Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2009, Qupperneq 9
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 2. tbl. 85. árg. 2009 5
Í þessu tölublaði byrjar nýr dálkur sem nefnist Praxís. Í honum munu hjúkrunarfræðingar
fara yfir fræðigreinar sem hafa áður birst í Tímariti hjúkrunarfræðinga og skoða
niðurstöður rannsókna í ljósi reynslu sinnar. Orðið praxís er valið þar sem það hefur
viðtæka skírskotun. Íslensk orðabók útskýrir það sem framkvæmd eða aðstæður á
vettvangi. Í Grikklandi hinu forna þýddi praxis (πρᾱξις) athöfn eða starfsemi þar sem
markmiðið var athöfnin sjálf. Aristóteles greindi reyndar milli þrenns konar athafna:
theoria, sem leiðir til sannleika, poiesis, sem leiðir af sér að eitthvað verði búið til, og
praxis. Hann talaði einnig um eupraxia (góðan praxís) og dyspraxia (slæman praxís).
Í gagnrýninni kenningarsmíð (critical theory) er praxís mikilvægt hugtak. Það er ekki
nóg að rannsaka og túlka heiminn, aðalmálið er að breyta honum. Vísindin eiga
að varpa ljósi á aðstæður á vettvangi, en reyndin á einnig að hafa áhrif á vísindin.
Starfendarannsóknir (action research) spretta úr þessari hugmyndafræði. Innan
hjúkrunar hefur praxíshugtakið meðal annars verið notað í tengslum við tilraunir til að
brjóta niður veggi milli rannsóknar og klíníkur. Það verður spennandi að fylgjast með
hvernig höfundum Praxísgreina tekst til.
Fyrir höfunda Praxísgreina er úr miklu að moða á árinu því Tímarit hjúkrunarfræðinga
mun birta fjölda fræðigreina á næstunni. Ekki náðist að fullvinna nema eina grein
fyrir þetta tölublað en næst verða að minnsta kosti tvær greinar og gefið verður út
aukatölublað sem í verða aðallega fræðigreinar. Hraðinn í vinnslu fræðigreina hefur nú
aukist töluvert og ritnefndin getur tekið á móti fleiri fræðihandritum. Hjúkrunarfræðingar,
sem hafa unnið rannsóknir, eru hvattir til þess að senda inn handrit. Nýlega voru
leiðbeiningar til höfunda uppfærðar og er þær að finna á vef tímaritsins.
Til þess að styrkja enn frekar tenginguna milli rannsókna og klíníkur mun Tímarit
hjúkrunarfræðinga birta stuttar frásagnir um nýlegar rannsóknir. Vinnuheiti þessa dálks
í blaðinu er „Forvitnilegar rannsóknir“. Lesendur eru hvattir til þess að taka eftir nýjum
og spennandi rannsóknum og senda inn slíka pistla. Að jafnaði eiga þeir ekki að vera
lengri en 300 orð. Pistlarnir mega gjarnan vera skrifaðir frá sjónarhorni lesanda frekar
en rannsakanda, það er forðast ber að skrifa hefðbundinn útdrátt.
Fræðslugreinar verða áfram mikilvægur vettvangur fyrir þá sem vilja tengja saman
þekkingu og framkvæmd. Fræðslugreinarnar í þessu tölublaði eru tvær og fjallar ein
þeirra um áhugavert klínískt verkefni. Töluverð vinna er að skrifa fræðslugrein en
afraksturinn er oft glæsilegur eins sést hér í blaðinu.
Tímarit hjúkrunarfræðinga
Suðurlandsbraut 22
108 Reykjavík
Sími 540 6405
Bréfsími 540 6401
Netfang: christer@hjukrun.is
Vefsíða: www.hjukrun.is
Útgefandi: Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Christer Magnusson
Tekið er á móti efni til birtingar á netfanginu
christer@hjukrun.is.
Leiðbeiningar um ritun fræðslu og fræðigreina
er að finna á vefsíðu tímaritsins.
Ritnefnd:
Katrín Blöndal, formaður
Oddný Gunnarsdóttir
Ragnheiður Alfreðsdóttir
Sigríður Jónsdóttir
Ritstjórn ritrýndra greina:
Herdís Sveinsdóttir, formaður
Auðna Ágústsdóttir
Marga Thome
Fréttaefni: Christer Magnusson
Aðalbjörg Finnbogadóttir
Ljósmyndir: Björk Inga Arnórsdóttir, Christer
Magnusson, Inger Helene Bóasson LSH/BUSV,
Sigurður Bogi Sævarsson o.fl.
Próförk: Ragnar Hauksson
Auglýsingar: Mark – markaðsmál, Þórdís Una
Gunnarsdóttir, sími 866 3855
Hönnun: Þór Ingólfsson, grafískur hönnuður FÍT
Prentvinnsla: Litróf
Upplag 4100 eintök
Útgáfudagar:
109 15. febrúar
209 15. apríl
309 15. júní
409 1. október
509 1. desember
Nú fer að vora og léttir yfir öllu
þrátt fyrir erfiðleika í samfélaginu.
Tímaritið kemur hér í annað sinn
með nýju yfirbragði sem hefur mælst
vel fyrir. Í tölublaðinu er talsvert af
faglegu efni en einnig léttara efni til
tilbreytingar.
Christer Magnusson.
VÍSINDI OG FRAMKVÆMD
Ritstjóraspjall
Nathan & Olsen