Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1991, Blaðsíða 108
106
MÚLAÞING
Selveiði á jörðin í Hálsaós.
Item sjálfa Hálsa með Hálsatorfu.
Silungsveiði á jörðin í Staðará, að hálfu á móti staðnum.
Beit á jörðin í Staðarhálsum og skóg á Merkikambi.
Skógarítak á jörðin í Breiðabólstaðarlandi, þar sem heitir Borgar-
hafnarnes og Fiskakelda.
Útræði á jörðin við Hálsahöfn. Vermannaskálar voru þar að fornu,
10 eður 12.“
í jarðabókinni má sjá rúmum 100 árum eftir skiptapann mikla við
Hálsa, að enn þekkja menn sögur af mikilli útgerð frá Hálsahöfn, og
reyndar er ljóst að enn 1709 stunda Borgarhafnarbændur útræði
þaðan.
Ég hef hér tínt til flest sem mér er kunnugt um að til sé ritað fram
til aldamótanna 1700 um höfuðbólin tvö, Hoffell og Borgarhöfn.
Ýmislegt er til á söfnum óprentað frá 17. öldinni, sem varpað getur
ljósi á sögu þessara höfuðbóla, hvernig þau voru setin og hverjir það
gerðu.
Mér er það fullljóst að mikið vantar á að ég færi óhrekjandi sannanir
fyrir því að Hákarla-Bjarni Marteinsson eigi auð sinn mikinn að þakka
útgerð frá Hálsahöfn. Fyrir þessu verða sjálfsagt aldrei færðar óhrekj-
anlegar sannanir, en í mínum huga er þetta efalaust.
Framætt Flákarla-Bjarna
í grein minni í Múlaþingi „Póstar um Ketilsstaðamenn og þýsk
sambönd“67 er ég með tilgátu um að faðir Hákarla-Bjarna sé Marteinn
Ólafsson sem einu sinni kemur við bréf á Valþjófsstöðum í Fljótsdal
29. september 144168. Ég er enn þeirrar skoðunar að Marteinn Ólafs-
son sé faðir Bjarna og vil gera frekari grein fyrir þessari tilgátu, sem ég
viðurkenni fúslega að er studd alltof veikum líkum til að vera annað en
hugarleikfimi.
Flateyjarannáll segir við árið 139169: „vtanferd sira Pals sira Guð-
mundar Orms Þorsteinssona. Jons Guðmundarsonar. andadiz sira Páll
litlu sidar enn hann kom fram. hafde Hakon Jonsson kyrsett allt hans
gozs enn sialfr vm sagdr. hellduz oll drotningar volld á Islandi. kallaði
hirðstjóri til Skóga enn Sumarliði hellt fodur sins vegna.“ Gottskálks-
annáll getur utanferðar og dauða Páls árið 1391, en Lögmannsannáll
getur einungis dauða hans, en setur hann við árið 139070. Telja má
fullvíst, að eins og Flateyjarannáll getur síra Páls, síra Guðmundar og