritaðan, hann vildi ólm- ur athuga hvort hinar stöðvarn- ar gætu ekki opinberað honum enn frekar áður ómeðvitaða fegurð Reykjavíkurborgar. Peter Jennings hjá ABC var einna fundvísastur á falleg sjónarhorn, enda á hann sam- kvæmt skoðanakönnunum á brattann að sækja hjá amerísk- um fréttaglápurum. Hældi hann íslendingum á hvert reipi fyrir dugnað og gestrisni með þeim afleiðingum að dvergur- inn í brjóstinu fór flikkflakk og heljarstökk. Fyrir utan það að tala niður til áhorfenda er ekki hægt að setja mikið út á umjöllun bandarísku sjónvarpsstöðv- anna; yfirleitt var haft það sem sannara reynist. Helst mætti gagnrýna þær fyrir full yfir- borðslega fréttamennsku og fyrir að velta sér heldur mikið upp úr hlutum eins og drauga- gangi og álfatrú. NBC sló þó allar hinar stöðvarnar út með því að taka lögfræðinginn ísfirska, Arnar Geir Hinriksson, tali. HUNDASLEÐAR HVÍTA HÚSSINS Hrafna-Flóki kom einum mesta misskilningi landafræð- innar á kreik þegar hann asn- aðist til að kalla landið ísland. Síðan hafa flestir Islendingar á erlendri grund verið önnum kafnir við að leiðrétta þennan 1100 ára brandara og ekki ólík- legt að þeir þurfi að halda því eitthvað áfram. Þrátt fyrir hið margumtalaða upplýsinga- streymi nútímans virðist Frón gamla enn tengjast ís og kulda í hugum útlendinga, enda rökrétt ályktun. Skopmyndir þær og brand- arar sem litu dagsins ljós í kringum leiðtogafundinn sýna þessa meinloku hérlendra býsna vel. 2. október sagði Jo- hnny Carson, annálaður sjón- varpsspaugari, að Hvíta húsið væri í óða önn að undirbúa ferðina til Islands — verið væri að leggja lokahönd á hunda- sleðana. — Sami maður hélt því einnig fram að íslendingar létu prenta á frosin matvæli: „Geymist við stofuhita.“ Þá taldi Carson að land þar sem hægt væri að fá sér blund fram í apríl væri góður staður fyrir Reagan (honum þykir víst gott að fá sér kríu, eins og eldra fólki þykir einatt). Að öðru leyti virtust Banda- ríkjamenn sitja á skopi sínu um ísland, þó vissulega þætti þeim ansi skondið að þetta óþekkta dvergríki skyldi verða fyrir val- inu. Stundum var engu líkara en fréttaþulir héldu að prent- villa væri í handritinu hjá þeim daginn sem fregnin flaug um

x

Vestfirska fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.