Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1991, Síða 60
58
MÚLAÞING
fylkisþingum hlutbundnum kosningum. Kjörgengir eru aðeins
menn búsettir í fylkinu.
í neðri deild skulu sitja 30 þingmenn, kosnir í einmennings-
kjördæmum. Kjördæmaskipun skal þannig háttað, að sem næst
jafnmargir kjósendur verði í hverju kjördæmi, og skulu kjör-
dæmin að öðru leyti ákveðin sem samfelldust, eftir því sem
staðhættir leyfa. Sveitarfélagi má ekki skipta milli kjördæma,
nema hvor eða hver hluti verði meginhluti kjördæmisins. Kjör-
dæmaskipun skal endurskoða á 10 ára fresti og gerðar á henni
þær breytingar, sem nauðsynlegar reynast til þess, að fylgt
verði áðurgreindri meginreglu um jafna kjósendatölu í kjör-
dæmum. Endurskoðun þessi skal gerð af þriggja manna nefnd.
Skal einn nefndarmanna tilnefndur af hæstarétti, annar af
Alþingi og þriðji af forseta.
Engu fylki má skipta í fleiri en 10 kjördæmi.
Báðar þingdeildir og forseti mega hafa frumkvæði að laga-
setningu. Forseti skal leggja fram frumvarp til fjárlaga fyrir
hvert reglulegt Alþingi eigi síðar en viku eftir að þing kemur
saman.
Ef lagafrumvarp, sem samþykkt hefur verið í annarri deild
þingsins, er fellt í hinni, skal það afgreitt í sameinuðu þingi,
nema fellt hafi verið með % hlutum atkvæða í annarri hvorri
þingdeild.
Ekkert frumvarp má hijóta fullnaðarafgreiðslu sem lög frá
Alþingi fyrr en forseta hefur gefist nægilegur frestur til að
skýra þinginu frá viðhorfi sínu til frumvarpsins.
Forsetinn getur látið fara fram þjóðaratkvæðagreiðslu um
lagasetningar, og falla lög úr gildi, ef meiri hluti atkvæða fellir
þau við atkvæðagreiðsluna.
Þegar brýna nauðsyn ber til og Alþingi situr ekki, geta for-
setar Alþingis eftir beiðni forseta ríkisins sett bráðabirgðalög.
Ætíð skulu þau lögð fyrir næsta Alþingi á eftir.
Forseti hefur heimild til þess að kalla saman aukaþing, ef
hann telur brýna þörf bera til þess.
IV
Forseti skai kjörinn beinum kosningum af þeim, er kosn-
ingarétt hafa til Alþingis. Það forsetaefni, sem flest fær