Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 16.12.1986, Side 33

Vestfirska fréttablaðið - 16.12.1986, Side 33
tí vestfirska TTABLACIS 33 sóknir á trolli, netum og öðrum veiðarfærum. Við höfum farið með þeim í fjóra slíka leiðangra. Við fórum með vélina suður í Breiða- fjörð í vor til þess að leita að skel fyrir Flóka hf á Brjáns- læk. Við höfum farið krabbaleiðangur um Djúpið með Hafrannsókn. Og svo má nefna hluti eins og þegar Gísli Hermannsson. við vorum fengnir til að að- stoða við leitina að þyrlunni sem fórst í Jökulfjörðunum. — Hafið þið kannski leit- að að kúfiski? Einar: „Nei það þarf ekki að leita að honum, bara fara og sækja hann.“ daginn við seinleg verk eins og að bæta síldarnætur og þá drápu menn tímann með því að rífast og rökræða." Einar: „Það er ekki nokkur leið að fá þetta unga fólk til þess að rífast, það er alveg skoðanalaust.“ — Hlustið þið á rás 2 í út- varpinu? Gulli: „Það er nú allur Ólafur R. Ólafsson. gangur á því. Það fer einn og skiptir um en eftir tvær mín- útur kemur annar sem vill hlusta eitthvað annað.“ — Einar segir að unga fólkið sé skoðanalaust, hvað áttu við, þú ert nú ekki svo mjög gamall sjálfur? Einar Hreinsson og Aðalbjörn Jóakimsson á Hafþóri. — Sjáið þið framundan ein- hverjar breytingar í neta- gerð? Einar: „Þær gætu verið á næsta leyti. Það er alltaf ver- ið að vinna að tilraunum með nýtt og léttara og sterk- ara efni. Það er mikið verið að vinna í atferlisrannsókn- um á fiskinum og því meira sem við vitum um hann þess betur vitum við hvernig við eigum að ná honum.“ — Nú hefur alltaf verið mjög góður andi hér á vinnu- staðnum, hefur það haldist.? Gulli: „Já, að mestu leyti. En eins og við vorum að tala um áðan þá var mikil eftirsjá að Pétri Péturssyni. Og unga fólkið hefur stundum sagt að það væri ekki nógu mikið rætt hérna'.“ Magni: „Svo verður þú líka að gá að því að þegar plássið stækkaði þá dreifðist mann- skapurinn meira um húsið. Hér áður stóiðu kannski menn í sömu sporum allan Einar: „Það er nú ekkert að marka mig, ég var orðinn fertugur strax um fermingu. En þetta unga fólk, það á bara eitt svar við öllu og það er „bara“. Ertu ekki sam- mála mér Gulli?“ Gulli: „Jú, það er helst líf í þeim á mánudögum þegarer verið að bera saman ævintýri helgarinnar.“ — Hvernig er staða fyrir- tækisins gagnvart atvinnuá- standi í bænum? Einar: „Ja, við erum undir sömu sök seldir og útgerðin. Ef útgerðin er blómleg, þá blómstrum við líka.“ — Nú eru allir að bölva kvótakerfinu, hvað finnst ykkur um það, hefur það haft áhrif á ykkar starfsemi? Gulli: „Það hefur ekki haft mikil áhrif á okkur. Það er þá helst til aukningar, því skip sem áður voru bara á fiskitrolli hafa þurft að fá rækjutroll líka!“ — Eruð þið sammála þeirri Gísli Halldór Halldórsson: Maður brostinna vona Einn á sillu situr, bitur, brotinn, í herðum lotinn, í þessu rétt óskotinn. Brýr að baki brunnar, sunnar, sólin á aðra skín, en hérna, líf hans dvín. Að höfði sínu hólkinn hefur, grefur, gröfí huga skertum, maður brostinna vona, faðir ófœddra sona. í fjarska hlátur heyrir, keyrir kalda í hausinn byssu, og gerir regin skyssu. Hann gœfuna taldi sér aðra meina, þoldi ekki hamingju annarra sveina, og hélt frá eigin geði gleði, með framtíð bjarta. Fram af klettum kastast, kominn er örstuttrar œvi endi, Ævi sem samt var svo löng, að ákvörðun sá, að var röng. Við óskum öllu starfsfólki okkar á sjó og landi, viðskiptavinum, svo og öllum Vestfirðingum, gleðilegra jóla og farsæls komandi árs, og þökkum viðskiptin á líðandi ári. Oddi hf. — Patrekur hf. Vestri hf, Patreksfirði útbreiddu skoðun að Vest- firðir hafi orðið hart úti í þeirri fiskveiðistefnu sem fylgt er? Einar: „Þeir hafa orðið hart úti, en sluppu þó vel. Við skulum muna það að Vest- firðingar samþykktu kvót- ann af því kvótanum var skipt eftir reglu sem var þeim hagstæð. Hættan er sú og það var alveg fyrirséð að öll breyting verði í þá átt að jafna þetta út og það er okk- ur í óhag. I dag er kvótinn hærri á togarana á norðursvæðinu. Tilhneigingin er sú að jafna þetta út á milli landshluta.“ — En finnst ykkur eðlilegt að kvótanum sé algjörlega skipt niður á skip? Einar: „Hvað er eðlilegt? Það sem við skulum ganga útfrá og allir eru búnir að viðurkenna er að það verður að vera heildarkvóti. Það hefur tekið okkur töluverðan tíma að renna því niður. Menn verða að gera sér grein fyrir því að kvótakerfið er komið til þess að vera. Það skiptir ekki máli hvort við veiðum 200 þús. tonn eða 500 þús. tonn. Það verður að vera þak á veiðinni. Mín skoðun er sú að það sem okkur vantar í þetta kerfi það er sveigjanleiki. Það lendir alltaf í skrif- borðsvandræðum þegar ver- ið er að taka menn inn í kerfið og begar þeir fara út úr því. Okkur vantar meiri hreyfanleika.“ — Þú vilt sem sagt hafa þak á veiðinni en koma á meiri samkeppni um aflann sem er til skiptanna? Einar: „Já.“ — Kæmi til greina að ykkar áliti að selja veiðileyfi? Gulli: „Það verður að líta á kvótann sem aðgang að afl- anum. Þú átt hann ekki fyrr en þú ert búinn að ná í hann. Það er ekki hægt að selja það sem er í sjónum.“ Magni: „Er ekki miklu betra fyrir mörg smærri pláss að kaupa hreinlega leyfi til þess að vinna 1000 tonn af þorski og láta veiða þau fyrir sig í staðinn fyrir að vera að basla í þessari útgerð.“ — Hér sláum við botninn í þetta spjall sem eflaust hefði getað orðið mun lengra, því það kemur enginn að tómum kofunum hjá þeim félögum.

x

Vestfirska fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.