Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 16.12.1986, Síða 17

Vestfirska fréttablaðið - 16.12.1986, Síða 17
6 vestlirska TTABLASIS 17 Björn Andrés Ingólfsson heitir maður. Hann orti þegar nafni hans, Andrew prins, gekk í það hei- laga: Fögur og björt er framtíöin. Fögnuöur ríkir og það er von. Nú ertu kátur, nafni minn, nú ertu kominn á Ferguson. Er rennur á nótt í ríki þínu, hjá rauðhæróu Söru þú háttar vel. Fyrr má nú gera að gamni sínu, en gifta sig svona dráttarvél. Eitt sinn voru Húnvetningar á ferðalagi saman. Gerðist þá ungur maður fullur mjög. Þá orti Ing- ibjörg í Fossárdal: Lítil von, að lítil hetja lifni á þessum degi við. Eigum við ekki samt að setja Svartadauða í helvítið? Kersknisvísur hafa löngum þótt hið mesta sælgæti. Páll Ólafsson orti, er maður nokkur, kall- aður Rauði-Jón, drukknaði: Rauði-Jón í saltan sjó sagður er nú dottinn. Loksins fékk þá fjandinn nóg í fyrsta sinn í pottinn. Ljótur var nú líkaminn og lítið á að græða. En aftur sálarandstyggðin afbragðs djöflafæða. Davíð Stefánsson, skáld frá Fagraskógi kom einhverju sinni frá Reykjavík og fór austur í Vagl- askóg, án þess að stoppa á Akureyri. Rósberg þótti miður að hitta hann ekki, og orti: Vini alla einskis mat yfir fjallið strekkti. Meira gallað mannrassgat maður varla þekkti. Davíð svaraði: Svipar örmum ei til manns er af görmum bitinn. Út úr þörmum andskotans er sú hörmung slitin. Sveinn á Egilsstöðum á Héraði rak eitt sinn greiðasölu og þótti heldur naumgjöfull. Eitt sinn fannst þessi vísa á borði, eftir að gestir voru farnir. Aldrei hefur tekist að feðra hana: Dyggðum fleygir dýpst í ál á djöfuls vegi hröðum. Þessi regin svíðingssál, Sveinn á Egilsstöðum. Björn sat eitt sinn og fylgdist með þætti um kjaramál: Sat ég og sá stund sjónvarpsins málfund karla með kálfslund Kristján og Ásmund Kom þar í hljóðhús heldur til skrafs fús mannkertið Magnús malandi um kauplús. Birtist mér bísperrt belgdist við orð hvert vambmikið vitskert viðundrið Albert. Þá er að lokum að geta þess, að á bæ einum fyrir ofan Akureyri, er hét Tittlingur, bjó maður að nafni Ólafur. Hann var manna á meðal kallaður Ólafur á Tittlingi og hafði á viðurnefninu hina mestu ömun. Brá hann á það ráð, að hann skírði bæinn uppog kallaði hann Hlíðarenda. Fólksinnti því engu og hélt áfram að kalla hann Ólaf á Tittlingi. Hugsaði Ólafur nú ráð sitt lengi vel, en fann þó lausn um síðir. Hann fór til Rósbergs G. Snædal og bað hann að gera um sig vísu, þar sem fram kæmi að hann væri Ólafur á Hlíðar- enda, og hún skyldi vera svo eftirminnileg, að fólk færi að kalla hann Ólaf á Hlíðarenda. Vísan varð svona: Akureyrar vífum vænum verður margt að bitlingi þegar þeim ekur út úr bænum, Ólafur á Hlíðarenda. Fólk hélt áfam að kalla hann Ólaf á Tittlingi, svo hann gafst upp og seldi kotið. Þá orti Rósberg: Margar hafa meyjar grátið mun svo verða enn um sinn, Ólafur hefur eftirlátið öðrum manni Hlíðarenda. Margir kannast við það, að auðvelt er að reita gangnamenn til reiði. Og víst er að margir hafa orðið fyrir barðinu á reiðum smölum. Sigurbjörn Kristjánsson, frá Finnsstöðum, vildi setja um það reglugerð, hvernig smalamenn ættu að haga sér. Reglugerð þessa vildi hann síðan setja í fjallskila- skrá. Smölun er oft þeim manni um megn, sem má ekki þola storm, né regn. Best er að sérhver búandþegn sé bálreiður út í gegn. Þú skalt æða yfir storð, aldrei tala hlýlegt orð. Svipurinn þarf að minna á morð, ef menn eiga að smala á annað borð. Hendi skal upp á móti hönd, þá heima eru smöluð lönd. Orðin þá ekki valin vönd, vestur á Glámu á Barðaströnd. Ef rekstur kemur, þú reiðast átt og rífast um bæði stórt og smátt. Tvístr'onum öskra, hrópa hátt, en hirð'ann bara ef það er fátt. Er réttinni safnið rennur nær, reynir á þol og fimar tær. Hver, sem þá verður ekki ær, ætti ekki að teljast gangnafær.

x

Vestfirska fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.