Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1977, Blaðsíða 114
112
MÚLAÞING
1710—11]. Þaðan af smábrestótt og stóð ekki lengi í einu. Pen-
ingar víða varlegir, en óvíða fallnir, sumstaðar í betra lagi færir.
„Peningar víða varlegir“. Með þessu knappa orðafari á síra
Eiríkur við að ásigkomulag búfénaðar hafi víða verið slíkt, að
ekki mátti út af bera, ef hann átti að ganga fram.
Guðfaðir Vilborgar litlu Eiríksdóttur er sýnilega Gunnlaug-
url, bróðir síra Eiríks. Hann er fæddur um 1661 og býr árið
1703 í Fossvallaseli, fátækur maður. Er talinn hafa flust sama
ár í Hnefilsdal, og skömmu síðar upp í Skriðdal. Guðmóðir
Vilborgar mun vera Gróa Hjörleifsdóttir fædd um 1670. Henn-
ar maður var Einar Þorvarðarson; bjuggu fyrst í Eyrarteigi en
síðar á Hafursá. Sonur þeirra var Hjörleifur er lengi bjó ókvænt-
ur á Hafursá og fóstraði Guðlaugu Torfadóttur frá Sandfelli,
er varð kona Áma Gíslasonar í Höfn. Þaðan er komið nafnið á
Hjörleif sterka Ámason.
1711. Um vetrarfarið er áður skrifað. Eg kalla vorið gott og
gróður mikinn í fardögum.
Þann 14. Septembris fœddist Sölvi Eiríksson og meðtók skírn
og kristni í Þingmúlakirkju.
Þetta sumar var oftast kalt og snjóasamt, heyskapur þó í með-
allagi víðast. En veturinn féll strax upp á með snjóa, frost, hríðir
og jarðþröng allt til þorra. Þaðan af gengu hlákur oftast 6y2
vikur. Þá kom á aftur. Þó kalla eg þetta meðalvetur. Samt féll
víða mikið af peningum, því þeir voru miklir.
Hér að auki getur einnar skírnar í sókninni. Að líkum hefur
Sölvi eldri f. 1705, sem áður getur, verið andaður2, er hér er
komið sögu, Þótt annállinn geti fess hvergi. Hins ber að gæta að
1) Hann er einnig guðfaðir Guðmundar Eiríkssonar 1703.
2) 1 þessu efni, svo og því er segir hér að framan, þar sem talin eru
börn síra Eiríks, er stuðst við formála þrófessors Jóns Jóhannessonar að
Þingmúlaannál, en hann telur Sölva eldra deyja ungan en Sölva yngra
búa á Þorvaldsstöðum í Skriðdal og víðar. Aftur á móti telja Ættir Aust-
firðingu bls. 742, nr. 7083, að það sé Sölvi sá sem fæddur er 1705, er síðar
býr á Þorvaldsstöðum. Þess ber hins vegar að geta, að Æ. Au. telja að-
eins einn Sölva meðal barna síra Eiríks og virðist það styðja tilgátu próf-
essors Jóns.