Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1991, Blaðsíða 83
PÉTUR GUÐMUNDSSON OG SKÚLI Á. S. GUÐMUNDSSON
Tveir hríðarbyljir í Jökuldalsheiði
Sænautasel. Um 14-15 km leið uppi í Jök-
uldalsheiði, nokkurn veginn í vestur frá
Arnórsstaðamúla, þar sem þjóðvegurinn
liggur upp til heiðar af dalnum, þar er Sæ-
nautavatn rúma 3 km á lengd austan undir
Sænautafelli, hæðarávala sem rís röska 200
m yfir vatnið. Við suðurenda vatnsins
liggja rústir Sænautasels í litlu túni sem nú
er hætt að slá fyrir nær hálfri öld. Þetta var
næstelsta býlið í Heiðinni, byggðist vorið
1843, en lagðist í eyði 1942 - 99 ár. Síðustu
ábúendur þar voru Guðmundur Guð-
mundsson, ættaður af Berufjarðarströnd,
og kona hans, Jónína Guðnadóttir frá
Grunnavatni, öðru býli í þessari heiði.
Barn þeirra var Pétur. Jónína andaðist
1927 og aftur kvæntist Guðmundur, nú
Halldóru Eiríksdóttur ekkju frá Hreims-
stöðum í Hjaltastaðaþinghá. Þau eignuð-
ust fjögur börn og yngst þeirra er Skúli.
Það var hann sem sendi Múlaþingi tvo,
eiginlega þrjá, eftirfarandi þætti, tók þá
upp á snældu eftir Pétri bróður sínum, lag-
aði frásagnarmátann vísast smávegis, en
lét hann þó halda sér að mestu. Pétur tók
allar myndirnar með greininni.
Rétt er að huga lítillega að bæjum og öðrum kennileitum á þessum slóðum.
Um 2 km suður af Sænautavatni er Ánavatn, stærsta heiðarvatnið, og í það fellur Botna-
lækur norðan að úr Botnum. Austan lækjarins er Stóra-Svalbarð, hæðardrag rúmum 300 m
hærra en Ánavatnið. Litla-Svalbarð er sunnan við það stóra og vestan við það eyðibýlið
Veturhús 4-5 km suðaustur af Sænautaseli. Frá Veturhúsum er um 10 km leið að Grund
niðri á Efradalnum við Jöklu. Og enn er vatnið Gripdeild skammt suður af Veturhúsum og
Litla-Svalbarði. Vötnin á þessu svæði eru 500-600 m yfir sjó. Öll eru eyðibýli þessi, vötn og
hæðir sunnan, þ.e. innan, við þjóðveginn vestur heiðina, og við norðurenda Sænautavatns
var býlið Rangalón, þar lá þjóðvegurinn rétt við rústirnar, en var færður nokkurn spöl
norður fyrir um 20 árum. Ennfremur eru nefndir í þáttunum bæirnir Víðihólar í Víðidal
austan við Litla-Svalbarð og Ármótasel skammt upp af Arnórsstaðamúlanum. Býlið
Grunnavatn er 4-5 km suð-suðvestur af Sænautaseli og Heiðarsel við Poll suður úr
Ánavatni.
Frásagnir sem þessar er best að lesa með korti.
Á.H.