Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 16.12.1986, Side 47

Vestfirska fréttablaðið - 16.12.1986, Side 47
47 „Nokkuð góð, með tilkomu nýja malarvallar á Torfnesi á- samt malarvelli á Skeiði og grasvelli. Varðandi aðstæður fyrir áhorfendur eru þær mjög lélegar og gerir það alla sölu inn á leiki mjög erfiða.“ Að lokum, ert þú ekki bjartsýnn á að knattspyrnumál hjá okkur komist í góðan farveg? „Jú, þrátt fyrir erfiða fjár- hagsstöðu vegna fyrri ára er ég bjartsýnn á að hægt sé að reka knattspyrnuráð áfallalaust ef samstaða er fyrir hendi, og vel að málum staðið,“ sagði Jens Kristmannsson að lokum. 1 I fM Sigursveit ísfirðinga í fjórsundi á Bikarmóti S.S.Í. Talið frá vinstri: Pálína Björnsdóttir, Þuríður Pétursdóttir, Helga Sigurðardóttir og Martha Jör- undsdóttir. SUND Óli Þór Gunnlaugsson, þjálf- ari sunddeildar Vestra Óli, árið 1986 hefur það verið gott ár fyrir sundið? Óli Þór Gunnlaugsson. „Já, vissulega, það hefur ver- ið staðfesting á því sem við höfum verið að byggja upp undanfarin ár og árangur á þessu ári er eftirtalið: Sigur á unglingamóti K.R., fjölmenn- asta félagsmóti hérlendis. Vest- fjarðarmótasigur, fjölmörg ís- landsmet og Islandsmeistara- titlar, annað sæti aldursflokka- móta og svo rúsínan í pylsu- endanum, 1. sæti í bikarkeppni 1. deild“ Hverju þakkar þú þennan ár- angur? „Góðri ástundun og æfinga- sókn. Vilja til að synda rétt, borða og sofa rétt, öflugu for- eldrastarfi, góðri félagsstjóm og þokkalegri aðstöðu sem byggð er upp af foreldrum og bæjaryfirvöldum.“ Að hverju er stefnt nú í upphafi nýs árs? „Fyrst er áskorunarmót í janúar þar sem ísafjörður og Bolungarvík keppa á móti Reykjavík og þriðja liði sem er landsbyggð önnur en Isafjörður — Bolungarvík." Ingólfur Amarson. Að lokum, hvaða ísfirskur sundmaður hefur komið mest á óvart á þessu ári og sýnt mestar framfarir? „Að mínu mati er það Ing- ólfur Arnarson sem mest hefur komið á óvart, hann hefur verið vaxandi sundmaður undanfarin 2—3 ár en aldrei þó sem nú. Mestar framfarir, þá held ég að ég verði að nefna Pálínu Bjömsdóttur, hún byrjaði næst- um ósynd fyrir 3 árum og er nú komin í landsliðið, sem dæmi af henni var tekinn tími fyrir 3 ár- um, 100 m skrið 1.36.00. I dag sytndir hún á 1.01.35 — stór- kostlegar framfarir.“ GOLF Samúel Einarsson er for- maður Golfklúbbs ísafjarðar. Samúel, er draumurinn að rætast með Tungudal? „Já, það verður að segjast að hann sé að rætast varðandi þá aðstöðu sem við höfum óskað eftir að fá í Tungudal.“ Eru framfarir í golfinu hér og er að skapast meiri breidd, fleira fólk sem æfir þessa íþrótt? „Það eru merkjanlegar fram- farir, sem skapast af betri að- stöðu með tilfærslu golfvallar úr SK9GGNST VNÞUt ytt&BO&PIP Einn liður í þeirri þjónustu Hamþiðjunnar að miðla uþþlýsingum um eiginleika og notkun veiðarfæra, er útvegun og dreifing myndbanda. Nú þjóðum við sjö áhugaverð myndbönd á kostnaðarverði. 1. íTIUiAUNAMMKINUM 2. fíSKUN íTfZÓLU 3. HSKAP MCP PKAGNOT 4. POKSKANBT 5. TOGVElPAKfAUUP 6. ÍINUVEIPAK WPAIASKA ?. HUMAtt- OG HSKfTKOU Nánari upplysingar veitir söludeild Hampiðjunnar. HAMPIÐJAN Box 5136, 125 Reykjavík, sími28533 Frá verðlaunaafhendingu í Golfskálanum: Þórir Sigurðsson, Sigurður Th. Ingvarsson, Ingi Magnfreðsson, Samúel Einarsson, Guðjón Ólafsson, Gunnar Tryggvason og Haraldur L. Haraldsson, bæjarstjóri. Hnífsdal í Tungudal, þar sem Tungudalur er bæði miklu nær byggð og gefur meiri möguleika á betri golfvelli.“ Tungudalur er fallegt golf- svæði, gefur það nógu stóran 9 holu völl? „Það er satt, þetta er draumasvæði, hvað varðar náttúrufegurð og veðursæld, enda hafa fjölmargir ferða- menn lýst hrifningu sinni á staðsetningu svæðisins. Hvað varðar 9 holu völl, þá er ljóst að svæðið er í minnsta lagi, en möguleiki á stækkun teljum við að sé fyrir hendi.“ Samúel Einarsson. Er hugsanlegt að sameina Golfklúbb ísafjarðar og Bol- ungarvíkur og sameinast um að nota einn völl? „Ég legg ekkert mikla áherslu á að sameina þessa golfklúbba, en vil að sjálfsögðu áframhald- andi samvinnu við Bolvíkinga eins og verið hefur. Ég tel nauðsynlegt að það sé áfram golfvöllur í Bolungarvík og það verði öflugt starf, enda kæmi það golfíþróttinni til góða hér á þessu svæði.“ Að lokum Samúel, eru ísfirð- ingar almennt orðnir áhuga- samir um golf? „Já það hefur mikið aukist á- huginn á golfinu með tilkomu golfvallar í Tungudal og viðhorf bæjarbúa hefur breyst gagnvart þessari skemmtilegu íþrótt sem golfið er, enda er þetta íþrótt fyrir alla, jafnt unga sem gamla.“ KÖRFUBOLTI Guðjón Þorsteinsson, þjálf- ari og leikmaður. Hvað er að frétta af æfingum og keppni hjá ykkur í K.F.Í. á þessu ári? „Það verður að segjast að miðað við aðstæður þá gengu æfingar vel í jan. — apríl, þá var æft í íþróttahúsi Bolungarvíkur, þar voru einnig spilaðir okkar heimaleikir í íslandsmóti 2. deild. Hvað varðar haustið sept. — des. erum við með æfingar hér á ísafirði en tökum ekki þátt í mótum í haust.“ Er hægt að æfa og keppa í körfubolta við þær aðstæður sem þið búið við hér á ísafirði? „Gersamlega ómögulegt, þó við höfum verið að reyna þetta undanfarin ár, með ótrúlega góðum árangri, þá eru aðstæður hjá öðrum félögum það góðar, að ógerlegt er fyrir okkur að standa þeim jafnfætis.“ „Áhugi fyrir körfubolta hjá unglingum er vissulega fyrir hendi, en aðstaða hér á Isafirði í dag til að iðka körfubolta er það léleg að ekki er hægt að ætlast að íþróttin dafni við þessar aðstæður, þó mætti ýmislegt gera í samstarfi við Bolvíkinga þar sem þeir hafa upp á nokkuð gott íþróttahús að bjóða.“ Guðjón Þorsteinsson. „Að fenginni reynslu sem Is- landsmeistari með K.R.-ingum, þá tel ég að ef við fengjum hér gott íþróttahús myndi fljótlega nást upp hér gott körfuboltalið og allt starf í kringum körfu- bolta gjörbreyttist.“ Óskum viðskiptavinum okkar gleðilegra jóla, árs og friðar. Þökkum viðskiptin á árinu, sem er að líða. Pólarvideó

x

Vestfirska fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.