Vestfirska fréttablaðið - 16.12.1986, Side 28
28
Jóra í Jórukleif. Pennateikning frá 1945.
Gerhards Munthe sem mynd-
skreytti ásamt fimm öðrum
myndlistarmönnum Heims-
kringlu Snorra Sturlusonar.
Kom það rit út í Kristjaníu
aldamótaárið 1900.
í þjóðsagnamyndum sínum
velur Ásgrímur oft þá stund
þegar sagan rís sem hæst og nær
dramatískum hápunkti. Halla
kona Fjalla-Eyvindar, stendur í
ánni og býr sig undir að kasta
baminu í fossinn, nátttröllið
birtist á glugganum bóndadótt-
ur til skelfingar, og það glampar
í hvítan blett í hnakka aftur-
göngunnar er djákninn ríður
með Guðrúnu yfir Hörgá.
Þegar fyrstu íslensku mynd-
listarmennimir koma fram á
sjónarsviðið um síðustu alda-
mót er það í kjölfar mikillar
grósku í skáldskap rómantísku
skáldanna sem höfðu sungið
náttúru landsins lof og sýnt
fram á að hún væri ekki aðeins
hættuleg og ógnandi, heldur
einnig fögur og hrífandi.
Almenningur vænti hins
sama af myndlistarmönnum
sínum; myndir þeirra áttu að
vera ljóðrænar og sýna blíða
náttúru rómantísku skáldanna.
Það er einnig eftirtektarvert að
þessi fyrsta kynslóð myndlistar-
manna á íslandi sótti innblástur
í bókmenntaarfinn og þjóðsög-
urnar og átti þannig greiðari
aðgang að almenningi sem gat
nú séð kunnugan texta mynd-
skreyttan.
TELEFLEX MORSE
Stjórntæki fyrir vélar og gíra, spil o.fl.
Stýrisvélar og stýri.
Mikið úrval fyrirliggjandi.
Flestar lengdir og sverleikar af börkum
Fyrir allar vélategundir og bátagerðir
Einkaumboðsmenn:
VÉLASALAN H.F.
Ánanaustum s-26122
vestlirska
TTABLABIS
Nýjar bækur
Algjört nýmæli í íslenskrl bóka-
útgáfu:
Ljósmyndlr í II af meglnþorra ís-
lensku flórunnar í sínu rétta um-
hverfi í nýrrl bók eftlr Hörð
Kristlnsson prófessor í grasa-
fræði sem hann nefnir:
PLÖNTUHANDBÓKIN
Blómplöntur og byrkningar
llörðor Kristinsson
Blómplöntur og birkningar
Bókaútgáfan Öm og Örlygur
hefur gefið út Plöntuhandbókina
eftir Hörð Kristinsson prófessor í
grasafræði við Háskóla íslands.
Undirtitill bókarinnar er Blóm-
plöntur og byrkningar.
Plöntuhandbókin brýtur á
margan hátt blað í sínum fræðum.
Þetta er fyrsta bókin sem birtir
ljósmyndir í litum af meginþorra
íslensku flórunnar. 1 henni eru 382
litmyndir af 365 tegundumplantna
sem vaxa á íslandi. Þetta er einnig
fyrsta bókin sem sýnir með lit-
prentuðu korti fyrir hverja tegund
hvar á landinu hún vex. Kortin eru
gerð eftir heimildum sem safnað
hefur verið á mörgum áratugum,
bæði á rannsóknarferðum höfund-
ar og annarra grasafræðinga, en
margir áhugamenn hafa einnig
komið þar við sögu.
Plöntuhandbókin er samin fyrir
þá sem vilja læra að þekkja ís-
lenskar plöntur án þess að hafa allt
of mikið fyrir því. Hún er ætluð
þeim sem vilja fletta myndum og
finna tegundir eftir þeim, fremur
en að finna plöntur eftir lyklum.
Röð tegunda í bókinni fer eftir
blómalitum og öðrum einföldum
einkennum. Bókin er búin að vera
fimm ár í smíðum enda hefur það
krafist mikillar vinnu og þolin-
mæði að ná öllum þeim fjölda
mynda sem í henni eru og vinna
útbreiðslukortin.
Auk meginefnis bókarinnar er
orðskýringarkafli í texta og teikn-
ingum. Þá er og orðaskrá þar sem
tilgreind eru helstu fræðiorð sem
notuð eru í lýsingum plantna og
vísað til þeirra blaðsíðna þar sem
skýringu er að finna. Skrá er yfir
friðlýstar plöntutegundir, ættaskrá,
latnesk tegundaskrá og íslensk teg-
undaskrá.
Plöntuhandbókin er hönnuð af
Sigurþór Jakobssyni. Plöntuteikn-
ingar gerði Sigurður Valur Sig-
urðsson en kortateikningar Sævar
Pétursson. Setning var unnin í
Ljóshnit, Litgreininga- og filmu-
vinnu annaðist Prentmyndastofan
hf., prentun Kassagerðin hf. og
bókband Amarfell hf.
ALÍSLENSK FYNDNI
Hollur hlátur lengir lífið
Magnús Öskarsson borgarlög-
maður
safnaði og setti saman
Bókaklúbbur Amar og Örlygs
hefur gefið út bókina Alíslensk
fyndni — hollur hlátur lengir lífið
— sem Magnús Óskarsson borgar-
lögmaður hefur safnað efni í og sett
saman. Á bókarkápu segir m.a.:
„Það gerist ekki á hverjum degi, að
háttsettur embættismaður varpar
af sér alvöruskikkjunni og dregur
fram sannar og ótrúlega skemmti-
legar myndir úr hversdagslífinu í
kringum okkur, í þeim tilgangi
einum að skemmta fólki. Magnús
Óskarsson, borgarlögmaður, hefur
árum saman safnað drepfyndnum
setningum, fyrirsögnum og greina-
brotum úr íslenskum dagblöðum.
Yfirleitt er þessi fyndni óviljaverk,
sem fáir veita athygli, allra síst
höfundarnir sjálfir, en verður alveg
óborganleg, þegar hún er dregin
fram í dagsljósið. Úr þessu safni
Magnúsar hefur hann valið hátt á
annað hundrað úrklippur, sem hér
birtast í upprunalegri mynd. Þá
segir Magnús sannar, íslenskar
gamansögur, sem flestar hafa
hvorki birst né heyrst áður og inn á
milli eru limrur, smáskrítlur og
„spakmæli“, allt saman dýrlegur
alíslenskur húmor.
Ekki er til betra móteitur gegn
vandamálaþrasi, verðbólgu, rekstr-
arerfiðleikum og skammdegis-
drunga, en að halla sér aftur á bak
með þessa bók í hendi og hlæja
dátt.“
ALÍSLENSK
FYNDNI
MAGNÚS ÓSKARSSON
safrindi itj
Alíslensk fyndni er sett og prent-
uð í Prentstofu G. Benediktssonar
en bundin hjá Arnarfelli hf. Brian
Pilkington teiknaði kápumynd.
LÚND OG ÞJÓÐIR
í bókaflokknum Heimur þekk-
ingar
Bókaútgáfan Öm og Örlygur
hefur gefið út bókina Lönd og
þjóðir í bókaflokknum Heimur
þekkingar. Höfundar eru Arthur
Butterfield, Ron Carter, Peter
Muccini og Peter Way. Gunnfríður
Hermannsdóttir og Sigríður Stef-
ánsdóttir íslenskuðu.
Bókin er í allstóru broti með um
250 fallegum litmyndum. Lönd og
þjóðir er ítarleg skoðun á löndum
heims og menningu íbúa þeirra.
Fjallað er um loftslag, landshætti,
landbúnað, iðnað og efnahagslíf, í-
búa og lifnaðarhætti á hverju
svæði. Sögu og stjórnarfari frá lok-
um síðari heimsstyrjaldarinnar
fram til þessa eru gerð skil til að
auka skilning á þeim atburðum er
hafa mótað núverandi líf okkar.
Fyrri bækur er komið hafa út í
bókaflokknum Heimur þekkingar
eru: Alheimurinn og jörðin, Þróun
lífsins, Þróun siðmenningar.