Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1991, Page 98
96
MÚLAÞING
„Ollum monnum þeim sem þetta bref sia edur heyra senda heinrek
arnason. inndride hrafnson. ionn arnason. biarnne heinnreksson.
gvnnlaugur biarnnason. sigurdur markusson. gvnnar ionson. eirekur
þorsteinsson. eirekur rvnolfsson. pall þorsteinsson. stefann olafsson
ok teittur halldorsson kuediu guds ok sina kvnigtt geranda ad þa er
lidit uar fra hingatburd uors herra jesv christi þushund íííí. c. ok atta-
tigi ara æ manudagin næsta fyrir allra heilagra messo j holltvm j horna-
firde æ þingstad rettvm uoro uær j dom nefndir af ærligum manni
eyolfe gvnarssyne er þa hafde kongs syslu ifer skaptafell(s)þinge ad
dæma um þat er pall palsson beidizt þar doms æ huort hann mætte rett-
liga ad sier taka jordina borgarhavfn er ligvr j kalfafellzt kirkiu sokn.
nu saker þess ad oss leizt þar ollvm eitt um þa dæmdvm uær fyr
nefndvm pale palssyne adr greinda jord borgarhaufn til halzt ok hann
mætte hana rettliga ad sier taka ok hallda henne til laga epter þvi sem
þat skiptisbref þar vm gertt utt uisar er þratt nefndr pall bar þar fram
fyrir oss. ok til meire stadfestv ok sannenda hier um setta eg fyrr skrif-
adr eyolfur mitt jnnsigle med adr nefndra domsmanna jnnsiglvm fyrir
þetta domsbref er skrifad var j hoffelle j hornnafirde a faustudagin
næsta fyrir ceciliu messo æ sama are ok fyr seiger."
Ekkert í bréfinu gefur til kynna að Páll Pálsson sé að sækja eftir
eigin arfi eða eign, heldur kemur fram að hann leggur fyrir dóminn
skiptisbréf sem veitir honum heimild til að ráðstafa Borgarhöfn, og
dómurinn fellst á kröfu Páls.
Bjarni Marteinsson kemur síðast við bréf 20. nóvember 147714. Þá
eiga þeir í jarðakaupum, Bjarni og Hallsteinn Þorsteinsson. Bjarni er
látinn 28'. nóvember 1488,15 þá kvittar Hinrik Mæding Pál Pálsson um
skuld og „kirkivblak eda vm þa adra hluti sem hann hefer brotligur
ordit kongdomsens vegna.“
Ég tel líklegt að Bjarni Marteinsson og Ragnhildur kona hans hafi
bæði látist fyrir 17. nóvember 1480. Þá hefur Hólmfríður dóttir þeirra
verið gift Páli Pálssyni, elst systkina sinna. Af þeirri ástæðu hefur Páll
farið með umboð þeirra þegar dómurinn féll um Borgarhöfn. Á sama
hátt er eðlilegt að telja, að Hoffell í Nesjum hafi verið frá Bjarna
komið, líklegast föðurleifð hans.
Hoffell í Nesjum
Til að gera tilraun til að upplýsa frekar uppruna Bjarna Marteins-
sonar, þá mun eg draga fram það litla sem um Hoffell í Nesjum og
Borgarhöfn í Suðursveit er vitað fram um 1580.