Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2009, Qupperneq 13

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2009, Qupperneq 13
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 2. tbl. 85. árg. 2009 9 Viðamikil forprófun leiddi í ljós að breyta þurfti gagnasöfnun til að ná markmiðum. Að forprófun lokinni hófst hin eiginlega rannsókn í maí 2005 og henni lauk í desember sama ár. Alls tóku 48 sjúklingar þátt í rannsókninni en þrír þeirra féllu út svo eftir stóðu 45. Skilyrði fyrir þátttöku í rannsókninni voru að sjúklingar væru sjálfbjarga fyrir aðgerð og væru ekki eldri en áttatíu ára. Flýtibatameðferð var einungis veitt sjúklingum sem gengust undir úrnám á hægri ristli, vinstri ristli eða bugaristli. Helstu niðurstöður úr rannsókn og umræður Nokkuð vantaði á að gögn kæmu frá sjúklingum eftir heimkomu þannig að hér eru birtar niðurstöður úr gögnum sem safnað var í legunni og með símtölum heim eftir útskrift. Meðallegutími var 6,2 dagar (bil 3­11) eftir aðgerð. Fimm sjúklingar útskrifuðust á 3. degi eftir aðgerð og tveir á 4. degi. Sex sjúklingar lágu inni í 9 daga og einn í 11 daga. Þeir sem útskrifuðust á 3. eða 4. degi voru að meðaltali yngri (57 ára) en hópurinn sem lá lengur. Heildarlegutími sjúklinga 80 ára og yngri styttist um þrjá daga á rannsóknartímabilinu miðað við sama tímabil 2003 (sjá töflu 3). Fjórir sjúklingar þurftu að leggjast inn aftur (9%). Í heild má segja að nokkur árangur hafi náðst á 12G við að stytta legu sjúklinga þótt leiða megi að því líkum að hægt væri að ná betri árangri miðað við niðurstöður Kehlet og Mogensen (Kehlet og Mogensen, 1999). Það háir að vísu samanburði við rannsókn Kehlets og félaga að ekki var á 12G fylgt alveg sama meðferðarskema. Einnig vantar upplýsingar um hvernig sjúklingnum vegnar fyrir og í aðgerð til að hægt sé að bera saman niðurstöður við nýlegri rannsóknir á þessu sviði (Delaney, 2008). Til að stytta leguna frekar en sýnt var í þessari rannsókn þarf samstillt átak fagstétta við að staðfæra og fylgja meðferðaráætlun. Upplýsingar til sjúklinga fyrir aðgerð þurfa að berast mjög tímanlega svo hægt sé að nýta biðtíma sjúklinga fyrir aðgerð til að bæta næringarástand, hreyfigetu og draga úr reykingum ef það á við. Einnig þurfa sjúklingar að hafa skriflegar upplýsingar um áætlaðan útskriftardag áður en þeir leggjast inn og fá síðan skriflegar breytingar sem kunna að verða á þeirri áætlun. Á þeim tíma, sem rannsóknin var gerð, komu sjúklingar í innskriftarmiðstöð, en vegna vísbendinga í rannsóknum var opnuð móttaka hjúkrunarfræðinga fyrir sjúklinga á 12G til að bæta enn fræðslu til þeirra. Ljóst er að lengd legunnar er að einhverju leyti háð því hvernig gengur að verkjastilla sjúklinga og hvaða úrræði eru fyrir hendi. Í þessari rannsókn voru sjúklingar lengur með utanbastdeyfingu en leiðbeiningar gerðu ráð fyrir. Á 2. degi var búið að fjarlægja utanbastlegg hjá 18 af 45 eða 40% en samkvæmt leiðbeiningum hefðu flestir sjúklinganna átt að vera lausir við hann. Ástæða þessa eru sennilega margir samverkandi þættir, svo sem fræðsla til sjúklinga fyrir aðgerð, skurðaðgerðin sjálf, lega utanbastdeyfingar og notkun annarra verkjalyfja en Kehlet og Mogensen (1999) notuðu. Sjúklingar í rannsókninni skráðu sjálfir hve mikið þeir hreyfðu sig. Á 1. degi eftir aðgerð var meirihluti þeirra (30 sjúklingar) Tafla 2. Flæðiskema fyrir flýtibatameðferð. Verkjalyf Næring Hreyfing Útskilnaður/íhlutir Útskriftaráætlun Aðgerðardagur BFA­dreypi* Drekka 1 glas af vatni og 1 næringardrykk Aðstoða sjúkling fram úr á vöknun/deild Þvagleggur Vökvagjöf í æð Útskriftardagur og áætlun liggur fyrir 1. dagur BFA­dreypi* Verkjatöflur*** reglulega Fljótandi fæði, mest 1000 ml, og 2 næringardrykkir Hreyfing/sjálfbjarga 3­4 sinnum á vakt með aðstoð Sjálfbjarga að kvöldi Þvagleggur áfram Vökvagjöf í æð tekin niður Fylgjast með lofti/hægðum T. Magnesíumsúlfat 2. dagur BFA­dreypi* og svo verkja töflur*** reglulega FSMS** fæði og 2 næringardrykkir Sjálfbjarga og fótaferð aukin Hvetja til hreyfingar Þvagleggur fjarlægður Fylgjast með lofti/hægðum 3. dagur BFA­leggur fjarlægður Verkjatöflur*** reglulega FSMS­fæði** og 2 næringardrykkir Sjálfbjarga Útskriftardagur ítrekaður Útskriftarviðtal við hjúkrunarfræðing 4. dagur Verkjatöflur*** reglulega FSMS­fæði** og 2 næringardrykkir Sjálfbjarga Útskrift ef allir þættir meðferðar voru uppfylltir *BFA­dreypi: Bucain Fentyl Adrenalin­verkjadeyfing **FSMS: Fæði sértiltekið fyrir meltingarsjúklinga ***Verkjatöflur: T. Parasetamól, C. Celebra, T. Íbúfen (eftir að BFA­dreypi fór út), T. Nobligan pn

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.