Vestfirska fréttablaðið - 16.12.1986, Side 37
Varla hafa þau tvö gert ráð fyrir þeim möguleika að setjast á Alþingi
saman, rúmum þrjátíu árum síðar? Jón ásamt Rannveigu Guðmunds-
dóttur, bssjarfulltrúa í Kópavogi.
37
Nafnarnir, Jón Sigurðsson og Jón Baldvin endumýja gamla vináttu frá
ísafirði og munu væntanlega vinna saman í þingsölum. Hér standa þeir
við málverk af Gylfa Þ. Gíslasyni.
Ljósmynd Gunnar V. Andrésson.
ég mátti í síld á Siglufirði og Rauf-
arhöfn, hjá rafveitunum fyrir
austan og víðar. Við Laufey gift-
umst árið 1962. Eftir að Laufey
lauk stúdentsprófi starfaði hún
sem kennari á Grenivík. Við sett-
um eiginlega fyrst upp heimili við
Fálkagötuna í Reykjavík í árs-
byrjun 1964, þcgar ég kom heim
frá námi. Þá voru synirnir tveir,
Þorbjörn og Sigurður Þór fæddir.
Seinna bættust við tvær dætur í
hópinn, Anna Kristín 1965 og
Rebekka fædd 1977“.
Hagfræðinám og leiklist.
— Hvað réð því að þú lagðir
stund á hagfræði og tölfræði. Kom
ekkert annað til greina?
,,/EtIi það hafi ekki veið tilvilj-
un. Eg hafði áhuga á mörgu, ég
var til dæmis um tíma að velta
fyrir mér arkitektúr. Ég hafði
alltaf gaman af að teikna og mála.
Það má víst segja að leiklistin hafi
líka verið áhugamál á skólaárun-
um, enda þótt mér hafi aldrei
dottið í hug að leggja hana fyrir
mig sem atvinnu. Ég tók mikinn
þátt í félagslífi í MA, bæði leik-
starfi, íþróttum, einkum blaki, og
blaðaútgáfu".
— Segðu mér meira af leiklist-
arafrekunum.
,,Það er nú varla hægt að tala
um afrek í því sambandi. Upphaf-
ið að þessu var þó frekar myndar-
legt, því að við nokkrir ísfirskir
púkar hófum okkar .Jeiklistarfer-
il“ með sjálfu Þjóðleikhúsinu.
Þannig var, að hópur frá leikhús-
inu fór í leikför um Vestfirði með
leikritið Tópas, eftir Marcel
Pagnol, líklega var þetta sumarið
1953. Það vantaði nokkra stráka
sem statista, við áttum að leika
baldinn skólabekk, sem var ágætt
hlutverk fyrir okkur. Þarna voru
stórar „stjörnur" í leiklistinni,
meðal annarra Haraldur Björns-
son, Róbert Arnfinnsson og Sig-
ríður Hagalín í hlutverkum, ef ég
man rétt. Við vorum hálfsmeykir
við þetta, strákarnir, Árni Búbba
ég og fleiri, en allt gekk þetta þó
skammlaust fyrir sig. Ég held ég
muni alla ,,rulluna“, sem var
forskriftin, sem bekkurinn hafði í
skriftartímanum: „lllur fengur,
illa forgengur". Satt að segja
skildum við púkarnir þetta ekki
fyrr en eftir dúk og disk.
Scinna vantaði strák til að leika
blaðsöludreng í Kjarnorku og
kvenhylii eftir Agnar Þórðarson,
en þá kom Brynjólfur Jóhannes-
son til að leika í sínum garnla
heimabæ. Ætli Marías Þ. Guð-
niundsson hafi ekki verið Ieik-
stjórinn, eða hún Sigrún Magnús-
dóttir. Og svo ég haldi áfrant að
stæra mig af leiklistinni, þá vor-
unt við samstarfsmenn á þessu
sviði. Pétur Einarsson leikari og
ég á skólaárunum í MA. En mín-
um leikferli lauk eins og margra
annarra. sern betur fer fyrir áhorf-
endur, — við stúdentsprófið".
Nýlendan svolítið
innhverf
— Hvernig kunnirðu við
Stokkhólm?
„Alveg sérstaklega vel. Mér
finnst hún einstaklega falleg borg.
litir hennar eru skrítilega bland-
aðir, jarðarlitir sem mér féllu svo
vel í geð. Byggingarnar eru líka
glæsilegar og landslagið, hólmar
og sund, ekki síður. Stokkhólmur
bauð þá eins og nú upp á fjöl-
skrúðugt lista- og menningarlíf,
sem stúdentar nutu góðs af eftir
því sem efnin leyfðu. Fólkið er
kannski svolítið seintekið, en gott
fólk, Svíar.
Þarna var stór Islendinganý-
lenda. Þórir bróðir minn var
þarna við nám. Þarna voru líka
Sveinn Einarsson, síðar Þjóðleik-
hússtjóri, Kristján Bersi Ólafsson,
skólastjóri í Flensborg, Haraldur
Ólafsson, alþingismaður, Kjartan
Jóhannsson. alþingismaður og
Ólafur heitinn Jónsson listgagn-
rýnandi. frændi minn. í grann-
bænum Uppsölum voru á þessum
árum Guðmundur Magnússon,
nú prófessor, Bjarni Guðnason,
prófessor og Þór Magnússson.
þjóðminjavörður. Kannski var
nýlendan svolítið innhverf. sem
hefur orðið til þess að við kynnt-
umst Svíum minna fyrir bragðið".
— Frá námi hefur leiðin legið
til Rcykjavíkur til að kynnast inn-
viðum stjórnmálanna?
„Ég kom heim 1964 og það má
segja að ég hafi þá þegar lent í
efnahagsfarganinu, sem ég hcf
starfað við í meira en 20 ár. Að
vísu fór ég ásamt tjöiskyldu minni
til London og var þar við nám við
London School of Economics í 2
ár frá 1965-1967. Ég var svo
heppinn að fá vinnu hjá Jónasi
Haralz í Efnahagsstofnun. Þjóð-
hagsstofnun er raunar komin af
Efnahagsstofnun ,,í bcinan kvcn-
legg“ segi ég, enda er hann örugg-
ari en karileggurinn, eins og allir
vita.
Af Efnahagsstofnun tók við um
þriggja ára skeið Hagrannsókna-
deild Framkvæmdastofnunar
ríksins og svo Þjóðhagsstofnun
1974, en báðum vcitti ég forstöðu.
Starfið fannst mér mjög skemmti-
legt og ekki síst var gaman að
vinna hjá Jónasi Haralz. Hann
var og er afskaplega snjall ntaður,
sannfærandi málflutningsmaður,
og vel verki farinn".
— En þú áttir eftir að hleypa
heimdraganum og gerast banka-
stjóri í sjálfri höfuðborg Banda-
ríkjanna?
„Já, árið 1980 var ég skipaður
sem fulltrúi Norðurlandanna
fimm í bankastjórn Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins í Washington. Þar
starfaði ég í 2 1/2 ár. Það var mjög
gott að vinna og búa í Ameríku.
Starfið var mjög áhugavert, þarna
fékk ég tækifæri til að kynnast
náið efnahagslífi og vandamálum
annarra þjóða, ekki síst Norður-
landaþjóðanna. Reyndar hef ég
tekið nokkurn þátt í norrænu
samstarfi, meðal annars sem full-
trúi íslands í stjórn Norræna
fjárfestingarbankans frá 1976 og
formaður hennar 1984 til 1986“.
Vörn fyrir sænska
gengisfellingu
„Það kom meðal annars í minn
hlut á Washingtonárunum að
þurfa að verja 12% gengisfellingu
Svía í október 1982, sem var
fyrsta verk ríkisstjórnar Oiofs
Palme, sem þá tók við völdum.
Þeir sættu mikilli gagnrýni ná-
grannaþjóðanna og Evrópu-
bandalagsþjóðanna, sem töldu að
Svíar hefðu með þessu skapað sér
bætta samkeppnisaðstöðu með
ósanngjörnum hætti. Ætli Svíar
hafi ekki bara verið heppnir að
hafa mig, vanan mann í gcngisfell-
ingum að verja sinn málstað? En
þetta fór allt vel hjá Svíum og
þcim vegnaði vel á eftir, enda sit-
ur kratastjórnin enn að völdum.
Gengisfellingar krónunnar hafa
verið allt of margar síðustu ára-
tugi á íslandi, en oftast óhjá-
kvæmilegar, viðurkenning á stað-
reyndum, fremur en sjálfstæð
ákvörðun".
X
Oskum viðskiptavinum
vorum gleðilegra jóla
og farsældar á kom-
andi ári.
Þökkum viðskiptin á
árínu, sem er að líða.
lj rVÍGS3Í\!MK! ÍSIJVMDS
tásatDáatD á ásacpaatsa